17.04.1985
Neðri deild: 57. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4313 í B-deild Alþingistíðinda. (3639)

Um þingsköp

Hjörleifur Guttormsson:

Herra forseti. Áður en hér er gengið til dagskrár og haldið áfram umr. um mikilvæg mál eins og um selveiðar og fleira vildi ég inna hæstv. forseta eftir því hvað valdi að stjfrv. til laga um ráðstafanir í sjávarútvegi o. fl., sem lagt var fram hér á þinginu 27. nóv. s. 1., hefur enn ekki komið til umr. Þetta stjórnarfrumvarp sem er frv. um staðfestingu á brbl. frá 30. júlí 1984 og breytingar á þeim lögum, var lengi á dagskránni hér í þinginu eða þar til 6. febrúar s. l. skv. upplýsingum skrifstofu Alþingis, en hefur síðan ekki sést á dagskránni. Ég hafði ætlað mér að taka til máls um þetta frv. og hef því veitt því athygli að það hefur ekki verið hér á dagskrá og nú er komið fram í síðari hluta aprílmánaðar. Ég vil inna hæstv. forseta eftir því hvað valdi að mál þetta hefur ekki sést hér á dagskránni síðan 6. febrúar s. l.

Hér er raunar um eitt af mörgum dæmum um það að ræða hversu hægt þingstörf ganga vegna aðburðaleysis hæstv. ríkisstj. Ég vil í þessu sambandi minna á að útvarpslagafrv., sem hæstv. menntmrh. ætlaði að fá lögfest fyrir 1. nóvember s. 1., var afgreitt frá hv. menntmn. þessarar deildar í annan umgang 26. mars s. l. og ég og fleiri fulltrúar stjórnarandstöðu skiluðum brtt. hér inn í þingið fáum dögum síðar. Síðan hefur þetta mál hins vegar ekki verið á dagskrá og frá meiri hluta nefndarinnar sjást engar till. Við fréttum af því í fjölmiðlum öðru hvoru að verið sé að leggja drög að frv. inn á borð hæstv. ríkisstj. en síðan heyrist ekkert meira af þeim drögum. Og svo háttar um mörg mál. Ég get nefnt ótal dæmi um þetta, síðast núna í hádegisfréttum að hæstv. félmrh. var að skila fyrstu drögum að frv. inn á borð ríkisstj. Það þykir fréttnæmt svo mikil er ördeyðan í sambandi við fregnir af málefnum ríkisstj. og málabúnaði hér á Alþingi að fjölmiðlarnir finna sig tilknúna að greina frá því hvenær málum er skilað inn á borð ríkisstj. til fyrstu athugunar. Það er ekki von að vel gangi þegar þannig horfir.

Ég vil inna hæstv. forseta sérstaklega eftir þessu máli sem nú virðist gufað upp, stjfrv. um ráðstafanir í sjávarútvegi o. fl. Það er nú ekki kominn uppstigningardagur en þetta frv. er greinilega komið býsna hátt í burtu frá vettvangi Alþingis.