30.10.1984
Sameinað þing: 11. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 587 í B-deild Alþingistíðinda. (365)
66. mál, greiðslukort
Fyrirspyrjandi (Guðrún Helgadóttir):
Herra forseti. Ég hef leyft mér að bera fram fsp. til hæstv. viðskrh. sem liggur hér fyrir á þskj. 67 og hljóðar svo, með leyfi virðulegs forseta:
„Er þess að vænta að frv. til l. um greiðslukort og starfsemi greiðslukortafyrirtækja verði lagt fram á yfirstandandi löggjafarþingi?“
Hinn 11. mars 1980 bar ég fram fsp. til þáv. hæstv. viðskrh. í þrem liðum, í fyrsta lagi hvort leita þyrfti leyfis stjórnvalda til að stofna lánakortafyrirtæki, í öðru lagi hvort slík fyrirtæki væru háð eftirliti sem svaraði til bankaeftirlitsins og í þriðja lagi hvort hann beitti sér fyrir lagasetningu um þessa nýju starfsemi ef hvor tveggja fyrri svörin væru neikvæð.
Hæstv. ráðh. svaraði því til að ýmis lög tækju til lánakortastarfsemi, svo sem hlutafélagalög og skattalög. Jafnframt yrðu lánakortafyrirtæki að fara að ákvörðun seðlabanka Íslands varðandi vexti og annað endurgjald fyrir umlíðun skuldar, svo orðrétt sé vitnað í svar hans. Kvað hann rn. vera að kanna hvort þörf reyndist á löggjöf.
Ekkert hefur síðan gerst í því máli. Greiðslukort hafa hins vegar náð mikilli útbreiðslu, og nú eru starfandi tvö greiðslukortafyrirtæki, Eurocard og Visa Ísland, sem hafa samvinnu við ákveðnar innlánsstofnanir. Nokkur deila hefur síðan risið um hver skuli bera kostnaðinn af þessari lánastarfsemi, og hafa kaupmenn haft áhyggjur af áhrifum hennar til hækkunar vöruverðs. Erlendis hafa matvöruverslanir sums staðar t.d. ekki talið rétt að taka upp notkun greiðslukorta. Sömu stefnu hafa matvörukaupmenn hér þó að flestir hafi beygt sig fyrir þrýstingi samkeppninnar. Ljóst er að greiðslukortin eru orðinn verulegur þáttur í viðskiptum hér sem annars staðar og því er mikilvægt að um notkun þeirra verði settar reglur sem tryggja öllum aðilum réttaröryggi, rétt til ákvarðanatöku um skilyrði og skilmála og síðast en ekki síst að áhrif notkunar greiðslukorta á vöruverð fari ekki úr böndum.
Á síðasta löggjafarþingi flutti hv. þm. Jón Magnússon till. til þál. um að skipuð yrði nefnd til að semja frv. til l. um greiðslukort og starfsemi greiðslukortafyrirtækja, en sú till. náði ekki samþykki. Í Dagblaðinu í gær birtist síðan frétt um að flm. hafi verið falið að semja frv. til l. um greiðslukort. Spurningu minni er þar með að nokkru svarað þar sem heimild fréttarinnar er sjálft viðskrn. En ég vona að hæstv. viðskrh. misvirði ekki þó ég bæti þá við spurningu mína annarri spurningu ef hann staðfestir frétt Dagblaðsins, þ.e. hvort nefndin hafi verið skipuð eða hvort flm., sem jafnframt er formaður Neytendasamtakanna, sé einn í nefndinni. Án þess að í því felist minnsta vanmat á hæfni hans verður að teljast undarlegt að aðrir aðilar fái ekki að hafa hönd í bagga, svo sem Kaupmannasamtökin, eigendur greiðslukortafyrirtækjanna, jafnvel fulltrúar dómsvaldsins og e.t.v. einhverjir fleiri. Vona ég að hæstv. ráðh. skýri þetta atriði en jafnframt að hann svari þeirri spurningu sem hér liggur fyrir á þskj.