18.04.1985
Sameinað þing: 72. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4349 í B-deild Alþingistíðinda. (3671)

336. mál, frelsi í útflutningsverslun

Flm. (Kjartan Jóhannsson):

Herra forseti. Tillgr. sem ég mæli hér fyrir hljóðar svo:

„Alþingi ályktar að fela viðskrh. að gefa útflutning á vörum frá landinu frjálsan í stað þess að leyfisbinda hann eins og nú er gert, sbr. 8 og 9. gr. reglugerðar nr. 519 14. desember 1979. Beinir Alþingi því til ráðh. að breyta nefndum ákvæðum reglugerðarinnar til samræmis við ofangreindan vilja sinn.“

Nú er það staðreynd að á sama tíma og innflutningur hefur verið að mjög miklu leyti frjáls, eða nánast öllu leyti nema að því er varðar olíuvörur sem við ræddum hér í gær, þá hefur ríkt algjör leyfisbinding á útflutningi á vörum frá landinu. Þetta er ákaflega sérstætt fyrirkomulag, einkum og sér í lagi þegar haft er í huga að það hlýtur að vera kappsmál hverrar þjóðar að útflutningur þjóðarinnar sé sem mestur og gróska í útflutningsverslun sé sem mest. Þess vegna hljóta menn að hugleiða þetta mál og taka það til ítarlegrar íhugunar. En það er tæpast hægt að segja að þetta hefi komið til umr. hér á Alþingi a. m. k. árum saman.

Sú leyfisbinding, sem er í gangi varðandi útflutninginn, hefur greinilega ýmsa mjög mikla annmarka í för með sér. Slíkri leyfisbindingu fylgir í fyrsta lagi skrifræði og í annan stað er vissulega um að ræða skömmtunarkerfi um leið og menn taka upp leyfisbindingu af þessu tagi. Skömmtunarkerfið er þess eðlis að einum aðila, í þessu tilviki viðskrh., er fengið mikið vald, honum er fengið vald til að ákveða hverjir skuli hafa leyfi til útflutnings. Með því er hann að úrskurða að sumir séu hæfir en aðrir ekki. Í því mati sínu hefur hann ekki mikið við að styðjast varðandi þá sem ævinlega er synjað vegna þess að ef mönnum hefur ævinlega verið synjað liggur náttúrlega ekki fyrir reynsla um það hvernig þeir gætu staðið sig í útflutningnum. Að því leytinu eru það örlög viðskrh. í þessu tilviki að vera að hálfu leyti blindur þegar hann framkvæmdir þessa úthlutun. Það er nánast bundið fyrir augu hans að því er þetta varðar.

En það er fleira sem fylgir þessu skömmtunarkerfi. Í rauninni er ráðh. að taka ákvarðanir um það að einn aðili geti haft tekjur af útflutningi en annar megi ekki fá þær. Þetta eru gallar skömmtunarkerfisins eins og þeir horfa við þegar fyrst er til þeirra litið og þessir gallar eru vissulega mjög miklir. Það er þar á ofan ekki nokkur vafi á því að með því að vera með skömmtunarkerfi af þessu tagi er dregið úr áræði manna til að stunda útflutning, það er dregið úr frumkvæði og nýjungum. Þetta er kannske alvarlegasti ágallinn.

Það hlýtur að liggja í þessu kerfi að dregið sé úr nýjungum og frumkvæði. Það er einfaldlega af því að því, sem menn hafa vanist að gefa leyfi fyrir, halda þeir áfram að gefa leyfi fyrir án nokkurrar sérstakrar umhugsunar og slík afgreiðsla verður mjög greið. En um leið og koma einhverjar nýjungar þarf kerfið að velta því fyrir sér hvort þetta sé skynsamlegt eða ekki. Þetta kostar vangaveltur, íhugun, athugun og jafnvel ítarlega skoðun og það getur þýtt verulegar tafir. Þetta þýðir það væntanlega að ýmsir, sem hefðu áhuga á útflutningi, gefast upp í þeim efnum þegar þeir sjá hversu torsótt þetta getur verið. Að þessu leyti er augljóst að það fyrirkomulag, sem hér hefur verið við lýði, dregur þrótt úr útflutningsversluninni, það dregur úr nýjungum, það er þunglamalegt. Menn hljóta að spyrja í þessu sambandi hver sé nauðsyn þess að vera með leyfisbindingu á útflutningi. Hver er nauðsyn þess að kindakjötsútflutningur sé háður leyfum, sé á einni hendi og reyndar sífellt á sömu hendi? Hvaða nauðsyn ber til þess? Hvaða þjóðhagslegan ávinning teljum við okkur hafa af því að skipa málum með þessum hætti? Er það ekki einmitt vegna þess að menn hafa einokunarfyrirkomulag af þessu tagi á útflutningi eftir greinum að markaðsöflunin verður seinvirk og hætt við að í henni sé lítill þróttur? Ég minni á að alltaf annað veifið hafa komið upp aðilar á Íslandi sem hafa viljað stunda útflutning á kindakjöti meira eða minna verkuðu, ef ég má orða það sem svo, en það hefur næstum ævinlega strandað og orðið að engu. Þetta hefur sótt aftur í gamla farveginn að það skuli vera einn aðili og þá reyndar ævinlega sami aðilinn sem skuli þennan útflutning stunda.

Menn hljóta líka að spyrja hvort það séu þjóðarhagsmunir að útflutningur á freðfiski sé á tveimur höndum nánast. Er það þjóðarhagur? Er víst að það sé skynsamlegt að skipa málum með þeim hætti núna að lögbjóða nánast að svo skuli vera? Það er ekkert ólíklegt að þetta hafi verið gott fyrirkomulag og nauðsynlegt hér einu sinni en hlutirnir hafa breyst.

Ef við hugleiðum þetta skipulag hljótum við að spyrja hvað mundi gerast ef nýir aðilar færu að stunda þennan útflutning. Tvennt gæti gerst. Annaðhvort gætu þeir boðið betri kjör en þau sem nú gilda, það ætti væntanlega að vera greininni til góðs, en ef þeir gætu ekki boðið betri kjör ættu þeir aðilar, sem í útflutningnum hafa verið, að vera ánægðir, þeir hefðu þá sannað yfirburði sína og þeir hefðu ekkert að óttast. Ég er engu að síður sannfærður um að þeir hefðu gott af samkeppninni. En síðasta spurningin í þessu efni hlýtur að vera sú: Ef einhver finnur nýjan markað, er það nema rétt að hann fái að spreyta sig á þeim markaði? Er nema rétt ef einhver finnur nýjan markað að hann geti fengið að vinna hann upp og spreyta sig á þeim vettvangi og þurfi ekki að ganga fyrir kóng og prest, ráðh. og kerfiskarla til þess að spreyta sig á því verkefni?

Augljóst er að öllum þjóðum, Íslendingum jafnt og öðrum, hlýtur að vera það mikið hagsmunamál og keppikefli að auka útflutning sinn, auka útflutningsverslun og þannig gjaldeyristekjur. Það, að auka útflutninginn og gjaldeyristekjurnar, er undirstaða efnahagslegra framfara. En hvað þarf þá til til þess að auka útflutningsverslun? Mikilvægasta verkefnið í þeim efnum er öflugt og þróttmikið sölustarf. Íslendingar hafa einmitt verið heldur tómlátir í þeim efnum. Einmitt í sölustarfi á erlendri grund hefur verið fólginn veikasti hlekkurinn í íslensku atvinnulífi og framþróun þess og þá ekki síst að því er tekur til iðnaðar.

Okkur er tamt, Íslendingum, að gæla við hugmyndir um framleiðslu á hinu og þessu. En það sem ekki verður selt við góðu verði er ekki til neins að framleiða. Þess vegna er sölustarfið jafnmikilvægur þáttur í atvinnulífinu og hver annar þó að okkur hafi verið tamt að rækta hann lítt.

Markaðsþekking og skilningur á því hvers lags vörur um er að ræða og hvernig frá gengnar er mikils metið á hinum mismunandi mörkuðum og er lykillinn að því að menn geti fengið gott verð fyrir vöru sína. Þess vegna er nauðsynlegt að sem beinast samband sé milli framleiðanda og markaðarins, samband sem tryggir það að framleiðendur fái sem gleggstar og greinarbestar upplýsingar um hverjar kröfurnar eru á hinum og þessum markaði, hvaða möguleika markaðirnir bjóða og að þeir hafi þannig færi á því og hvatningu til að aðlaga framleiðslu sína í samræmi við þarfir markaðarins og sölumöguleika á hinum mismunandi mörkuðum.

Mér er það vissulega ljóst að það þarf oft hugkvæmni og áræði til að brjótast inn á nýjar brautir — og þá ekki síst í markaðsmálum. En ég held að skömmtunarkerfi sé síst af öllu fallið til þess að stuðla að þeirri markaðsþróun sem ég hef hér gert að umtalsefni. Þvert á móti er slíkt skömmtunarkerfi líklegt til þess í fyrsta lagi að slæva þá sem fyrir eru í greininni og hafa notið verndar og einokunar og jafnframt að ýmsir, sem einmitt hafa hæfileika og getu á þessu sviði, fái aldrei að kljást við verkefnið. Af því bíðum við tjón. Þetta er kjarni málsins. Þess vegna er ráðið til að stuðla að grósku í útflutningsverslun ekki það að binda útflutninginn í skömmtunarleyfisveitingar og skrifræði heldur hitt að útflutningurinn sé frjáls þannig að hugkvæmni og áræði, sem til þarf að koma, fái að njóta sín og hin nauðsynlegu tengsl milli markaðarins og framleiðsluaðilanna séu sem best og virkust.

Ég sagði áðan að vel mætti vera að sú skipan, sem í gildi er og í gildi hefur verið lengi, hafi átt fullan rétt á sér hér áður, enda eru þau ákvæði sem gilda um þetta efni mjög gömul og í sannleika sagt hefur hver ráðh. og ríkisstj. fram af annarri, m. a. ríkisstj. sem ég sat í sem ráðh., framlengt þá skipan sem í gildi hefur verið og menn hafa starfað eftir henni. Þau ákvæði, sem nú eru í gildi eru t. d. í reglugerð nr. 519 frá 14. desember 1979 og þá var flm. þessarar till. reyndar ráðh. viðskiptamála. En það breytir ekki því að menn verða að skoða þessi mál af gaumgæfni og gera upp hug sinn í þessum efnum.

Þau lög, sem eru í gildi, eru nr. 63/1979. Þegar þau voru sett hélst óbreytt sú fyrri heimild sem viðskrn. hafði haft til þess að leyfisbinda útflutning á vörum. Í þeirri reglugerð, sem ég vitnaði til og var sett á grundvelli laganna, var þessi heimild nýtt nákvæmlega með sama hætti og ríkisstjórnir höfðu gert hver fram af annarri. Allur útflutningur á vörum var því skv. henni háður leyfi viðskrn. Þessi ákvæði eru reyndar í 8. og 9. gr. reglugerðarinnar. Á þessu hefur engin breyting orðið, að því er ég best veit, að undantekinni undanþágu frá þessu skilyrði sem veitt var fyrir nokkra flokka innlendra iðnaðarvara með sérstakri auglýsingu hinn 22. desember 1983 og er sú auglýsing reyndar nr. 797.

Þetta er þá það ástand sem við höfum búið við. Í þessari till., sem ég mæli hér fyrir, er lagt til að heimildin, sem er í lögunum nr. 63/1979, um leyfisbindingu útflutnings, verði ekki nýtt. Ég get að vísu bætt við: nema þá í undantekningartilvikum, því að mér er ljóst að slík undantekningartilvik gætu komið upp og geta verið fyrir hendi. En meginreglan verði sú að útflutningur sé frjáls með sama hætti og gildir um meginhluta innflutningsins til landsins.

Til þess að gera þetta er ekki þörf á lagabreytingu vegna þess að valdið er í hendi viðskrh. sem fer með reglugerðarvaldið. Það er reyndar vafasamt að æskilegt sé að gera þessa lagabreytingu með tilliti til þess að upp kunna að koma tilvik, neyðartilvik eða sértilvik, sem menn telja að nauðsynlegt sé að undanskilja. Þess vegna er reyndar það form valið sem hér er um að ræða, að leggja til að viðskrh. breyti hér um skipan með reglugerðarbreytingu.

Það hefur farið fram þó nokkur umræða á seinustu mánuðum — þó að það sé e. t. v. 5–10 árum of seint — um sölustarfsemi. Ég hef reyndar oft á undanförnum árum gert þetta að umtalsefni og undrað mig á því hvað Íslendingar væru tómlátir í þessum efnum. En mér sýnist að núna sé að vaxa skilningur á gildi sölustarfsins fyrir íslenskar framleiðslugreinar, fyrir íslenskan iðnað og að menn hafi vaknað til nokkuð nýrrar vitundar. En það stoðar lítið að setja á námskeið og leiðbeiningar, hversu gott sem það er — og um það hafa verið gerðar till. á þinginu — ef það kerfi, sem menn búa við, er gjörsamlega úrelt, bindur útflutningskerfið í viðjar og gefur mönnum ekki tækifæri til að spreyta sig í útflutningsversluninni við sölustarf á erlendri grund. Þess vegna er líka frelsi í útflutningsverslun að mínum dómi áhrifaríkasta aðgerðin til að afla nýrra markaða, stuðla að vöruþróun og auka þannig afraksturinn af útflutningnum. Það mundi verða til þess að atvinnuvegirnir ættu að geta fengið meiri tekjur og með þeim hætti yrði sótt fram til bættra lífskjara.

Mér er ljóst, herra forseti, að með tilliti til þess hversu lengi núverandi skipan hefur verið við lýði þyki þetta róttækar og byltingarkenndar hugmyndir. En ég tel nauðsynlegt að Alþingi taki af skarið í þessum efnum, hér er svo mikið í húfi. Ég tel ástæðulaust fyrir ýmis útflutningssamtök, sem við lýði eru í landinu, að óttast þessa till. vegna þess að henni er ekki stefnt gegn þeim. Þau hafa gott af nokkurri samkeppni. Ég efast ekkert um að þau samtök, sem rótgróin eru, muni geta staðið sig. En ég held líka að þau muni standa sig betur eftir að frelsi hefur verið innleitt í þessari grein. Þannig gæti þetta orðið sjávarútvegi t. d. og landbúnaði, sem hafa búið við sterk sölusamtök, til enn frekari framdráttar á sama hátt og það er nauðsynlegt til þess að ná hér fram iðnþróun að menn þurfi ekki að flækjast í skrifræði og skömmtunarkerfi til að geta stundað útflutning.

Herra forseti. Að lokinni þessari umr. legg ég til að þessari till. verði vísað til atvmn.