18.04.1985
Sameinað þing: 72. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4388 í B-deild Alþingistíðinda. (3687)

339. mál, bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs

Flm. (Halldór Blöndal):

Herra forseti. Ég var við ýmsu búinn þegar þessi umræða hófst miðað við þær undirtektir sem þessi till. hlaut hjá sumum Íslendingum á þingi Norðurlandaráðs. En ég átti ekki von á því að þessi till. yrði tilefni til þess að orð heyrðust eins og þau að það væri þjóðremba, hroki og annað því líkt að halda því fram að það væri sómi og stolt okkar Íslendinga ef við legðum bókmenntaverk skálda okkar fyrir á erlendum vettvangi að þau kæmust sem best til skila.

Ég óska hv. þm. 10. landsk. þm. Guðrúnu Helgadóttur til hamingju með það að hún hefur fengið góðar þýðingar á sínum verkum á Norðurlöndum. Einn þm. hafði orð á því við mig að hafa lesið tröllasögu hennar og er það auðvitað mjög ánægjulegt ef sum þessara verka hafa fengið góða þýðingu. Ég er ekki að draga neitt úr því að þessi hv. þm. sé athyglisverður rithöfundur og eigi gott skilið, síður en svo, og hef alls ekki á móti því að verkum hennar sé snúið á Norðurlandatungur með sóma, ekki heldur á ensku. Þess vegna kom mér á óvart þessi mikla og sterka áhersla sem hv. þm. lagði á það hér í sínu máli að ekki væri önnur leið fær fyrir íslensk skáld, sem jafnframt væru skáld á annarri tungu en íslensku, og þetta skáld væri valið til verðlauna á erlendum vettvangi af opinberri hálfu, en að þá skyldi vera á kostnað skáldsins sjálfs sú vinna að snúa verkinu yfir á aðra tungu ef hún væri ekki á Norðurlandamáli. Ég vil vænta þess að þessi hv. þm. geti verið sammála um það í því dæmi sem við töluðum um. Við getum tekið Kristján Karlsson eða Sigurð A. Magnússon sem hefur annast ljóðaþýðingar á enska tungu. Ef hann yrði valinn til bókmenntaverðlauna þætti mér ekki nema eðlilegt að sómi okkar stæði til þess, Íslendinga, að gefa þessum skáldum kost á því að leggja sín verk fram jafnframt á ensku, auðvitað í trausti þess að þeir menn, sem dæma um bókmenntaverk hjá Norðurlandaráði, séu e. t. v. læsir á þá tungu og kunni betur að skilja og skynja höfundareinkennin og boðskapinn ef það er skáldið sjálft sem þýðir verkin á aðra tungu heldur en ef einhver annar maður kemur til, sem kannske hefur aldrei kynnst skáldinu persónulega, hefur kannske ekki lesið bækur viðkomandi skálds í samhengi og þekkir ekki þann grunntón sem liggur að baki þess að viðkomandi ljóð voru ort. Ég hélt nú satt að segja að þegar talað er við einn rithöfund um verk annars kæmi sá metingur og metnaður ekki upp að verið væri að reyna að gera lítið úr því að verkin kæmust til skila. Og ég vil ekki trúa því fyrr en á reynir að þeir alþm. séu til að þeir vilji ekki íhuga það með velvild að íslenska ríkið kosti þá einhverju til þess að skáld okkar haldi reisn sinni með erlendum þjóðum.

Mér þykir afskaplega mikil lágkúra yfir því að kalla að maður sé ameríkaníseraður ef maður fer fram á það að íslenskt skáld, sem jafnframt yrkir á ensku t. d., fái rétt til þess að leggja þvílík verk fram til verðlauna Norðurlandaráðs. Ekkert er á móti því að verkinu sé jafnframt snúið á tungur Norðurlanda, nema síður sé. En ég spyr: Er það ósanngirni þá að segja að við ætlumst til þess þegar valið er verk vegna Norðurlandaverðlauna, ef markmiðið er að gefa sem flestum mönnum á öðrum Norðurlöndum kost á því að kynnast verkum íslenskra skálda, að þá sé valin þjóðtunga annarra Norðurlanda þegar snúið er?

Hvort skyldi nýnorska eða íslenska vera fjær manni sem býr á Jótlandi? Það væri skemmtilegt að þeir bókmenntasinnuðu menn sem eiga sæti í Norðurlandaráði gerðu nú könnun á því t. d. á Jótlandi hvort væri aðgengilegra fyrir hina jósku bændur skáldverk á færeysku, íslensku eða nýnorsku. Ætli það liggi alveg ljóst fyrir að nýnorskan sé miklu auðskildari á öðrum Norðurlöndum heldur en t. d. íslenskan? Maður sem ekki hefur kynnt sér það tungumál og á sæti í bókmenntaverðlaunanefnd Norðurlandaráðs, hefur ekki lesið bókmenntir á því tungumáli, er hann fær um að dæma um verk á því máli? Það leyfi ég mér að efast um. En þetta er nú samt það sem mér skilst að fulltrúar Íslands í Norðurlandaráði telji sæma.

Ég segi hér um íslenskuna: Tungan er torlærð. Þetta lagði hv. þm. svo út að ég segði að íslenskan væri torlærðari en aðrar þjóðtungur. Hvað er átt við þarna, um hvað er verið að tala? Það er verið að tala um það í þessu samhengi, því við erum að ræða um Norðurlandaráð, að sænskir, norskir og danskir menn eiga örðugra með að skilja íslensku til hlítar heldur en mál hvers annars. Hvort ætli norskur maður ætti auðveldara með að læra íslensku eða sænsku? Og hvort á danskur maður auðveldara með að skilja norsku eða íslensku? Og hver hefur reynslan orðið af þeim mönnum mörgum sem hér hafa sest að? Þeirra tök á íslenskunni eru mjög misjöfn. Ég held að það sé alveg óhætt að halda því til streitu að tungumál, sem hefur jafnmörg föll og hætti og íslenskan, sé forlært. Tunga, sem hefur jafnmikið af nýyrðum og lítið af alþjóðlegum orðum, er auðvitað torlærð. Annars mega menn svo sem leika sér með það hér í sölum og geta mín vegna talið að það sé þjóðremba að halda slíku fram.

Mikið kom það mér líka í opna skjöldu þegar hv. forseti Norðurlandaráðs segir að þessi setning í grg. sé ómaklega fram sett: „Þetta horfir öðruvísi við okkur Íslendingum. Dönsk tunga hefur aldrei fest hér rætur og enginn stafur er fyrir því að hún sé okkur tamari en t. a. m. enska, franska eða þýska, þó svo að við höfum deilt konungi með Dönum svo öldum skiptir.“

Hvernig getum við dæmt þetta? Eigum við að dæma þetta t. d. með því að leggja saman þann fjölda enskra, þýskra og franskra bóka sem seljast hér í bókabúðum og bera saman við fjölda þeirra dönsku bóka sem hér eru seldar í bókabúðum? Er það réttur mælikvarði? Ætli það sé nokkur hér inni sem þorir að fullyrða að sala á dönskum bókum sé meiri á Íslandi en t. a. m. sala á enskum bókum? Ég er ekki alveg viss um það. Og við lítum á skáld okkar, hvar hafa þau lært? Eru meiri menningartengsl í þeim skilningi milli Skandinavíu en t. d. enskumælandi þjóða, Þjóðverja og Frakka? Sum skáld okkar hafa dvalið langdvölum í öllum þessum löndum. Gluggi Íslands er ekki lengur Danmörk þó svo hafi verið í eina tíð. Það er liðinn tími og við skulum vona að sá tími komi aldrei aftur að Kaupmannahöfn eigi að vera eini gluggi Íslendinga.

Það er talað um hér að óþarft sé að flytja þessa till. þar sem Íslendingum sé heimili að leggja bókmenntaverk sín fram á íslensku. Það er auðvitað rétt, en í þeim skilningi að sú íslenska bók sé bara skrásett, vegna þess að þeir menn sem sitja í bókmenntaráði Norðurlanda eða verðlaunanefndinni geta ekki fjallað um hina íslensku þýðingu af þeirri einföldu ástæðu að það eru ekki nema sumir þeirra sem skilja hana. Þess vegna er þessi framlagning að meira eða minna leyti markleysa. Á hinn bóginn hlýtur tilgangurinn með þýðingunni á annað Norðurlandamál að vera sá að gefa þeim sem í Norðurlandaráði eiga sæti og eiga þar um að fjalla meiri möguleika til að skilja höfundinn út frá hans eigin skáldverkum. Og þess vegna hlýtur að koma mjög til álita fyrir okkur Íslendinga að gefa honum kost á því, þegar sérstaklega stendur á og hann getur fært rök fyrir sínu máli, að hann megi jafnframt leggja fram þýðingu á öðru máli en þessu, eigi annan kost en þennan þrönga kost einan.

Viðkvæmnin er svo mikil að jafnvel setning eins og þessi: „Ef þingmenn í Norðurlandaráði treysti sér ekki til að falla frá andstöðu sinni við íslenskuna“ er talin út í hött. Er íslenska töluð á þingum Norðurlandaráðs? Nei, hún nýtur ekki sama réttar og aðrar tungur. Og við verðum að sætta okkur við þetta vegna okkar fæðar. Það er allt annað mál. (GHelg: Þetta kallar hv. þm. andstöðu við íslenska tungu.) Ég kalla tóninn í ræðu þessa hv. þm. móðgandi fyrir íslensku þjóðina, sérstaklega þó tóninn í ræðu hans, fremur en akkúrat það sem hann sagði. Og ég sný ekki til baka með það (HS: Málhreimurinn.) Málhreimurinn, já. Hv. þm. hefur gott lag á því að setja á sig snúð líka í málinu og hljómnum. Það mátti vel heyra það hér áðan. Og það er það sem ég sagði og sný ekki til baka með vonbrigði mín yfir því að þessi hv. þm., sem jafnframt er rithöfundur sem hefur verið þýddur á aðrar tungur, skuli ekki hafa meiri skilning á þessu máli en fram kom í hans máli.

Ég tek hins vegar, eins og ég sagði áðan, undir með þm. um það að æskilegt sé að þessar bækur komi út á öðrum Norðurlandamálum og þá á ég auðvitað við þjóðtungurnar. En hvernig má það vera að þm. hér geti haldið því fram að það sé jafnvel erfiðara, ég man nú ekki hvor þessara hv. þm. sagði það, að það væri jafnvel erfiðara að fá góðan þýðara af finnsku á sænsku heldur en af íslensku á dönsku eða sænsku eða norsku? Skyldi þetta vera rétt? Skyldi það vera svo að það séu jafnmargir menn á Íslandi jafnvígir á íslensku og eitthvert þessara Norðurlandamála eins og menn í Finnlandi eru jafnvígir á finnsku og sænsku? Ætli það sé rétt hjá þeim? Eða er það kannske enn svo í Finnlandi að það séu ótalmargir, þó það sé ekki öll þjóðin, sem eru jafnvígir á þessar tungur báðar, finnsku og sænsku, sem auðvitað hlýtur að þýða það um leið að auðveldara er að fá góðan þýðara en ella, ég tala nú ekki um að fá mat á því hvernig til hefur tekist, eins og ég sagði áðan. Við getum kannske borið þetta saman við nýnorskuna enn. Ætli það séu fleiri menn á Íslandi sem kunna að meta bókmenntaþýðingar á nýnorsku ellegar Finnar í Finnlandi sem kunna að meta bókmenntaþýðingar á sænsku? Hvernig er hægt að halda því fram að við stöndum þeim jafnfætis að þessu leyti? Hvernig getum við haldið því fram líka gagnvart Færeyingum? Vitum við það ekki að dönsk tunga er þar í miklu meiri hávegum höfð heldur en hér og hin nánu tengsl landanna valda því að þar er líka um auðveldari samgang að ræða að þessu leyti.

Ég hef ekki mikla trú á því að það þýddi mikið fyrir okkur Íslendinga að ganga á milli annarra Norðurlandaþjóða og biðja þær að kosta fé til þess að þýða íslensk skáldverk á ensku eða þýsku eða frönsku. Ég ætla ekki að fara í þann betlitúr. Ég hef haldið því fram að við Íslendingar eigum að hafa efni á því sjálfir að sýna þeim skáldverkum og bókmenntaverkum fulla reisn og virðingu sem við veljum til bókmenntaverðlauna, þurfum enga hjálp frá öðrum þjóðum til þess að kosta það að slíkar þýðingar séu sæmilega vel úr garði gerðar og hef fullan sóma og fulla dirfsku til að segja, herra forseti, að við eigum að afþakka stuðning annarra þjóða við slíkt. Væri þá sómi okkar meiri ef við kostuðum að öllu leyti slíkar þýðingar sjálfir, létum ekki aðra menn horfa í kostnaðinn við það. Svona betlibaukatal í sambandi við íslenska menningu er ekki að mínu skapi.

Hv. 2. þm. Norðurl. v., forseti Norðurlandaráðs, las hér upp ályktun áðan þar sem Bandalag ísl. rithöfunda hafði ályktað á móti þessari tillögu. Nú vill svo til að einn þeirra rithöfunda sem greiddi atkvæði með þeirri samþykkt í stjórn Bandalags ísl. rithöfunda sagði við mig persónulega að hann væri sammála þessum tillöguflutningi. Veit ég nú satt að segja ekki hvoru ég á fremur að trúa, því sem manni er sagt eða hinu þegar menn rétta upp hendurnar innan um kannske menn sem hafa mikil áhrif. En á hinn bóginn gleymdi hv. forseti Norðurlandaráðs að geta þess að Alþingi hefur borist önnur ályktun frá Félagi ísl. rithöfunda sem beinir þeim tilmælum til hv. Alþingis að það samþykki till. til þál. um bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs þar sem kveðið er á um að reglum um bókmenntaverðlaunin verði breytt á þann veg að Íslendingar leggi fram bókmenntaverk sín á íslensku en að öðrum kosti sé þeim heimilt að leggja fram þýðingar á ensku, frönsku eða þýsku. Þannig að eitthvað eru nú skiptar skoðanir um þetta í hópi rithöfunda. Ég þarf ekki að taka það fram að úrvalsrithöfundar eru í báðum þessum samböndum sem valdir hafa verið til úthlutunar til bókmenntaverðlauna. Það þarf ekki um það að fjölyrða.

Ég bið hv. þm. afsökunar á því í sambandi við að sólin stafi geislum að ég skyldi í barnaskap mínum láta duga að athuga hvort sögnin að skrifa væri í daglegu máli til á dönsku eins og ég sagði. Ástæðan fyrir því að ég kannaði þetta ekki frekar var sú að ég sá ekki þennan umrædda sjónvarpsþátt. Ég heyrði einungis um þetta fjallað í þætti um íslenskt mál þar sem fram kom að sá sérfræðingur skildi ekki hvernig þetta orðasamband var hugsað, að sólin stafi geislum, skildi ekki orðið „sólstafur“og hélt að það þýddi sama og bókstafur, en það er annað mál. Ég biðst sem sagt afsökunar á því að kunna ekki nóg í norsku til þess að vita þetta. En í danskri tungu er þetta ekki til og það var það sem ég sagði og ástæðulaust að snúa út úr því.

Ég vil að síðustu, herra forseti, vænta þess að þrátt fyrir ummæli hv. 10. landsk. þm. Guðrúnar Helgadóttur, um það að sú nefnd sem fær þetta til skoðunar sinni ekki því verki, muni nefndin bera þá virðingu fyrir störfum Alþingis að hún taki það alvarlega að till. sé til hennar vísað og athugi málið eins og efni standa til. Það liggur fyrir að þetta mál er umdeilt. Það liggur jafnframt fyrir að einstakir þm., sem sæti eiga í Norðurlandaráði, hafa í fljótræði hlaupið þar fram á völlinn og verið með yfirlýsingar sem þeir hefðu betur látið ógert og ég veit að þeir muni sjá eftir að hafa gert þegar þeir íhuga málið betur. Á bak við þennan tillöguflutning er ekki nema þessi eina hvöt: að leita ráða til þess að íslensk skáld megi halda sóma sínum á erlendum vettvangi.

Ég ætla ekki að þreyta einhvern talnaleik um það hvort það sé stærðfræðilega rétt eða rangt að Íslendingar hafi fengið tvisvar sinnum verðlaun, Norðmenn þrisvar, Danir fimm sinnum og Svíar átta sinnum. Ég er ekki í neinum slíkum talnaleik. Ég hef ekki einu sinni látið hvarfla að mér að kvarta yfir því að við höfum fengið of oft þessi verðlaun, ekki heldur of sjaldan. Ég vil hins vegar vænta þess að þeir menn sem úthluta þessum verðlaunum geri það með bestu samvisku og ég veit að það er þeirra hagur og mundi auðvelda þeirra störf ef þau bókmenntaverk sem þangað er skilað eru í þeim búningi að þeir geti sem best áttað sig á innihaldi þeirra og gæðum, skilið höfundinn, einkenni hans og hvað hann hefur að flytja. Ég vona að þingið sjái sóma sinn í að hugsa málið út frá því sjónarmiði en ekki út frá einhverju barnalegu pexi einstakra þm. á fundi Norðurlandaráðs.