22.04.1985
Efri deild: 58. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4407 í B-deild Alþingistíðinda. (3693)
49. mál, vinnumiðlun
Félmrh. (Alexander Stefánsson):
Virðulegi forseti. Hér hafa tveir hv. þm. komið upp og rætt nokkuð um þetta frv. Ég verð nú að segja við hv. 8. þm. Reykv., að mér finnst hann taka nokkuð djúpt í árinni þegar hann segir að hér sé um vitlaust frv. að ræða þó um gott mál sé. Ég vænti þess að hv. þm. átti sig á því að hér er um frv. að ræða sem aðilar vinnumarkaðarins, fulltrúar sveitarfélaganna og sá aðili sem fer með atvinnuleysistryggingamál hafa samið í sameiningu og náð samkomulagi um að hér sé verið að gera það sem þörf er á á þessu sviði á breiðum grundvelli. Ég fullyrði að þessir aðilar, fulltrúar launþega, fulltrúar atvinnurekenda, fulltrúar sveitarfélaga og fulltrúi Atvinnuleysistryggingasjóðs, hafa lagt sig fram um að semja þetta frv., sem í engu hefur verið breytt frá þeirra tillögum, á þann veg að það spanni yfir það helsta sem nauðsynlegt er að sé bundið í lögum um þessi vinnuréttarmál. Ég vil einnig benda hv. þm. á að við erum líka bundin af samningi um hinn sameiginlega norræna vinnumarkað sem Ísland hefur gerst aðili að. Í okkar löggjöf þarf ýmsu að breyta svo að hægt sé að fullnægja þeim skyldum sem þar eru lagðar á herðar íslenskum stjórnvöldum, ekki síst á sviði vinnumiðlunar. Þetta er ákaflega mikilvægt mál og er ekki tími hér eða aðstæður til að skýra það nánar, en ég vil benda hv. þd. á það og hv. félmn. Ed. að að sjálfsögðu getur nefndin fengið allar upplýsingar frá þeim aðilum sem hér eiga hlut að máli til frekari útskýringar á þeim rökum sem liggja á bak við samningu þessa frv. og einstakra greina.
Síðasti hv. ræðumaður talaði hér um átthagafjötra í sambandi við það að reyna að stuðla að meiri hreyfanleika á vinnuafli hér á landi. Auðvitað er það alveg ljóst og sveitarfélögin hafa gert sér grein fyrir því að til þess að ná árangri á þessu sviði er brýn nauðsyn að geta haft meira samstarf og meiri hreyfanleika milli sveitarfélaga að því er varðar einmitt þetta verkefni, vinnumiðlun. Þar af leiðandi eru það sveitarfélögin sjálf sem leggja til þessa tilhögun með fullu samþykki launþegahreyfingarinnar í landinu. Hér er því ekki um neitt bull að ræða heldur þrauthugsað atriði til þess að ná fram árangri, en ekki nein hugmynd um að koma aftan að hlutunum og þvinga fram samruna sveitarfélaganna með þessu frv. Það er frjálst samstarf sveitarfélaga sem verið er að undirstrika í þessu sambandi. Að mati þeirra aðila sem að þessu frv. standa, sveitarfélaga og vinnumarkaðarins, er talin nauðsyn á því að ákvæði um þetta séu bundin í lögum, enda er málið mikilvægt.
Að því er varðar 17. gr., sem hv. 8. þm. Reykv. var að tala um, vil ég lesa hér skýringu á þeirri grein. Hún hljóðar svo, með leyfi virðulegs forseta:
„Skv. gildandi lögum er almenn vinnumiðlun í ágóðaskyni óheimil. Rétt þykir að takmarka bannið við einkaaðila en ráðherra verði heimilað að leyfa stéttarfélögum, félögum atvinnurekenda, svo og námsmannasamtökum, að annast vinnumiðlun fyrir skjólstæðinga sína enda sé það gert án endurgjalds og að fengnum meðmælum hlutaðeigandi sveitarstjórnar.
Tekið skal fram að bann við vinnumiðlun einkaaðila tekur ekki til þeirrar starfsemi sem færst hefur í vöxt að undanförnu að fyrirtæki, er annast ráðgjafarstörf, hafi með höndum ráðningarþjónustu til sérhæfðra starfa enda sé slík starfsemi rekin atvinnuleitendum að kostnaðarlausu.“
Ég held að þetta sé nægjanlegt svar við athugasemd hv. þm. um þetta atriði.
Af því að hv. 5. þm. Vesturl., sem er formaður félmn., kom hér inn á nokkur atriði vil ég ítreka það enn að ég vænti þess að hv. félmn., sem ég efast ekkert um að vill fara vandlega yfir þetta mál og fá allar upplýsingar, fái til viðræðu bæði einhverja þeirra sem sömdu frv. og eins fulltrúa rn. til þess að fara yfir einstök atriði svo að ekkert fari milli mála við hvað er átt í frv.
Hv. 5. þm. Vesturl. spurði sérstaklega um 3. og 4. gr., um ráðgjafarnefndina. Ráðgjafarnefndin er skipuð fulltrúum aðila vinnumarkaðarins, Sambands ísl. sveitarfélaga og Atvinnuleysistryggingasjóðs. Ég vil taka það fram vegna orða hv. 2. þm. Austurl. um sérstaka þjónustu fyrir fatlaða að ég hef ekkert á móti því að fulltrúar fatlaðra eigi aðild að ráðgjafarnefndinni. Ég viðurkenni þörfina á þeirri þjónustu og þó að gert sé ráð fyrir því að þau mál séu leyst á vegum yfirstjórnar um málefni fatlaðra skv. gildandi lögum þá má vel vera að fleiri aðilar geti átt fulltrúa í ráðgjafarnefndinni þó að nefndin sem samdi frv. eða félmn. Nd. vildi ekki bæta því hér inn í.
En í sambandi við það nýmæli að nefndin geti haft frumkvæði þegar gerðar verða áætlanir um aðgerðir sem hrinda megi í framkvæmd ef horfur eru á samdrætti eða breytingum á atvinnuháttum held ég að það hljóti að vera alveg ljóst að á þessu er nauðsyn og slíkt hlutverk sem þarna kæmi fram mundi leiða af sér hugmyndir sem yrði komið til stjórnvalda, því að ríkisstjórn á hverjum tíma þyrfti sennilega að grípa í taumana ef viðkomandi sveitarfélag eða það svæði sem í hlut ætti réði ekki við ástandið. Við höfum núna nýtt dæmi um þetta. Það er atvinnuleysið í Hafnarfirði. Sveitarstjórnin þar virðist eiga í erfiðleikum við að útvega vinnu fyrir á annað hundrað manns sem missa atvinnuna vegna þess að tiltekið fyrirtæki er ekki starfrækt. Þarna væri vissulega æskilegt að slíkur hópur sem hér er tilnefndur skv. 3. gr. hefði ákveðnar tillögur til að leysa vandann. Það má vel vera að stjórnvöld, ríkisstjórnin í þessu tilviki, ætti þá hægara með að framfylgja ákveðinni tillögu sem allir þessir aðilar hefðu komið sér saman um. En í öllu falli er þetta sett fram til þess að gera þessa stjórn virkari við að koma í veg fyrir atvinnuleysi á viðkomandi svæðum. Ég tel þess vegna mjög mikilvægt að ráðgjafarnefndin fái einnig þetta hlutverk ef á þarf að halda, og þess getur vissulega alltaf orðið þörf þó að þessi mál séu e. t. v. ekki mjög ofarlega í okkar hugum nú, þar sem tekist hefur að mestu leyti að forða atvinnuleysi frá þessari þjóð. Þó eru ýmis svæði sem eiga í sérstökum erfiðleikum og slík ráðgjafarnefnd gæti vissulega greitt götu þeirra og séð um að skynsamlega væri á málum tekið.
Ég veit ekki satt að segja hvort ég á að fara mikið út í umræður um þetta mál. Ég geri ráð fyrir að menn átti sig á því í sambandi við 7. gr. frv. að ekki er verið að breyta rétti einstaklingsins til atvinnuleysisbóta, heldur er verið að reyna að stuðla að því að eðlilegri hreyfanleiki verði milli atvinnusvæða heldur en nú er. Það er ákaflega óeðlilegt að ekki skuli vera möguleiki á því að færa vinnuafl til milli nærliggjandi byggðarlaga þegar skortur er á fólki í vissum atvinnugreinum á öðrum staðnum en fólk á atvinnuleysisskrá á hinum staðnum. Það er auðvitað nauðsynlegt að finna á þessu eðlilega lausn og ég trúi því að betra og markvissara skipulag á vinnumiðlun muni leysa úr þessu.
Það er best að aðrir en ég útskýri það fyrir hv. nefnd hvað er átt við með atvinnuleitendum og atvinnuumsækjendum. Um þetta atriði má sjálfsagt þrátta fram og aftur en ég held að það ætti ekki að þurfa miklar bollaleggingar til að skilja hvað þarna er átt við. Ég get ekki séð það. Auðvitað getur verið mismunur á þessu eftir eðli þeirrar atvinnu sem um er að ræða. Eins og hér hefur verið nefnt þá þurfi kannske að leita uppi sérstakar atvinnugreinar fyrir suma þeirra sem skortir atvinnu. Það má vel vera að það verði sérhæft atriði. Við getum tekið sem dæmi fatlað fólk. Það er ekki víst að þar dugi einföld umsókn. Það getur þurft að gera ráðstafanir til að leita að atvinnu fyrir slíkt fólk.
Ég sé ekki, virðulegi forseti, ásfæðu til að ræða þetta nánar. Ég vil aðeins segja það í sambandi við tölvuvæðinguna að ef málið væri svo einfalt að það dygði að kaupa ritvél eða eitthvað þess háttar, þá þyrfti þetta ekki að vera í frv. En tölvuvæðing í sambandi við vinnumiðlun er mjög mikilvægt mál og vandasamt og það verður ekki gert nema með samstarfi allra aðila. Það er einnig í því máli ákaflega vandmeðfarið atriði. T. d. er um vissar persónuupplýsingar að ræða sem þarf að setja ákveðnar reglur um. Ég tel þess vegna eðlilegt að vandað sé til allrar málsmeðferðar. Eftir þeim upplýsingum sem ég hef fengið frá fulltrúum rn., fulltrúum Reykjavíkurborgar og vinnumarkaðarins að dæma er hér um mikilvægt atriði að ræða og þetta snertir ekki hvað síst hið samnorræna samstarf um vinnumiðlun, sem ég minntist hér á áðan. Nýjustu tillögur sem eru að berast um þetta mál og nefndin getur að sjálfsögðu fengið upplýsingar um sýna glöggt hvað hér er um vandasamt atriði að ræða og mikilvægt.