22.04.1985
Efri deild: 58. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4416 í B-deild Alþingistíðinda. (3700)
209. mál, Verðlagsráð sjávarútvegsins
Kolbrún Jónsdóttir:
Virðulegi forseti. Hér sjáum við bragarbót á starfsháttum Verðlagsráðs sjávarútvegsins svo langt sem þetta frv. nær.
Ég vil ítreka skoðun mína varðandi 10. gr. frv. sem varðar yfirnefnd. Eins og hæstv. ráðh. kom að áðan varðandi oddamann yfirnefndar Verðlagsráðs tel ég algerlega óeðlilegt að með því móti að hann hafi atkvæðisrétt í þessari nefnd komi ríkisstj. beint inn í ákvörðun um verðlagningu á fiskafla. Hæstv. ráðh. sagði áðan að hér væri ekki um afskipti að ræða, heldur samráð. Við höfum orðið þess vitni á þingum, bæði fyrir ári og núna, að í kjölfar ákvarðana um verð á sjávarafla fylgja nokkur frumvörp um tilfærslur á milli sjóða og ýmsa hagræðingu, sem þeir telja vera, sem skerðir skiptahlut sjómanna. Ef þetta eru ekki afskipti stjórnvalda, hvað er það þá? Þetta er alltaf í beinu samhengi við verðákvörðun Verðlagsráðs. Í greinargerðum með frv. sem lögð hafa verið fram hefur komið fram að þetta væri vegna verðákvarðana Verðlagsráðs. Ég tel að tími sé kominn til þess að atkvæðið væri tekið af oddamanni og viðsemjendur fengju sér milligöngumann án atkvæðisréttar. Þrátt fyrir það teldi ég réttast að yfirnefndin yrði felld niður. Ég veit að margir telja að sé yfirnefnd felld niður verði Verðlagsráð óstarfhæft. Það er gengið út frá því að hagsmunir fiskvinnslunnar og útgerðarinnar geti alls ekki farið saman eða m. ö. o. að fiskvinnsla og útgerð geti ekki komist að samkomulagi nema hafa yfir höfði sér oddamann sem taki ábyrgð á þeim samningum sem gerðir eru. Það má með sanni segja að að óbreyttu fyrirkomulagi verðum við að taka þátt í þessum darraðardansi um ókomna framtíð.
Hæstv. ráðh. kom áðan að minni stöðum. Þar er jafnvel bara ein fiskverkunarstöð og tveir bátar sem leggja upp hjá sömu fiskverkunarstöðinni. Við vitum dæmi þess að þrátt fyrir að það sé bara ein fiskverkunarstöð á stað hefur viðkomandi fiskverkunarstöð borgað yfirverð fyrir fisk. Það er nefnilega nauðsynlegt fyrir fiskverkunarstöðvar að fá fisk. Það er engin ástæða til þess að ekki komi upp á borðið hvað er greitt mikið fyrir fiskinn. Séu borguð 10% ofan á fiskaflann kemur það ekki til skipta til sjómanna. Einnig er borgað undir borðið í veiðiútbúnaði sem fiskverkunarstöðin leggur til. Þar tíðkast viss yfirborgun líka. Þetta er látið viðgangast. Og við vitum að kvótinn er keyptur héðan og þaðan að. Borgar þá fiskverkunarstöðin jafnvel helming af því sem kvótinn kostar. Þannig eru yfirborganir með ýmsu móti. Ég tel að það eigi alfarið að vera í höndum fiskvinnslu og útgerðar hvernig viðskiptum er háttað og ríkisstj. eigi alls ekki að grípa inn í með einum eða öðrum hætti.