22.04.1985
Efri deild: 58. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4416 í B-deild Alþingistíðinda. (3701)
209. mál, Verðlagsráð sjávarútvegsins
Björn Dagbjartsson:
Virðulegi forseti. Aðeins örfá orð. Ég vil lýsa stuðningi mínum við þetta frv. sem mér sýnist í flestum atriðum vera til bóta frá þeim lögum sem gilda. Málefni Verðlagsráðs hafa svo sem áður borið á góma í þessari hv. deild og þá einkum og sér í lagi í sambandi við frv., sem hér var til umr. í vetur, um að fella skyldi niður ákvæði um yfirnefnd Verðlagsráðs.
Ég hef áður lýst þeirri skoðun minni að ég tel að það komi ekki til greina annað en að einhvers konar áfrýjunardómstóll sé fyrir hendi því að það fer auðvitað svo, eins og í vinnudeilum almennt, að menn ná ekki alltaf samkomulagi. Við vitum að jafnvel þó að ríkisstj. vilji ekki á hverjum tíma hafa nein eða sem allra minnst afskipti af vinnudeilum telur hún nauðsynlegt að skipa sáttasemjara. Hlutverk oddamanns Verðlagsráðs sjávarútvegsins er einmitt slíkt sáttasemjarastarf. Við þekkjum það líka að í kjölfar kjarasamninga á hinum almenna vinnumarkaði fylgja mjög oft frumvörp og ýmsar ráðstafanir sem ríkisvaldið telur sér skylt að gera og hefur reyndar fallist á að gera í þeirri umræðu sem átt hefur sér stað meðan á samningum stóð. Þessar lagabreytingar hafa verið gerðar til þess að liðka fyrir að samningar gætu tekist.
Ég vil sem sagt ítreka að það er að mínu viti ekki nokkur leið eins og er að komast hjá því að hafa einhvern áfrýjunardómstól. Mín vegna mætti það vera oddamaður frá Hæstarétti eða hvaðan sem er, en til einhvers dómstóls verður að vera hægt að skjóta því máli þegar ekki næst samkomulag um fiskverð, svo mikið er í húfi fyrir íslenskan þjóðarbúskap og almenning í landinu.
Það er eitt atriði í þessu frv. sem ég hef aðeins velt fyrir mér hvernig skyldi framfylgt. Það segir hér í 8. gr.: „Jafnframt skal Verðlagsráð haga verðákvörðunum sínum þannig að þær stuðli að bættri meðferð afla“. Nú verðleggur Verðlagsráð fisk eftir gæðum hans. Það getur verið erfitt, þó það sé framkvæmanlegt, að fylgja því eftir að verðákvörðun fyrir fram skuli stuðla að bættri meðferð afla. Verðmunur á gæðaflokkum er að sjálfsögðu mál út af fyrir sig. Ég er aðeins að velta því fyrir mér hvernig þessu atriði skuli framfylgt með öðrum leiðum en auðvitað hefur alltaf verið, að verðmunur er á fiski eftir gæðum og það hefur verið á ýmsa vegu, en stundum mikill verðmunur.