22.04.1985
Neðri deild: 59. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4441 í B-deild Alþingistíðinda. (3723)
423. mál, viðskiptabankar
Guðmundur Einarsson:
Herra forseti. Eins og komið hefur fram í máli manna er þetta stór og mikill bálkur sem hér er um að ræða. Ég á sæti í þeirri nefnd sem mun fjalla um það og ætla ekki að gera það allt að umtalsefni. Ég ætla að gera að umtalsefni reyndar eitt sem ég tel vera nokkurt undirstöðuatriði. Það er spurningin: Á Alþingi að kjósa í stjórnir, svo sem bankaráð? Á Alþingi yfirleitt að koma þar nokkuð nærri? Í öðru lagi þá getum við spurt hver reynslan sé af þeim dæmum sem við höfum séð undanfarin misseri og undanfarnar vikur reyndar, hver reynslan sé af því að Alþingi geri það. Er Alþingi, með því að kjósa í svona stjórnir, hreinlega að búa til fylgsni fyrir sérhagsmunapot og fyrir sérstakar lífskjarabætur og sérstaka hákjarabaráttu fyrir ákveðnar stéttir? Nýlega var launaaukinn til umræðu, nú annað nýtt dæmi um það hvað gerist inni í þessum fylgsnum. Það var birt í blöðum hér fyrir helgi. Þar var rætt um lífeyrismál bankastjóra. Það kemur í ljós að það er ekki nóg að hafa sérstök kjör fyrir þá með bílana, heldur virðist óumflýjanlegt að bankastjórar njóti alveg sérstakra vildarkjara í sambandi við lífeyrismál, kjara sem eru alveg dæmalaus og fáheyrð og hefur ekki neins staðar birst réttlæting fyrir.
Ég hef farið fram á það við hæstv. ráðh. að hann svari þeirri spurningu hvers vegna ekki gildi einfaldlega sömu reglur um lífeyrismál bankastjóra ríkisbankanna og annarra starfsmanna bankanna. Hann mun væntanlega veita mér þær upplýsingar sem hann hefur. En ég hef auk þess lagt fram um þetta formlega fsp. sem verður svarað skriflega.
Ef við gerum 9. gr. að umtalsefni, þar sem rætt er um ríkisviðskiptabanka og bankaráð, þá vil ég aftur víkja að þessari spurningu hvort Alþingi á yfirleitt að vera að kjósa í stjórnir fyrirtækja, hvort sem það eru bankar eða önnur. Menn geta spurt: Hvernig eiga stjórnmálaflokkar að koma stefnu sinni fram við stjórn fyrirtækja almannaveldisins? Það er í raun og veru ósköp einfalt mál. Það er með setu í ríkisstjórn, það er með þátttöku í framkvæmdavaldi. Fyrir því er séð í uppbyggingu okkar kerfis. Ríkisstjórnin hefur síðan þau afskipti af fyrirtækjum í eigu almannavaldsins sem hún telur þurfa. Alþingi á ekki að kjósa stjórn eða ráð fyrir fyrirtæki sem eru í eigu þessa valds. Ef nauðsynlegt er á annað borð að hafa sérstaka stjórn eða röð þá á ráðherra að skipa viðkomandi stjórn. Þess vegna kæmi til greina að viðskrh. hreinlega skipaði bankaráð.
Menn geta líka spurt hvort ekki sé hreinlega ástæða til að sleppa einhverju af þessu stjórna- og ráðafargani, spyrja einfaldlega: Þarf bankaráð? Til hvers að vera með bankaráð? Hvað eru þessi bankaráð yfirleitt að gera? Það sem hefur heyrst af afrekum þeirra undanfarið er ekki beinlínis til að vera mjög hreykinn yfir. Getur ekki bankamálaráðherra skipað bankastjóra og þeir yrðu síðan ábyrgir gagnvart honum? Til hvers að vera með þessi bankaráð? Alþingi á alls ekki að kjósa bankaráð eða stjórnir annarra fyrirtækja. Alþingi getur haft eftirlit með því að lögum sé framfylgt. Það hefur eftirlit með því annaðhvort með fastanefndum sínum eða það getur gert það að sérstökum verkefnum starfsnefnda. Um það eru reglur í þingsköpum og þannig á þetta að gerast. Með því að flokkarnir eru sjálfir að kjósa fulltrúa sína í ráð og stjórnir þá verða þessir flokksfulltrúar sjálfvirkir eftirlitsmenn flokkavaldsins og þeir koma í veg fyrir eðlilegt eftirlit flokksbræðra sinna í miklu fleiri tilfellum en að þeir tryggi eftirlit. Það er slæmt og það er óeðlilegt og ég fullyrði að það er beinlínis rangt að hlutaskipti í kosningum til löggjafarvalds séu framlengd út í alls kyns starfsemi ríkisvaldsins. Það á ekki að vera svo. Sú starfsemi er á ábyrgð ríkisstj. Hún á að sjá um að sú starfsemi fari fram skv. lögum en hún á að öðru leyti að hafa aðstöðu til þess að framfylgja stefnu sinni með starfsemi þessara fyrirtækja og þar eiga engir aðrir að vera að þvælast fyrir. Þetta er einfalt mál.
Við höfum séð hvernig t. d. þingskipuð bankaráð verða hreinlega hluti af valdakerfi embættis- og flokkaveldis. Þessi bankaráð spyrja ekki spurninga t. d. um þann hroka þessa toppliðs eða toppstöðumannanna bæði í flokkunum og kerfinu sem eru svo sannfærðir um eigið ágæti að þeim kemur aldrei til hugar að lífskjör þeirra eigi á einhvern hátt að vera sambærileg við lífskjör annarra opinberra starfsmanna. Og hvers vegna spyrja þessi bankaráð ekki þessara spurninga? Vegna þess að þau eru sjálf angi af því hagsmunakerfi stjórnarflokkanna sem vill hafa þetta svona. Menn geta spurt hvort þeir Tómas Árnason og Lárus Jónsson fyrrv. alþm. og hv. þm. Stefán Valgeirsson hafi beitt sér eitthvað sérstaklega fyrir því að sérréttinda- og bitlingakerfi kringum bankastjóralaun sé afnumið. Og hugsi nú bara hver fyrir sig.
Málið er nefnilega það að um þetta hefur ríkt mesti einhugur í öllum flokkum, ekki kannske síst vegna þess að í þeim öllum eru menn sem vona að einhvern tíma takist þeim kannske sjálfum að njóta þessara sömu forréttinda þegar flokkurinn þeirra kemst í þá aðstöðu að vippa þeim inn fyrir þetta gullna hlið eins og sálinni forðum, vippa þeim inn fyrir gullna hliðið inn í þetta himnaríki allsnægtanna og bílapeninganna og sérstöku eftirlaunakjaranna og risnureikninganna. Það skyldi þó ekki vera að einhvers staðar á bak við heilakornið í þeim sé sú hugsun að einhvern tíma fái þeir að njóta þessa sjálfir og því sé ekki ástæða til þess að ganga grannt eftir því að þessu sé breytt til réttlætis og einhvers jafnaðar.
Okkur hefur á undanförnum vikum, eins og ég sagði í byrjun, borist ýmislegt til eyrna um fyrirkomulagið í þessu ágæta himnaríki. Og það er athyglisvert að það var ekki fyrir forgöngu alþm. í leit að sannleika. Það var fyrir forgöngu blaða, fyrst NT um bílamálin og síðan Helgarpóstsins núna fyrir helgina. Það voru blaðamenn NT sem sögðu frá bílamálinu, máli sem í raun og veru ekkert gerðist í annað en það að breytt var um gengi á nákvæmlega sömu hlunnindum.
Og nú síðast eru það upplýsingar frá því á fimmtudaginn úr Helgarpósti um lífeyriskjör bankastjóra sem menn geta velt fyrir sér. Þar kemur fram að í Seðlabanka tekur ekki nema tólf ár að ná ellilífeyrisaldri, fullum eftirlaunaaldri. Þar eru menn fljótir að eldast. Þeir eru svolítið lengur að eldast í öðrum bönkum, þar þurfa þeir að vera í fimmtán ár til þess að ná 90% eftirlaunum, fimmtán ár. Það er ekki að furða þó að þá langi héðan suma um fimmtugsaldurinn, kannske búnir að vinna sér inn hér full lífeyrisréttindi, að þá langi að komast nógu snemma inn fyrir gullna hliðið til þess að eiga von í öðrum fullum réttindum áður en yfir lýkur.
Og svo er gert svo rausnarlega við þá að þeir þurfa ekki einu sinni að greiða sjálfir iðgjaldið, 4% iðgjaldið sem venjulegt fólk þarf að borga. Þetta er til samanburðar fyrir aðra starfsmenn í bönkunum sem þurfa að vinna 35 ár til þess að ná 70% lífeyri. Ætli það sé ekki eðlilegur öldrunarprósess hjá venjulegu fólki þó að allt annað virðist þurfa að gilda um bankastjórana? Hann er athyglisverður þessi litli bitlingur um 4% iðgjaldið. Athugum bara hvað það þýðir í peningum. Ef mánaðarlaun bankastjórans eru 70 þús. kr. þá er honum gefið þarna aukalega 2800 kr. á mánuði. Þetta eru 34 þús. kr. á ári. Litlar, sakleysislegar fjórar prósentur, litla sakleysislega 4% ákvæðið, það skilar aukalega eins og tvennum mánaðarlaunum láglaunafólksins. Okkur eru að birtast ýmsar undursamlegar sýnir úr þessu himnaríki sérhagsmunapotsins.
Svo er spurning: Hvað ætli kæmu mörg laun í ljós ef við fengjum að kíkja á risnureikningana? Utanlandsferðir, matarpeninga, rekstur á ýmsu — kannske persónulegu lífi. Hver hefur eftirlit með þessum risnureikningum? Væri ekki ráð að spyrja t. d. endurskoðendur bankans og biðja þá að sýna og segja okkur hvað er á þessum reikningum? Ég held að það sé fullkomin ástæða til þess að fara að velta því fyrir sér hvað gerist fyrir innan þetta gullna hlið.
Ég hef beint fsp. til hæstv. viðskrh. um hverjar séu ástæður þess að bankastjórar ríkisbankanna njóti ekki sams konar lífeyrisréttinda og aðrir starfsmenn bankanna. Ráðherra hefur tjáð sig fúsan til að gefa þessar upplýsingar, þ. e. gefa munnlega þær upplýsingar sem hann hefur haft tíma til að afla síðan fyrir helgi. Fyllri upplýsingar munu menn væntanlega fá við formlegri fsp. minni sem ég hef borið fram og hef óskað skriflegs svars við. Ég hef ekki komið auga á neina réttlætingu þess að semja um einhver sérstök lífeyrisréttindi fyrir tiltekna starfsmenn þessarar þjóðar. Þeir eiga að eldast á sama hraða og við hin. Og það sama gildir um alþm.
Ég held að þessar spurningar eigi fyllilega rétt á sér í þessari umræðu. Þegar við erum að afgreiða svona bálka, sem eru með ákvæðum um það hvernig við viljum skipa stjórnir og þess háttar, þá ber okkur skylda til þess að velta því fyrir okkur hvort Alþingi hafi hingað til með lagasetningu sinni og muni kannske enn með þessu frv. — einn ganginn enn — búa til skjól fyrir sérhagsmunapot, búa til fylgsni þar sem sérstakra lífskjara er aflað fyrir sérstakar, tilteknar stéttir. Sú almenna guðrækna hugsjón að það sé betra eftirlit með þessum stofnunum með því að allir fái að pota þar inn sínum manni virðist a. m. k. ekki hafa verkað til batnaðar í sambandi við bankaráðin. Það er kannske fróðlegt að velta því fyrir sér hvort þeir vilji ekki helst vera þar allir til þess að geta hver lagt höndina á öxlina á öðrum og tryggt samtrygginguna. A. m. k. fannst Sjálfstfl. einhverra hluta vegna endilega, þurfa að tryggja Alþfl. sæti í bankaráðinu fyrir jól. Kerfið fór á taugum þegar það kom í ljós að Alþfl. hafði ekki kjörfylgi til þess að koma að manni sínum í bankaráð fyrir jólin. Og af hverju mátti þá ekki lúta því lýðræðislega lögmáli að Alþfl. hefði einfaldlega misst sinn mann? Af hverju mátti ekki sú lýðræðislega niðurstaða koma fram að Alþfl. missti sinn mann í bankaráði? Hvers vegna gekk maður undir manns hönd í marga daga í öllum skúmaskotum þingsins og í öllum reykfylltu kontórunum að koma kratanum einhvern veginn inn? Var það ekki af því að þeir eru ánægðastir þegar þeir eru þarna allir, vegna þess að þeir eru vissir um það að einhvern tíma tekur einhver sálina þeirra, eða þeir vona að einhvern tíma taki einhver sálina þeirra og reyni að henda henni inn fyrir þetta gullna hlið?