22.04.1985
Neðri deild: 59. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4444 í B-deild Alþingistíðinda. (3724)
423. mál, viðskiptabankar
Viðskrh. (Matthías Á. Mathiesen):
Herra forseti. Hér hafa farið fram allítarlegar umræður um það frv. sem lagt hefur verið fram af ríkisstj. og varðar viðskiptabanka. Ég er að sjálfsögðu reiðubúinn að gefa frekari upplýsingar eftir því sem eðlilegt getur talist þegar 1. umr. fer fram, en ég vek athygli á því að ég mun að sjálfsögðu beita mér fyrir því að fjh.- og viðskn., sem fær þetta frv. væntanlega til meðferðar, fái öll þau gögn sem óskað hefur verið eftir. Margt af því er með þeim hætti að eðlilegt er að nefndin fái það til umfjöllunar en að sjálfsögðu er ekkert úr vegi að þm., sem óska eftir því, fái sömu gögn til þess að geta gert sér grein fyrir því sem hér er til meðferðar.
Í ræðu hv. 3. þm. Reykv. Svavars Gestssonar komu fram nokkuð margar spurningar. Sumar hverjar eru þess eðlis að ég tel rétt að þær fái umfjöllun í nefndinni, en sumt er þess eðlis að það er að sjálfsögðu rétt að gera því nokkur skil hér. Hann vék sérstaklega að ábyrgðum í sambandi við hlutafélagabankana og hvernig tryggingar kæmu þar til. Að sjálfsögðu er það bankanna sjálfra, þ. e. hlutafélagabankanna, að annast um þá hluti og það er nokkuð svipað sem gildir um sparisjóðina og hefur gilt frá því að viðkomandi lög voru sett 1941. Að vísu er sú stofnun sem þar er um að ræða, Tryggingarsjóður sparisjóða, ekki eins öflug og vera skyldi og einmitt í því frv. sem nú er í undirbúningi eða í lokavinnslu í rn. er gert ráð fyrir því að efla þann sjóð til tryggingar fyrir þá aðila sem viðskipti hafa við sparisjóðina.
Hv. þm. spurði: Hvers vegna skyldi heimili og varnarþing vera í Reykjavík en ekki t. d., eins og hann orðaði það, „í kjördæmi ráðherra“ og nefndi þar Kópavog. Hér er sjálfsagt um það að ræða að Reykjavík er höfuðborg landsins og um er að ræða stofnanir sem koma til með að hafa viðskipti vítt um heim og enda þótt ég viti að Reykjaneskjördæmi er þekkt töluvert út fyrir landsteinana þá á ég hins vegar ekki von á því að það sé svo þekkt. Hins vegar er það að sjálfsögðu fyrst og fremst stofnunin sem skiptir máli og þegar hún einu sinni hefur aflað sér þess trausts sem þarf þá skiptir það kannske ekki neinu máli, en hér er um að ræða hefð sem sjálfsagt byggist á því að hér er um höfuðborgina að ræða.
Hér er fyrst og fremst um að ræða bankalöggjöf um ríkisbanka og um hlutafélagabanka til þess að það liggi alveg ljóst fyrir hvers konar ábyrgð er á viðkomandi banka og að ekki séu um það neinar efasemdir af hálfu þess sem við hann þarf að skipta að hann geti gert sér grein fyrir hver er staða viðkomandi banka, séð það af þeim gögnum sem fyrir liggja.
Hv. þm. spurði enn fremur um hömlur í sambandi við hluti og vék þá sérstaklega að Alþýðubankanum og hvernig til hans hefði verið stofnað. Þetta er ábending sem mér finnst að þurfi að skoða með hvaða hætti skuli með fara og þegar til þess kemur, þannig að upprunalegur tilgangur geti nokkuð haldið sér. Það er hins vegar ákaflega erfitt að setja slíkar undanþágur og það sem hér er fyrst og fremst verið að gera er að verið er að setja almenn lög og þá að það séu engar hömlur á því hvernig er farið með hlutaféð.
Í því sem hv. þm. vék að var m. a. spurt um bankaráð ríkisbankanna og kosningu formanns þar. Hér er að mínum dómi um að ræða atriði sem sett yrði að sjálfsögðu í reglugerð viðkomandi banka og gæti hvort heldur verið að aðalfundur bankans kysi formann eða að reglugerð bankans gerði. ráð fyrir því að bankaráðið sjálft veldi sér formann. Það er hins vegar svo varðandi bankaráð ríkisbankanna að viðskrh., sem fer með bankamálin, velur formann og skipar hann.
Þá ræddi hv. þm. um launamál bankaráðanna og benti á leið til þess að menn þyrftu ekki að standa eilíflega í því að ákveða þar laun þeirra. Það vill svo til að þannig voru laun bankaráða ríkisbankanna síðast ákveðin. Þau eru ákveðin prósenta af launum bankastjóra í dag, ég held ég fari rétt með, 8%. Hér er um að ræða leið sem farin hefur verið og því eðlilegt að skoðað verði hvort það verður lögfest eða ekki.
Í sambandi við 21. gr. frv. vék hv. þm. að því sem þar er sagt, að bankaráð mótar almenna stefnu bankans í vaxtamálum. Hann orðaði það svo að rn. hefði smyglað þessu orði, almenna, inn frá þeirri tillögu sem bankamálanefnd gerði, og vitnaði til ábendingar sem kom frá einum bankanum, þannig að ljóst væri hvaða ákvörðun það væri sem bankaráðin tækju í vaxtamálum. Hins vegar væri það á valdi bankastjórnar hvernig útfærslan á vaxtamálunum yrði innan þess ramma sem bankaráðin settu.
Mér sýnist — og þess vegna er þetta orð tekið inn — eðlilegt að það séu bankaráðin sem móti almenna stefnu í vaxtamálum. Síðan geta komið fyrir einstök tilvik í þeim efnum sem þeir aðilar sem fara með þessi mál dagsdaglega eru betur að sér í og taki þá þar lokaákvörðun. Ég held að hér sé fyrst og fremst um það að ræða að reynt er að haga lagasetningunni með þeim hætti að samstarfið á milli bankaráða og þeirra sem stjórna stofnununum á hverjum degi, bankastjóranna, geti gengið eins lipurlega og mögulegt er og bankaráðin haft það vald sem eðlilegt er að þau hafi þar.
Þá má einmitt í þessu tilfelli víkja að því sem kom töluvert fram hjá hv. 4. landsk. þm.: bankaráðin kosin af Alþingi, bankaráðin ekki kosin af Alþingi, en inn á þau mál hefur nokkuð verið farið að undanförnu. Til hvers skyldi bankaráð kosið af Alþingi? Það er til þess að það séu fulltrúar kosnir af löggjafarsamkomunni sem fylgjast með starfsemi bankanna. Ég held að hugsunin þar hafi í upphafi verið og sé enn að þar sé um að ræða eftirlitsaðila þeirrar stofnunar sem löggjöfina setur. Það má svo vera spurning hvort og hversu mikið vald slík stjórn skal hafa eins og bankaráðin. Niðurstaðan hlýtur að verða það sem Alþingi vill hverju sinni þegar löggjöf er til meðferðar og metur þá hvert á að vera valdsvið bankaráðanna.
Þá hefur verið vikið að því hvort bankaráðin eigi að taka ákvörðun um launakjör bankastjóra og komið fram hugmyndir um að eðlilegt væri að taka þetta vald úr höndum bankaráða og fela það þeirri stofnun sem kveður á um launakjör fjölmargra af embættismönnum þjóðarinnar. Enn fremur hefur komið fram sú hugmynd, sem er í lögunum um Búnaðarbanka Íslands, að bankaráðin fari með þetta vald með samþykki ráðherra. Þetta verður að sjálfsögðu á valdi Alþingis þegar um þessi mál verður fjallað og þá hvort og með hvaða hætti verði fjallað um þessi mál.
Eitt atriðið enn kemur upp í sambandi við þetta nú. Það er varðandi lífeyrismál ríkisbankastjóranna og um það spurt af hv. 4. landsk. þm. og lögð fram af honum skrifleg fsp. Enn fremur vék hv. 2. landsk. þm. að þessu atriði líka, hvers vegna ekki gilda sömu reglur um lífeyrismál ríkisbankastjóra og annarra bankastarfsmanna. Um þetta hafa gilt reglur allt fram að síðustu áramótum og þær grundvallaðar á því að ekki væri talið rétt að bankastjórar væru aðilar að lífeyrissjóði bankastarfsmanna, hverjar svo sem forsendur þeirrar ákvörðunar á sínum tíma voru. Það var hins vegar tekin ákvörðun um það á síðasta ári í bankaráði Seðlabanka Íslands að við ráðningu nýs bankastjóra skyldu gilda þær reglur að hann yrði aðili að lífeyrissjóði starfsmanna Seðlabanka Íslands.
Forsendurnar fyrir þessu eru ævagamlar og erfitt sjálfsagt að draga þær fram í dagsljósið á svo skömmum tíma sem hér um ræðir, eða frá því að hv. 4. landsk. þm. vék að þessu við mig. En ég ákvað í morgun að eðlilegast væri að þessi mál yrðu öll skoðuð í heild, þ. e. launakjör og fyrirkomulag þeirra hjá ríkisbankastjórunum, auk þess sem ég taldi eðlilegt að mér yrðu gerðar tillögur um það með hvaða hætti þetta yrði í framtíðinni. Til þess að gera þessar athuganir, athuga og meta launakjör og fyrirkomulag þeirra hjá ríkisbankastjórunum og jafnframt gera tillögur að þeim reglum sem þetta skyldi fara eftir í framtíðinni hef ég fengið Baldur Möller, fyrrum ráðuneytisstjóra. Vænti ég þess að ég hafi þar fengið góðan aðila til að skoða þessi mál og gera mér síðan grein fyrir þeim. Þegar hans grg. liggur fyrir er ekkert því til fyrirstöðu að Alþingi fái allar þær upplýsingar og niðurstöður og þá liggi fyrir hvernig þessi mál hafa kannske um áratuga skeið verið, í hverju það er fólgið, og menn geti þá áttað sig á því hvernig staða þeirra er í dag.
Ef ég vík að nokkrum atriðum til viðbótar sem komu fram hjá hv. 3. þm. Reykv., þá vék hann að þeirri heimild sem í frv. er gert ráð fyrir, að heimilaðar verði skrifstofur erlendra banka. Ég met svo að nú sé mjög vafasamt að slíkt væri heimilt. Hins vegar tel ég eðlilegt að það sé heimilt og þess vegna er það í þessu frv. Við getum svo haft á því skiptar skoðanir hvort við teljum þetta eðlilegt eða ekki, rétt eða ekki, en þar sem ég met svo að það eigi að vera heimilt þá tel ég að það þurfi að vera óumdeilanlegt í lögum.
Þá var vikið að ákvæðinu um skyldu um lágmarksprósentu af eiginfjárstöðu. Ef skoðaðar eru þessar tölur þá fæ ég þær upplýsingar frá bankaeftirlitinu að ríkisbankarnir hafi allir eiginfjárstöðu yfir 5% miðað við áramótin síðustu. Að vísu er mér tjáð að um bráðabirgðatölur sé að ræða, þær séu að vísu ekki endanlega komnar. Varðandi hlutfall eigin fjár, sem bundið er í varanlegum rekstrarfjármunum hjá viðskiptabönkum og 18 stærstu sparisjóðunum, þá vísa ég til þess svars sem kom fram hér á þingi í mars og hv. 2. landsk. þm. vék að áðan, og var svar við fsp. hv. þm. Um er að ræða að nokkrir bankar eru töluvert fyrir ofan 65% markið en að sjálfsögðu verður þeim í bráðabirgðaákvæði gert mögulegt að koma stöðu þessara mála á réttan veg á ákveðnu tímabili. Þessar skýrslur, miðað við nýjustu reikninga um áramót, verða að sjálfsögðu lagðar fyrir fjh.- og viðskn. þegar þær liggja fyrir.
Hv. 3. þm. Reykv. spurði í sambandi við erlendu bankana og umboðsskrifstofur þeirra hvort reglur væru fyrir hendi. Því er til að svara að þær hafa ekki verið samdar. Öðruvísi verður því ekki svarað.
Fjölmargar aðrar spurningar bar hv. 3. þm. Reykv. fram og mun ég að sjálfsögðu leitast við að þeim verði svarað og upplýsingar í sambandi við þær lagðar fyrir fjh.- og viðskn., þannig að þær geti þar allar fram komið. Í lok ræðu sinnar vék hv. þm. að þeim atriðum í frv. sem hann taldi sérstaklega andstæð skoðunum sínum og þær eru að sjálfsögðu hans. Ég skal ekki hér og nú fara að svara þeim. Það eru skoðanir sem hann hefur fyrir sig í málinu. Ég legg hins vegar fram frv. eins og það er og mínar skoðanir um hvernig til þessa skuli stofnað koma þar fram.
Í fjh.- og viðskn. verða að sjálfsögðu lagðar fram tillögur bankamálanefndarinnar og umsagnir viðskiptabanka og Seðlabanka eftir því sem ástæða er til að dómi nm. og með samanburði geta menn áttað sig á því hverjar þær breytingar eru sem hér hafa verið gerðar.
Hv. 2. landsk. þm. vék einmitt að því sama og ég svaraði hér áðan, varðandi hlutfall eigin fjár og enn fremur eiginfjárstöðu bankanna sem ég hef svarað. Hv. þm. spurði enn fremur hverjar skoðanir ráðherra hefði á því að í löggjöf væru sett ákvæði þar sem bundið væri hve mikið mætti lána einstaklingum eða fyrirtækjum, eins og er í sparisjóðafrv. Þetta eru atriði sem að mínum dómi koma til skoðunar. Ég hef ekki sjálfur mótaðar skoðanir um hver slík prósenta ætti að vera, hver slík krónutala ætti að vera, en vel má hugsa sér að hægt sé að komast að niðurstöðu um hver prósenta, hver krónutala væri hin eina sanna og rétta. Hins vegar hefði ég talið að slíkar reglur gæti bankaráð að sjálfsögðu sett ef það teldi rétt að setja þær. Bankaráðið er, eins og ég gat hér um áðan og allir vita, umboðsaðili Alþingis til þess að fylgjast með í sambandi við stjórnun þessara stofnana.
Þm. spurði um — (Forseti: Ég þarf að spyrja hæstv. ráðh. hvort hann sé á leið að ljúka máli sínu. Nú er venjulegur fundartími liðinn.) Það eru nokkur atriði eftir sem skal ekki taka mig nema svona fimm, sex mínútur að ljúka.
Ég skal þá svara hv. 2. landsk. þm. varðandi bankaeftirlitið. Frv. um Seðlabankann er í lokayfirferð í rn. Þar verður gerð grein fyrir tillögum um bankaeftirlit og ég á von á því að þær tillögur sem þar koma fram verði með þeim hætti að þingið geti fallist á þær. Ég geri ráð fyrir því að frekar verði hert á bankaeftirlitinu en að reynt verði að minnka það.
Varðandi upplýsingaskylduna sem hér var vikið að af hv. 3. þm. Reykv. líka varðandi frv. Kjartans Ólafssonar og þau lög sem samþykkt voru að frumkvæði hv. 2. landsk. þm. þá er gert ráð fyrir því eins og fram kemur í frv. að sú upplýsingaskylda sem var lögfest verði tekin upp í reglugerðir sem settar verði fyrir bankana. Það er því ekki ætlunin að hverfa frá því sem þar var gert.
Hér vék hv. 2. landsk. þm. að launaauka. Að mér skilst hefur ekki verið greiddur launaauki í Búnaðarbankanum. Í Landsbankanum var það látið ganga til baka sem gert hafði verið. Það sem búið var að gera í Útvegsbankanum var stöðvað. Í Seðlabankanum var breytingin, eftir því sem ég best veit, að hluta til komin til framkvæmda en var stöðvuð um leið og óskað var eftir því.
Síðan spurði hv. þm. um afstöðu ráðherra til bílafríðinda og frv. sem er í Ed. Ég áskil mér rétt til þess að lýsa skoðunum mínum í þeim efnum þegar málið verður til umræðu hér í Nd. þar sem ég á sæti. Þetta er atriði sem er í athugun hjá þeirri nefnd sem forsrh. hefur haft til að vinna að þessum málum.
Hv. 3. þm. Norðurl. e. kom hér inn á nokkur atriði. Hann sagðist ekki telja rétt að þetta frv. yrði afgreitt öðruvísi en að seðlabankafrv. kæmi. Það verður lagt fram innan mjög skamms tíma og einnig frv. um sparisjóði þannig að þm. eiga að geta haft þessi mál öll til meðferðar á sama tíma.
Þá nefndi hv. þm. það að hann teldi ekki rétt að afgreiða þetta mál öðruvísi en að fyrir lægi vitneskja um sameiningu banka. Það tel ég hins vegar ekki vera að öllu leyti sambærilegt því að hér er verið að leggja til að setja almenna löggjöf um viðskiptabanka ríkisins og hlutafélagabanka og skiptir þá ekki máli hvað þeir heita og hvort þeir eru einn, tveir eða þrír. Þetta eru almenn lög. En hv. þm. hafði eftir mér að ekki stæði til að leggja niður Útvegsbankann og þá væru ekki nema tveir ríkisbankar eftir sem um væri að ræða. Ég orðaði það svo í þeirri yfirlýsingu sem ég gaf að ekki stæði til að leggja niður neina bankastarfsemi Útvegsbankans. Ég hefði óskað eftir því að sú nefnd sem dr. Gylfi Þ. Gíslason fyrrv. ráðh. veitir forustu gerði tillögur um fækkun og stækkun banka en ekki að nein bankastarfsemi yrði lögð niður.
Ég vonast til þess að ég hafi svarað þeim atriðum sem helst var ætlast til hér og nú. Ég geri mér grein fyrir því að það er margt sem fram kom, sér í lagi í ræðu hv. 3. þm. Reykv., sem við gætum rætt um frekar en ég ætla ekki að svo komnu máli að tefja umræður lengur. Ég ítreka það sem ég sagði í upphafi að ég legði til að að lokinni þessari umræðu yrði frv. vísað til fjh.- og viðskn. Ég mun beita mér fyrir því að sú nefnd fái allar þær upplýsingar sem hægt er að veita og fyrir liggja til þess að hægt sé að fá greiða afgreiðslu á þessu frv.