22.04.1985
Neðri deild: 59. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4449 í B-deild Alþingistíðinda. (3728)

237. mál, Lífeyrissjóður bænda

Fjmrh. (Albert Guðmundsson):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til l. um breyt. á lögum nr. 50 frá 1. júlí 1984, um Lífeyrissjóð bænda. Frv. þetta hefur þegar hlotið eðlilega meðferð í hv. Ed. þingsins, var samþykkt þar óbreytt.

Á síðasta þingi voru samþykkt ný heildarlög um Lífeyrissjóð bænda, lög nr. 50 frá 1984. Í athugasemdum er fylgdu frv. til þeirra laga kom fram að eðlilegt þætti að bíða með tillögur um fjármögnun útgjalda samkv. II. kafla laganna þar til ljóst yrði hvað yrði um hliðstæð réttindi samkv. lögum um eftirlaun til aldraðra. Hér er um að ræða fjármögnun á lífeyrisgreiðslum til þess hóps aldraðra bænda sem veitt eru lífeyrisréttindi umfram það sem þeir hafa áunnið sér með iðgjaldagreiðslum.

Á haustþingi lagði heilbr.- og trmrh. síðan fram frv. um breyt. á lögum um eftirlaun til aldraðra þar sem gert er ráð fyrir fimm ára framlengingu á þeim lögum, þannig að þau gildi til ársloka 1989. Var það frv. samþykkt hér á Alþingi og birtist sem lög nr. 117/1984. Er frv. það sem hér er til umræðu flutt í tengslum við þessa breytingu á lögunum um eftirlaun til aldraðra.

Þegar lög um Lífeyrissjóð bænda voru sett árið 1970 var kveðið svo á að útgjöld vegna réttinda samkv. II. kafla laganna skyldu til ársloka 1985 borin að hluta til af Stofnlánadeild landbúnaðarins og að hluta af ríkissjóði. Þegar sérstök verðtrygging eftirlaunagreiðslna samkv. lögum um eftirlaun til aldraðra félaga í stéttarfélögum kom til sögunnar árið 1976 tók Lífeyrissjóður bænda á sig útgjöld vegna hliðstæðrar verðtryggingar lífeyrissjóðsgreiðslna samkv. II. kafla laga sjóðsins. Vegna aldursskiptingar bænda urðu þessi útgjöld sjóðnum afar þungur baggi. Með áðurnefndum lögum nr. 97/1979, um eftirlaun til aldraðra, var þeirri skipan komin á að Lífeyrissjóður bænda skyldi eins og aðrir lífeyrissjóðir leggja fram skv. þeim lögum 5% af iðgjaldatekjum sínum, en á hinn bóginn skyldu útgjöld til hinnar sérstöku uppbótar á lífeyri samkv. II. kafla laga sjóðsins greidd með framlagi samkv. 25. gr. laga nr. 97/1979.

Í frv. þessu er lagt til að tímabundin ákvæði laganna um Lífeyrissjóð bænda um fjármögnun útgjalda samkv. II. kafla laganna og verðbætur á lífeyri verði framlengd til ársloka 1989, en samkv. núgildandi lögum rennur gildistími þessara ákvæða út ýmist í árslok 1984 eða 1985. Að hluta eru breytingar þessar bein og sjálfsögð afleiðing af framlengingu ákvæðanna um framlög samkv. 25. gr. laga um eftirlaun til aldraðra. Þá er í frv. lagt til að ákvæðum um viðmiðunarlaun þau sem eru grundvöllur lífeyrisréttinda verði breytt með hliðsjón af breyttum aðstæðum.

Herra forseti. Ég tel ekki þörf á að fjölyrða frekar um efni þessa frv., enda er það í raun fylgifiskur þegar samþykkts frv. um framlengingu ákvæða um eftirlaun til aldraðra. Ég legg því til að frv. verði vísað til hv. fjh.- og viðskn. og 2. umr. að þessari umr. lokinni.