22.04.1985
Neðri deild: 59. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4453 í B-deild Alþingistíðinda. (3735)
165. mál, sláturafurðir
Landbrh. (Jón Helgason):
Herra forseti. Frv. þetta er flutt til staðfestingar á brbl., sem útgefin voru 17. júlí á síðasta ári, um það að undanþágu mætti veita til sláturhúsa enda þótt þau uppfylltu ekki ýtrustu kröfu eins og gert er ráð fyrir í lögum og reglugerðum. Því miður eru enn þá mörg sláturhús þannig að þau uppfylla ekki þessar kröfur og það hefur ekki tekist á síðustu árum að bæta svo úr að ekki þurfi lengur á slíku ákvæði að halda.
Hv. Ed. hefur afgreitt þetta frv. og í stað þess að í brbl. var gert ráð fyrir að þessi undanþága skyldi gilda til ársins 1985 var lagt til að hún gildi til 1. júní 1986. Það má segja að það sé rökrétt að hafa þann tíma það langan vegna þess að ég hef skipað þriggja manna nefnd til þess að athuga stöðu og möguleika sláturhúsanna í samræmi við þál. frá Alþingi. Ég vænti þess að hún muni vinna að því máli nú á næstunni og úttekt á því ætti að liggja fyrir á næsta hausti. Þá mundi Alþingi taka afstöðu til málsins á ný.
Ég vil svo leggja það til að að lokinni þessari umr. verði frv. vísað til 2. umr. og hv. landbn.