30.10.1984
Sameinað þing: 11. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 591 í B-deild Alþingistíðinda. (374)
79. mál, raforkuverð á Íslandi
Fyrirspyrjandi (Eiður Guðnason):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir svör hans sem voru skýr og skilmerkileg þó að þau væru nokkuð í aðra veru en ég átti von á. Satt að segja kemur mér það mjög á óvart hvernig staðið hefur verið að þessu máli. Þetta er mikilsvert mál sem menn voru sammála um hér á Alþingi í fyrra að nauðsyn bæri til að fá svör við, þ.e. hvernig raforkuverð myndaðist hér á landi og hverjar orsakir lægju til þess að það væri svo mjög miklu hærra en víða annars staðar. Ég er satt að segja mjög hissa á því að hæstv. iðnrh., sem ég veit að er áhugamaður um það að vilji þingsins nái fram að ganga í hverju máli, skuli ekki hafa rekið tryppin betur í þessu máli en raun ber vitni.
Nú má vera svo, sé honum unnt sannmælis, að hann hafi ekki fengið við þessu gert og ekki fengið rönd við reist hvernig hér fór. En það ber að láta í ljós þá von að þessi nefnd sem nú hefur loks tekið til starfa, skili niðurstöðum. (Iðnrh.: Fyrir áramótin.) Mér þykir vænt um að heyra það. Hæstv. iðnrh. skýtur hér inn í umr. að þessi nefnd ljúki störfum fyrir áramót og þá verður Alþingi væntanlega og almenningi öllum gerð grein fyrir störfum nefndarinnar. En það er gagnrýni vert hve hér var illa af stað farið eða hve illa tókst til með þetta mál sem varðar svo miklu. Ég ætla ekki að hafa um það fleiri orð, en læt í ljós þá von að niðurstöður þessarar nefndar megi liggja hér fyrir og verða kynntar eigi síðar en um áramót og ítreka þakkir mínar til hæstv. ráðh. fyrir þessi svör hans.