22.04.1985
Neðri deild: 59. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4456 í B-deild Alþingistíðinda. (3745)
207. mál, afréttamálefni
Frsm. (Stefán Valgeirsson):
Herra forseti. Á þskj. 715 er nál. frá landbn. þar sem fram kemur að n. hafi sent frv. til umsagnar öllum sýslunefndum og búnaðarsamböndum í landinu og bárust umsagnir sem fólu í sér ábendingar sem nefndin hefur að sumu leyti tekið til greina. Nefndin leggur til að frv. verði samþykkt með breytingum sem eru á sérstöku þskj. Einn nm., Jón Baldvin Hannibalsson, var fjarstaddur við afgreiðslu málsins.
Á þskj. 716 eru nokkuð margar brtt. frá landbn. Aðalbreytingin er sú, að það er gengið út frá því að þeir sem eiga búfé geti notað sama markið á allan sinn búpening ef markið er þannig að þeir vilja það. Þá er gert ráð fyrir því að það verði að veruleika að markaskrá verði tölvuunnin. Er heimild í þessu frv. um að Búnaðarfélag Íslands athugi um að framkvæma það mál. Ég sé raunar ekki ástæðu til að vera að lesa upp brtt. sem eru nokkuð margar, en þetta er aðalbreytingin. Það mætti kannske nefna að ein af þessum breytingum er sú að frostmerkingar verði löggiltar sem eðlileg merking.
Að öðru leyti sé ég ekki ástæðu til að vera að lesa upp brtt., en ef hv. þm. vilja einhvers spyrja er sjálfsagt að svara spurningum þar að lútandi.