22.04.1985
Neðri deild: 59. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4459 í B-deild Alþingistíðinda. (3749)

245. mál, lánsfjárlög 1985

Fjmrh. (Albert Guðmundsson):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til lánsfjárlaga fyrir árið 1985 eins og það er eftir 3. umr. í hv. Ed.

Í des. s. l. lagði ég fram fjárfestingar- og lánsfjáráætlun fyrir árið 1985. Í kjölfar þess var frv. til lánsfjárlaga lagt fram og mælti ég fyrir því í lok janúar s. l. Því miður tókst ekki að leggja fram frv. til lánsfjárlaga í kjölfar fjárlagafrv., en því olli mikil óvissa um efnahagsþróunina, m. a. vegna kjarasamninga og nauðsynlegra ráðstafana sem þeim tengdust. Mun ég nú víkja að nokkru að stöðu efnahagsmála eins og talið er að þau muni þróast á árinu 1985. Þá mun ég fara nokkrum orðum um afkomu ríkissjóðs á árinu 1984, en hér á Alþingi hefur verið dreift skýrslu fjmrh. um afkomu ríkissjóðs 1984 sem fjárlaga- og hagsýslustofnun hefur tekið saman. Að síðustu mun ég gera nokkra grein fyrir þeim breytingum sem lánsfjárlagafrv. hefur tekið í meðförum Ed.

Margt bendir nú til þess að samdráttarskeiðið, sem hófst 1982, sé á enda. Bráðabirgðaniðurstöður um þjóðarhag á árinu 1984 benda til þess að þjóðarframleiðsla hafi aukist um 2.5% frá fyrra ári. Neyslu- og fjárfestingarútgjöld þjóðarinnar jukust einnig og er talið að það hafi verið rúmlega 3%. Atvinnuleysi landsmanna var ekki teljandi, verðbólga var lægri en um langt árabil og breyting á kaupmætti ráðstöfunartekna á mann á milli ára 1983 og 1984 óbreytt.

Ekki voru þó allir þættir efnahagsmálanna jafnákjósanlegir, síður en svo. Viðskiptahalli þjóðarbúsins út á við var um 4.1% milljarður kr., en það jafngildir um 6% af þjóðarframleiðslu ársins. Umtalsverður viðskiptahalli ár eftir ár leiðir til þess að erlendar skuldir hlaðast upp eða gjaldeyrisforði minnkar.

Þegar ríkisstj. glímdi við það verkefni að marka stefnu í efnahagsmálum fyrir árið 1985 voru aðstæður að ýmsu leyti óvenjulegar. Verkföllin í október gerðu það að verkum að mjög erfitt var að spá fyrir um þróun verðlags og raunverulegs kaupmáttar. Fjárlögin í ár bera þess merki að leitast er við að draga sem mest úr neyslu hins opinbera til að rýma fyrir öðrum þörfum. Sama má segja um lánsfjáráætlunina. Ríkisstj. hefur leitast við af fremsta megni að draga úr fjárfestingum til að takmarka erlendar lántökur. Það fer ekki hjá því að skuldastaða landsmanna er mjög mikið áhyggjuefni.

Þjóðhagsstofnun spáir því nú að þjóðarframleiðslan muni aukast um 1/2%–1% á árinu 1985. Þó að þetta sé ekki mikill vöxtur verður að telja þetta merki um að landsmönnum sé að takast að komast yfir erfiðasta hjallann í efnahagsmálum. Viðskipti þjóðarinnar út á við eru þó ekki álitin snúast til betri vegar svo að um muni 1985. Þrátt fyrir aðhaldsstefnu í opinberum fjármálum er talið að viðskiptahallinn geti orðið um 5.2% af vergri þjóðarframleiðslu á árinu, en það jafngildir um 4700 millj. kr. Hjá því getur ekki farið að útilokað er að reka þjóðarbúið til lengdar með miklum árlegum halla við útlönd, enda er það eitt mikilvægasta verkefni okkar að takmarka erlendar lántökur 1985 og hemja skuldirnar. Ég nefni það hér að viðskiptahallinn var 10% 1982, 2.4% 1983 og um 6% 1984 eins og ég hef áður getið um.

Það kom fram í fjölmiðlum ekki alls fyrir löngu að afkoma þjóðarbúsins 1984 var heldur betri en spáð hefði verið. Þetta á einnig við um ríkissjóð. Fyrir nokkru var dreift á borð þm. skýrslu fjmrh. um afkomu ríkissjóðs 1984. Ég tel ekki ástæðu til að rekja innihald skýrslunnar, en vil þó benda á nokkur meginatriði.

Fjárlögin fyrir 1984 voru afgreidd á Alþingi með 389 millj. kr. rekstrarhalla. Ekki bætti úr skák að þegar ég lét endurmeta stöðu ríkissjóðs í apríl/maí 1984 var talið að það stefndi í enn meiri halla ef ekki yrði gripið til aðgerða í ríkisfjármálum. Endurmat ríkisfjármálanna sýndi að rekstrarhalli gæti numið allt að 2 milljörðum kr. Í framhaldi af þessu beitti ríkisstj. sér fyrir allumfangsmiklum aðgerðum í ríkisfjármálum og lánsfjármálum í maí 1984. Með þeim aðgerðum var talið að halli ríkissjóðs yrði um 1 milljarður kr.

Þegar upp var staðið um s. l. áramót reyndist 783 millj. kr. rekstrarafgangur. Þessa bættu stöðu má þakka tvennu: Fyllsta aðhaldi var beitt í útgjöldum á árinu og leitast var við að ná samvinnu við ráðuneyti og stofnanir um aðhald og sparnað. Hitt er svo það, að innflutningur og velta urðu meiri síðari hluta árs en reiknað hafði verið með sem leiddi til þess að tekjur ríkissjóðs af tollum og veltusköttum fóru fram úr áætlun. Kjarni málsins er þó sá að ríkisfjármálin drógu úr þeirri eftirspurn og þenslu sem ríkti í efnahagsmálunum síðari hluta síðasta árs.

Bættur hagur ríkissjóðs varð til þess að það tókst að draga úr erlendum lántökum hins opinbera. Í fjárlögum ársins 1984 var stefnt að 1 milljarði 533 millj. kr. lántöku ríkissjóðs, en með lögum um ráðstafanir í ríkisfjármálum, lánsfjárlögum o. fl. var lántökuheimildin hækkuð í 2 milljarða 385 millj. kr. Hagstæð afkoma ríkissjóðs gerði hins vegar kleift að draga úr lántökum og nýta aðeins 1 milljarð 937 millj. kr. af lántökuheimildinni. Erlendar lántökur námu alls 1 milljarði 605 millj. kr. Þar af voru 145 millj. vegna yfirtöku ríkissjóðs á erlendu láni Járnblendifélagsins til að uppfylla hlutafjárloforð ríkissjóðs í samræmi við 1. gr. laga nr. 95 frá 1984. Innlend fjáröflun ríkissjóðs nam aftur á móti 332 millj. kr., en það er verulega minna en að var stefnt vegna mikils útstreymis á spariskírteinareikningum sem ég gerði sérstaklega grein fyrir þegar ég mælti fyrir lánsfjárlagafrv. Í árslok 1984 reyndust um 600 millj. kr. ónýttar af lántökuheimild A-hluta ríkissjóðs.

Ekki ætla ég að ræða frekar afkomu ríkissjóðs á árinu 1984. Aftur á móti vísa ég til III. og IV. kafla skýrslunnar þar sem gerð er sérstök grein fyrir skuldastöðu ríkissjóðs og lánsfjármálum 1984 í heild. Auk þess er í skýrslunni að finna ýmsar upplýsingar um ríkisfjármálin undanfarin ár samanborið við árið 1984.

Fjh.- og viðskn. Ed. hefur að undanförnu fjallað um lánsfjárlagafrv. fyrir árið 1985. Í meðförum nefndarinnar hefur frv. tekið nokkrum breytingum sem rekja má að hluta til ríkisstjórnarákvörðunar og að hluta til ákvarðana nefndarinnar.

Lánsfjáráætlun 1985 gerði ráð fyrir að heildarfjáröflun næmi alls 9 milljörðum 868 millj. kr. Þar af var ráðgert að 2568 millj. kr. öfluðust innanlands og 7300 millj. kr. erlendis. Skömmu eftir framlagningu lánsfjáráætlunar voru fjárlög afgreidd á Alþingi og fól sú afgreiðsla í sér að erlend lánsfjárþörf A- og B-hluta ríkissjóðs hækkaði um 302 millj. kr.

Eins og frv. liggur nú fyrir frá Ed. stefnir í að erlendar lántökur nemi alls 7 milljörðum og 69 millj. kr. og hinar innlendu 2393 millj. kr. Samtals er því áformað að afla alls tæpra 9.5 milljarða kr. í lánum. Eftir umræður í marsmánuði í ríkisstj. var ákveðið að beita sér fyrir lækkun á erlendum lántökum, m. a. með samdrætti í framkvæmdum. Lántökuheimild A-hluta lækkar því um 750 millj. kr. Er þessi lækkun talin fær með samdrætti og sparnaði á öllum sviðum ríkis og með bættri framkvæmd og eftirliti með skattamálum.

Miklar umræður hafa verið um framkvæmdir Landsvirkjunar. Ákveðið er að fresta framkvæmdum við 5. áfanga Kvíslaveitna auk þess sem dregið er úr framkvæmdahraða við Blönduvirkjun án þess að útiloka gangsetningu 1. vélar virkjunarinnar 1988 eins og núverandi verkáætlun miðar við. Landsvirkjun mun taka að láni 1 milljarð 36 millj. kr. 1985, auk þess sem sótt er um heimild til 82 millj. kr. viðbótarlántöku takist samningar um stækkun álversins í Straumsvík.

Mikil óvissa ríkti um fjármál Byggingarsjóðs ríkisins. Því leggur ríkisstj. til að leitað verði 403 millj. kr. viðbótarlántökuheimildar um töku erlends láns, en sýnt þykir að lántökur hjá lífeyrissjóðunum muni ekki verða þær sem að var stefnt. Hér skortir á 175 millj. kr. og að auki eru horfur á að skyldusparnaður ungmenna verði neikvæður um 40 millj. kr., en í upphaflegri áætlun var ekki gert ráð fyrir greiðsluskyldu frá Byggingarsjóði.

Á árslok 1984 skuldaði Byggingarsjóður ríkissjóði og Seðlabankanum 188 millj. kr. og er óhjákvæmilegt annað en að breyta þessari skuld í lán eigi áætlanir ársins 1985 að standast.

Ný áætlun um skuldabréfakaup lífeyrissjóðanna hefur nú verið gerð. Nú er áætlað, miðað við óbreytta reglu, að um 34% af ráðstöfunarfé sjóðanna renni til skuldabréfakaupa af opinberum lánasjóðum. Reynsla s. l. ára sýnir að ekki er varlegt að áætla mikið umfram 32–34% til þessara kaupa að óbreyttum reglum. Þessi staðreynd hefur óhjákvæmileg áhrif á fjármál Byggingarsjóðs ríkisins og við hana þarf að horfast í augu.

Af öðrum breytingum sem fram eru komnar í Ed. vil ég nefna ábyrgðarveitingu ríkissjóðs á 500 millj. kr. lántöku til þróunarfélagsins. Lög um félagið hafa enn ekki verið sett. Að sinni munu þeir fjármunir, sem til þróunarfélagsins eru ætlaðir, renna í Framkvæmdasjóð Íslands, en færast til félagsins þegar búið er að stofnsetja það. Ríkisstj. mun ráðstafa því fjármagni. Ég legg jafnframt til að mjög vandlega verði gætt að arðsemi þeirra verkefna sem fjármagn þetta er ætlað til.

Annað atriði sem ég vil vekja sérstaka athygli á eru ríkisábyrgðir svonefndra raðsmíðaskipa. Þetta er mál sem ég hef sérstaklega látið kanna. Áætla má að heildarsmíðakostnaður allra fimm skipanna nemi um 600 millj. kr. Skv. 31. og 32. gr. lánsfjárlaga 1984 er fjmrh. heimilt að ábyrgjast lán með sjálfskuldarábyrgð til smíði þessara skipa, allt að 80% smíðaverðs. Þetta eru því um 480 millj. kr. Ríkisábyrgðin á síðan að falla niður við sölu skipanna frá skipasmíðastöðvunum og liggur ekki fyrir hvort þessi skip seljast. Að vísu er eitt skipanna selt. Það er skip smíðað á Seyðisfirði. Það sem er mun alvarlegra mál er að það liggur fyrir af hendi sjútvrh. að skip þessi muni ekki fá veiðileyfi nema skip svipaðrar stærðar hverfi úr rekstri, en þó telur sjútvrh. að athuga þurfi hvort hægt sé að nýta skip þessi til veiða á vannýttum fiskistofnum, svo sem til rækjuveiða.

Ég hef látið kanna hvort Fiskveiðasjóður sé tilbúinn til þess að fjármagna þessa smíði að því marki sem almennt gerist. Svar liggur ekki fyrir. Þá liggur fyrir að Byggðasjóður hefur ekki gert ráð fyrir að veita lán til þessara skipakaupa í áætlunum sínum í ár þrátt fyrir loforð um að lána til þessa verkefnis skv. stjórnarsamþykkt sjóðsins á árinu 1983.

Til þess að afgreiðsla lánsfjárlaga tefjist ekki umfram það sem þegar er get ég fallist á heimildargrein þess efnis að fjmrh. geti ábyrgst með sjálfskuldarábyrgð þessa smíði, þó þannig að fjmrh. ákveði nánar framkvæmd lagagr. þessarar með reglugerð. En ég legg ríka áherslu á að þeir aðilar, aðrir en ríkissjóður, sem lögum skv. veita fyrirgreiðslu til skipakaupa, afgreiði lánsumsóknir til fyrrgreindra skipa á hefðbundinn hátt, en ríkissjóður sitji ekki uppi einn með allt málið í kjöltu sinni.

Að lokum vona ég að afgreiðslu Alþingis á máli þessu verði hraðað því að það fer að koma mörgum mjög illa sá dráttur sem á þessu máli hefur orðið. Auk þess undirstrikar málsmeðferðin öll nauðsyn þess að tengja fjárlög og lánsfjárlög og umfjöllun þeirra betur en nú er gert.

Að lokinni þessari umr. leyfi ég mér að gera það að tillögu minni að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.