23.04.1985
Sameinað þing: 73. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4488 í B-deild Alþingistíðinda. (3763)

385. mál, úrbætur í sjávarútvegi á Suðurnesjum

Sjútvrh. (Halldór Ásgrímsson):

Herra forseti. Áður en ég svara þessari fsp. vildi ég aðeins segja nokkur orð um þær umræður sem orðið hafa út af sölu skipa frá Suðurnesjum.

Hv. fyrirspyrjandi nefndi áðan að það hefðu verið seld fiskiskip af þessu svæði sem fylgt hefði 8–10 þús. tonna aflakvóti. Það eru þær upplýsingar sem við gjarnan heyrum þegar rætt er um mál þessi bæði hér og í fjölmiðlum. Ég bað því um að fá um það nákvæmar upplýsingar hvaða skip það væru sem seld hafa verið frá Suðurnesjum, hvaða aflakvóta þau hefðu haft og hvaða skip hefðu verð keypt inn á þetta svæði.

Þau skip sem voru seld á árinu 1984 voru: Gulltoppur GK 32, 21 brúttólest; Mars KE 197, 78 brúttólestir; Arnarborg KE 26, 71 brúttólest; Særún KE 248, 8 brúttólestir; Ingólfur GK 42, 348 brúttólestir; gamall síðutogari, Pétur Ingi KE 32, 214 brúttólestir; Hafrenningur GK 38, 296 brúttólestir; Búðanes GK 101, 64 brúttólestir; Arnar KE 360, 16 brúttólestir; Oddur Jónsson GK 59, 11 brúttólestir; Erlingur GK 6, 299 brúttólestir; Jarl KE 31, 207 brúttólestir.

Samkvæmt þeim upplýsingum sem ég hef fengið hafa þessi skip haft samtals 5020 lesta þorskígildi. Eitt veiddi úr sameiginlegum kvóta smábáta, tvö höfðu síldarleyfi, eitt skip humarleyfi og eitt rækjuleyfi.

Á móti voru keypt inn á svæðið 1984: Garðar GK 141, 101 brúttólest; Arnar KE 260, 36 brúttólestir; Geir KE 67, 29 brúttólestir; Fagranes GK 171, 18 brúttólestir; Víðir KE 4, 6 brúttólestir; Hrappur GK 89, 11 brúttólestir; Gullþór KE 87, 42 brúttólestir.

Þessi skip höfðu samtals 1108 þorskígildi. Eitt skip hafði humarleyfi og eitt rækjuleyfi.

Á árinu 1985 voru seld af svæðinu: Sigurpáll GK 375, 20 brúttólestir; Hafsteinn KE 85, 8 brúttólestir; Símon Gíslason KE 155, 64 brúttólestir; Sandafell GK 82, 185 brúttólestir, sem trúlega var nú farið eitthvað fyrr af svæðinu þó að endanlega hafi verið gengið frá sölu væntanlega 1985; Smári GK 81, 11 brúttólestir.

Þessi skip höfðu samtals í þorskígildum 1653 þorsklestir. Eitt skip hafði síldarleyfi og eitt rækjuleyfi.

Á árinu 1985 hafa, eftir því sem best er vitað, verið keypt eftirfarandi skip: Lilli Lár, 9 brúttólestir; Hafborg KE 85, 11 brúttólestir; Hafliði GK 140, 10 brúttólestir; Harpa GK 111, 144 brúttólestir; Víðir KE 101, 11 brúttólestir; Akurey SF 52, 86 brúttólestir; Gissur hvíti SF 55, 185 brúttólestir; Barðinn RE 243, 131 brúttólest.

Samtals höfðu þessi skip 2271 lest í þorskígildum. Tvö hafa síldarleyfi og eitt humarleyfi.

Ef litið er á þorskígildi eingöngu fylgdu bátum seldum frá Suðurnesjum 1984 5020 lestir en til Suðurnesja 1984 1108lestir. Frá Suðurnesjum 1985 1653 lestir og til Suðurnesja 1985, það sem vitað er um enn þá, 2271 lest. Þessum skipum hafa því fylgt burt af svæðinu ríflega 3000 lestir nettó sem virðist einkum mega rekja til þess að tveir togarar, annar síðutogari, hafa farið út af svæðinu vegna þess að viðkomandi aðilar hafa ákveðið að hætta útgerð.

Þá má einnig nefna það að rækjuveiði á Eldeyjarsvæðinu hefur verulega aukist, um allt að helming, þannig að þar hefur komið afli til viðbótar á þessu svæði. Það er að sjálfsögðu nauðsynlegt að hafa upplýsingar sem þessar við höndina þegar menn fullyrða að 8–10 þús. lestir hafi horfið burt af svæðinu. Ég tel þær fullyrðingar beinlínis rangar og villandi og þessar upplýsingar ættu að gefa miklu betri mynd af því ástandi sem fyrir er, án þess þó að ég sé á nokkurn hátt að segja að það sé viðunandi. Ég geri mér fullkomlega grein fyrir því að miklir erfiðleikar eru víða í sjávarútvegi á Suðurnesjum.

Fyrsta spurning hv. fyrirspyrjanda er á þessa leið: „Er sjútvrh. reiðubúinn til þess að gera sérstakar ráðstafanir sem verða megi til að endurbæta og endurreisa rekstur sjávarútvegsgreina á Suðurnesjum með hliðsjón af því uggvænlega ástandi sem þar ríkir í þessum efnum?“

Það er alveg ljóst að það er víðar en á Suðurnesjum sem eru erfiðleikar í sjávarútvegi og það er erfitt að hugsa sér alveg sérstakar ráðstafanir sem þar geti orðið til endurbóta. Hins vegar hefur forsrh. farið þess á leif við Framkvæmdastofnun ríkisins að framkvæma sérstaka úttekt á þessum málum sem geti þá orðið til hliðsjónar við ráðstafanir í þessu sambandi. Það er alllangt síðan hæstv. forsrh. fór þess á leit við Framkvæmdastofnunina og hún vinnur nú að athugun á þessu ástandi.

Í öðru lagi: „Er ráðherra tilbúinn til að úthluta, vegna þeirrar óskar sem fram hefur komið, viðbótarkvóta til þeirra skipa sem gerð eru út af svæðinu og hafa þá hliðsjón af þeim samdrætti í veiðikvóta sem rekja má til sölu margra öflugra fiskiskipa frá Suðurnesjum að undanförnu?“

Svarið við þessu er einfalt. Það er nei. Ég tel að það séu engar heimildir fyrir því að auka kvóta annarra skipa þótt ákveðin skip hafi verið seld í burtu.

Í þriðja lagi: „Er ráðherra reiðubúinn til þess að leita leiða til að koma á miðlun afla til þessa svæðis frá stöðum sem ekki ráða við þann afla sem á land berst nema fá til erlent vinnuafl?“

Ég get svarað þessu einnig einfaldlega með einu neii. Mér er ekki kunnugt um að til séu slíkir staðir sem ráða ekki við þann afla sem á land berst. Það er fyrst og fremst spurningin um að viðkomandi byggðarlög nái þeirri stjórn á veiðarnar að þær dreifist eðlilega yfir árið. Það er vissulega nauðsynlegt á nokkrum stöðum að fá erlent vinnuafl, það er rétt. Það er hins vegar nauðsynlegt til þess að ná fullri nýtingu í viðkomandi húsum og fiskvinnslustöðvum. Ef afli þessara staða eða þessara húsa minnkaði verulega mundi það leiða til óhagkvæms reksturs, tapreksturs. Það mundi því á engan hátt leysa málið. Það hefur oft verið rætt um að miðla afla með stjórnvaldsaðgerðum. Ég er ekki trúaður á slíkt. Ég tel hins vegar að það hafi átt sér stað mjög góð samvinna víða á landinu, bæði á Suðurnesjum og í Reykjavík og Hafnarfirði, um miðlun afla. Fjarlægðir á þessu svæði gefa mikla möguleika til aflamiðlunar, hvort sem um er að ræða Reykjanes, Þorlákshöfn, Reykjavík eða Hafnarfjörð. Möguleikar til aflamiðlunar á þessu svæði eru mun meiri en annars staðar. Það gerist hins vegar ekki með beinum afskiptum rn. Það gerist með samkomulagi manna í milli, viðkomandi útvegsmanna og fiskverkenda.