23.04.1985
Sameinað þing: 73. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4495 í B-deild Alþingistíðinda. (3774)

395. mál, framleiðslustyrkir til kartöfluverksmiðja

Fyrirspyrjandi (Eiður Guðnason):

Herra forseti. Ég vil bara vekja athygli á þeirri yfirlýsingu sem formaður Sjálfstfl. flutti hér áðan. Hún staðfestir það að Sjálfstfl. er orðinn hluti af þessari fyrirgreiðslupólitík og fyrirgreiðslukerfinu, sjóðasukkinu og óráðsíunni sem hefur jafnan loðað við hinn stjórnarflokkinn öllu frekar. Þessi yfirlýsing formanns Sjálfstfl. er mjög merkileg og sýnir að hann og hans flokkur er ekki fylgjandi þeirri frjálsu samkeppni og því frelsi í viðskiptalífinu, því frelsi fyrir neytendur sem stundum er látið í veðri vaka.