23.04.1985
Sameinað þing: 73. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4500 í B-deild Alþingistíðinda. (3782)

432. mál, hörpudisksmið í Breiðafirði

Sjútvrh. (Halldór Ásgrímsson):

Herra forseti. Hörpudisksmiðunum í Breiðafirði er skipt niður í fjögur veiðisvæði. Á undanförnum árum hefur langmestur hluti veiðanna farið fram á svæðum sem eru nefnd 1, 2 og 4 enda gera stofnmælingar ráð fyrir því að á þessum svæðum sé að finna yfir 90% hörpudisks í Breiðafirði. Stofnmæling sem gerð var í ágúst 1982 gaf hærri stofnstærð en áður hafði verið mæld á þessum reitum. Í ljósi þess var leyfilegur hámarksafli hækkaður úr 10 þús. tonnum 1982 í 11 þús. tonn 1983. Þetta stofnmat var síðan staðfest að verulegu leyti þegar veiðar ársins 1982 voru gerðar upp. Þá kom í ljós að meðalafli skelbáta á veiðistund á áðurnefndum reitum var hærri en nokkru sinni fyrr, eða um 1080 kg. Þó að stofnmatið 1983 og 1984 hafi sýnt 6–7% lægri tölu en árið 1982 var aflasamdráttur á veiðistund hjá bátunum nokkru minni, eða 4–5%. Í ljósi þess að hér var um fremur lágar tölur að ræða auk nokkurrar óvissu, sem gjarnan fylgir slíkri stofnúttekt, taldi Hafrannsóknastofnunin óhætt að halda sama aflamarki 1984 og 1985, þ. e. 11 þús. tonnum. Þróun í aflabrögðum og stofnúttekt þótti hins vegar ekki réttlæta tillögur um aukið aflamark eins og kom fram hjá hv. fyrirspyrjanda.

Hér að framan hefur verið rætt um Breiðafjarðarsvæðin í heild þar sem einkum fádæma góð aflabrögð í svokölluðum reit 4 hafa komið í veg fyrir verulegan samdrátt í meðalaflanum í heild. Nú hefur þróunin m. a. í markaðsmálum aftur á móti orðið sú að sóknin hefur í auknum mæli beinst á skelsvæðin í reit 1 og voru þar t. d. veidd um 2900 tonn 1983 og 3700 tonn 1984. Hins vegar er talið að æskileg ársveiði í þessum reit sé aðeins um 2000 tonn. Á þessu ári heldur þessi skipan mála áfram og í jan./mars veiddust yfir 70% af hörpudisksaflanum í Breiðafirði í reit 1. Eins og við er að búast eru þessi svæði því verulega farin að láta á sjá. Í jan./mars í ár er meðalaflinn t. d. um 14% minni en hann var árið 1984 og næstum 30% minni en þegar hann var hæstur 1982. Á þessum svæðum þarf því augljóslega að draga úr sókninni. Það er þó ekki vandalaust, t. d. vegna stöðu markaðsmála og einnig vegna aflakvóta.

Í janúar s. l. var gerð þriggja daga úttekt á svæðum á reit 1. Til þess voru notaðir fjórir bátar úr Stykkishólmi og einn úr Grundarfirði. Í stuttu máli komu mörg veiðisvæði í reitnum mjög illa út þótt enn sé sums staðar hægt að fá þokkalegan afla. Nauðsynlegt er talið að kanna þessi svæði mun betur áður en skelveiðar hefjast á ný síðla næsta sumar. Í þessu sambandi er í fyrsta lagi áætlað að fara í hörpudisksrannsóknir á Breiðafirði í byrjun júlí á rannsóknarskipinu Dröfn, en það er sem kunnugt er nýtt rannsóknarskip sem gefur betri aðstæður til að rannsaka þessi mið og ýmis önnur við landið. Síðan er áætlað skv. væntanlegu samkomulagi við aðila á Breiðafirði að kanna miðin aftur á skelbátum í ágúst þegar skelveiðitímabilið er hafið.

Frekari ákvarðanir hafa ekki verið teknar um aukningu þessara rannsókna en það verður fylgst eins gjörla með þessum svæðum og nokkur kostur er. Og ég vil taka það fram að ef rannsóknir leiða það í ljós að hér sé hætta á ferðum og um ofnýtingu miðanna sé að ræða, þá verður dregið úr leyfilegum afla á hörpuskel. Ég tel hins vegar að slíkt geti vart gerst fyrr en á árinu 1986 og verður þá einnig að hafa það í huga að hægt sé að bæta þeim bátum það á einhvern hátt upp með öðrum veiðum.

Ég vil einnig taka fram að það eru fyrirhugaðar rannsóknir á öðrum tegundum sérstaklega kúskel, en það eru taldir miklir möguleikar á því að byggja upp slíka vinnslu á næstu árum á nokkrum stöðum á landinu. Einn aðili í Stykkishólmi hefur verið sérstaklega áhugasamur um þau mál og hefur látið útbúa eitt af skipum sínum til tilraunaveiða. Ég vænti þess, eins og hv. fyrirspyrjandi tók hér fram, að nýting á þeim stofni geti hjálpað til við uppbyggingu í sjávarútvegi á þessu svæði og annars staðar á landinu. Ég vænti þess að þessar upplýsingar séu fullnægjandi.