23.04.1985
Sameinað þing: 73. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4505 í B-deild Alþingistíðinda. (3792)

410. mál, lækningarmáttur jarðsjávar við Svartsengi

Fyrirspyrjandi (Gunnar G. Schram):

Herra forseti. Ég hef leyft mér að bera hér fram fsp. á þskj. 672 til heilbrmrh. um könnun á lækningarmætti jarðsjávar við Svartsengi. Fsp. er svohljóðandi, með leyfi forseta:

„Hvað líður framkvæmd ályktunar þeirrar sem samþykkt var á Alþingi árið 1982 um könnun á lækningarmætti jarðsjávar við Svartsengi?“

Sú till. til þál. sem hér er vitnað til var borin fram það ár og hljóðaði svo, með leyfi forseta:

„Alþingi ályktar að fela heilbrigðismálaráðherra að láta nú þegar fara fram könnun á lækningamætti jarðsjávar við Svartsengi.

Leiði könnunin til jákvæðrar niðurstöðu verði þegar unnið að því að koma upp aðstöðu fyrir þá sjúklinga sem að læknisráði er talið rétt að noti jarðsjóinn til baða.

Við könnun þessa verði haft samráð við samtök lækna, samtök psoriasis- og exemsjúklinga svo og samtök annarra sjúklinga sem not gætu haft af slíkum böðum.“

Þessi till. var samþykkt á Alþingi fyrir þremur árum. Ýmislegt hefur gerst á þeim þremur árum sem liðin eru frá því að þessi þáltill, var hér samþykkt einróma. Enn betur en áður hefur komið í ljós að margir hafa fengið verulega bót meina sinna við böðun í Bláa lóninu við Svartsengi, svo sem það er nefnt. Nær daglega eru það fleiri eða færri sem þangað sækja sér heilsubót. Enn sem komið er hafa hins vegar engar fregnir birst um það af hálfu heilbrigðisyfirvalda hvert er hið læknisfræðilega mat á lækningarmætti vatnsins í lóninu þar né leiðbeiningar til sjúklinga um við hvaða sjúkdómum líklegt geti verið að bót fáist við böð þar. Þó hefur það verið tekið upp nýlega til þess að gera að Tryggingastofnun ríkisins greiðir fargjöld 40 exem- og psoriasissjúklinga til Suðurlanda árlega til þess að leita sér bótar einmitt á þeim meinum sem menn hafa talið sig fá nokkra bót við í Bláa lóninu við Svartsengi. Það sýnist þess vegna mjög æskilegt að slíkar upplýsingar liggi sem fyrst fyrir frá ábyrgum aðilum sem menn geta treyst og farið eftir í þessum efnum.

Annar þáttur þessa máls, herra forseti, lýtur að nauðsyninni á að koma upp sæmilegri aðstöðu til baða fyrir sjúklinga sem til Bláa lónsins leita. Þar er nú, eins og fram hefur komið í fréttum, nánast engin viðunandi aðstaða til slíks. Hér skal þó tekið fram að áform hafa verið uppi um það á vegum Hitaveitu Suðurnesja að koma þar upp skýli og hreinlætisaðstöðu og er það þó ekki á hennar verksviði. Forustumönnum hitaveitunnar er hins vegar ljóst hve þörfin er brýn á þessu sviði og hve úrbætur þar eru nauðsynlegar og hafa af þeim sökum hug á að standa að framkvæmdum af eigin rammleik. Væri það hið lofsverðasta framtak.

Jafnframt hefur einkaaðili byggt sér lítið hótel á bakka lónsins, sem er mjög mikið notað, ekki síst af útlendingum sem hingað koma og leita sér lækninga við böð í lóninu. Það er einnig hið besta framtak og bætir úr brýnustu þörf hvað þetta snertir. Hér er um einstaklingsframtak að ræða án nokkurra opinberra styrkja, en engu að síður þörf á nokkurri lánafyrirgreiðslu sem enn hefur ekki verið látin nægilega í té.

Í þessu sambandi er einnig ástæða til þess að víkja að öðru máli sem er þessu nátengt. Víða erlendis hafa risið upp heilsustöðvar og baðstaðir þar sem eru ölkelduuppsprettur, leirböð eða hitauppstreymi. Slíkir staðir eru, eins og vel kunnugt er, afar fjölsóttir víða um Evrópu og reyndar víða um heim, bæði af þeim sem þangað leita í beinu lækningaskyni og eins af hinum sem þangað leita sér til hressingar og hvíldar fyrst og fremst. Það er ekki vafi á því að vegna náttúrufars landsins er meiri og betri grundvöllur fyrir slíkum heilsustöðvum hér en víðast hvar annars staðar í veröldinni. Hér er jarðhitinn til staðar í miklum mæli, margs konar tegundir af hveraleir og síðast en ekki síst bæði heitt og kalt vatn sem er þegar vel er gáð sömu eiginleikum gætt og vatnið í frægustu baðstöðum og heilsulindum Evrópu, bæði í Þýskalandi, Frakklandi og Tékkóslóvakíu, svo að aðeins þrjú lönd séu nefnd sem einna fremst standa á þessu sviði í veröldinni.

Heilsulindargæði vatnsins hér voru staðfest við rannsóknir sem fram fóru í tengslum við ítarlega skýrslu sem unnin var á vegum Sameinuðu þjóðanna upp úr 1970 og fjallaði um möguleika okkar á sviði ferðamála. Frumathugun, sem hefur verið gerð, sýnir að slíkt baðhótel og heilsustöð, sem hér hefur verið gerð að umræðuefni, rekin undir yfirumsjón lækna, mundi kosta álíka mikið og einn togari, en gæti hins vegar verið fordæmi sem ryddi brautina fyrir heilsustöðvum af álíka gerð víðar um landið.

Það er löngu orðið tímabært að við gefum þeim möguleikum sem á þessu sviði felast, miklu meiri gaum en gert hefur verið til þessa.

En fyrst og fremst spyr ég heilbrrh. um hvað líði framkvæmd ályktunar Alþingis um könnun á lækningarmætti jarðsjávarins við Svartsengi.