23.04.1985
Sameinað þing: 73. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4508 í B-deild Alþingistíðinda. (3796)

426. mál, hafnareglugerð

Fyrirspyrjandi (Hjörleifur Guttormsson):

Herra forseti. Á s. l. vori 18. maí samþykkti Alþingi ný hafnalög nr. 69/1984. Skv. 40. gr. þeirra laga segir:

„Ráðh. skal fyrir árslok 1984 setja reglugerð um framkvæmd þessara laga.“

Ég innti eftir því í samgrn. nýlega hvort þessi reglugerð lægi fyrir, en var tjáð að svo væri ekki og því hef ég leyft mér að bera fram fsp. til hæstv. samgrh. um hvað líði undirbúningi að setningu þessarar reglugerðar á grundvelli nefndra laga.

Áhugi minn varðandi þetta mál tengist m. a. ákveðnum efnisatriðum sem til umræðu voru þegar frv. til hafnalaga var til meðferðar í hv. Nd. Alþingis. Þar flutti ég brtt. um tiltekið atriði, en efnislega var það svohljóðandi:

„Verði misbrestur á greiðslu aflagjalds skal viðskiptabanki fiskkaupanda, ef óskað er, standa hafnarsjóði skil á greiðslu gjaldsins er hann tekur veð í viðkomandi framleiðslu.

Enn fremur skal útflytjandi eða banki, er greiðir framleiðanda söluverð varnings, greiða hafnarsjóði áfallið en ógreitt vörugjald af viðkomandi varningi.“

Ákvæði þessa efnis var inni í því frv. sem hæstv. samgrh. lagði fram í Ed., en þar var ákvæði þetta fellt út. Í hv. Nd. þingsins kom hins vegar fram víðtækur stuðningur við þetta efnislega, bæði frá formanni samgn., hv. þm. Stefáni Valgeirssyni, og fleiri aðilum í samgn., þ. á m. hv. þm. Karvel Pálmasyni, og hæstv. samgrh. lýsti því raunar einnig yfir skýrt og skorinort að hann teldi að hann hefði verið sáttari við að orðalag það sem hér var vitnað til héldist inni í frv.

Mjög var liðið á þingtíma þegar þetta mál var til síðustu meðferðar í hv. Nd. og ég varð við eindregnum óskum um að draga brtt. mína til baka um þetta efni. Hæstv. ráðh. gaf hér yfirlýsingar varðandi þetta efni og lýsti sig reiðubúinn að koma til móts við þessi sjónarmið, sem ég hafði flutt brtt. um, í sambandi við setningu reglugerðar eftir því sem frekast væri unnt. Ég efa ekki að ráðh. er þetta mál í fersku minni og hann mun, að ég vænti, leitast við að tryggja þessi atriði eftir því sem honum er fært, en ég inni hæstv. ráðh. eftir því hvað liði setningu umræddrar reglugerðar: