12.10.1984
Sameinað þing: 4. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 146 í B-deild Alþingistíðinda. (38)
Skýrsla ríkisstjórnarinnar um kjaradeilurnar
Guðrún Agnarsdóttir:
Herra forseti. Áður en ég hef mál mitt um skýrslu forsrh. um kjaradeilur, þá langar mig að nefna hér tvö atriði. Reyndar gekk hæstv. iðnrh. úr salnum einmitt nú, en mig langaði til þess að nefna nokkur orð við hann. (Gripið fram í: Hann er í salnum.) Nú, þarna er hann kominn.
Mig langaði til að árétta mál Stefáns Benediktssonar, sem talaði um hagsmunahópa og það skýrt afmarkaða hagsmunahópa og að mig minnir þrönga hagsmunahópa, eins og t.d. Kvennalistann. Það er rétt að Kvennalistinn fór á þing fyrst og fremst til að gæta hagsmuna kvenna og barna, en ég mundi ekki telja það þröngan hagsmunahóp sem er trúlega rúmlega helmingur þjóðarinnar. Og það er líka víst að réttlæti fyrir konur og börn fæst ekki nema með hugarfarsbreytingu og breytingu á þjóðfélaginu og sú breyting varðar alla þegna þjóðfélagsins. Mín skoðun er sú, að hún muni verða öllum til hagsbóta.
Í öðru lagi langar mig til að taka dæmi af því hugarfari sem þyrfti að breytast. Hæstv. iðnrh. lét sér um munn fara athugasemd sem er dæmigerð fyrir viðbrögð við konum og því viti sem menn ætla þeim að hafa á þjóðmálum. Hann talaði um að jafnvel stjórnarandstöðuflokkarnir hefðu haft áhyggjur af verðbólgunni og viljað takast á við hana, meira að segja Kvennalistinn. Því ekki Kvennalistinn, hæstv. iðnrh. Sverrir Hermannsson? Því ekki Kvennalistinn að sjálfsögðu líka?
„Gangi þér vel að bjarga þjóðinni,“ kallaði maður á eftir mér að skilnaði í haustnepjunni við Austurvöll í fyrradag. Ætli þjóðin hafi ekki löngum haft lag á því að bjarga sér sjálf, hugsaði ég, og þá hefur ekki síst viljað henni til blessunar að hafa valið þá menn til forustu sem ekki steyptu henni í glötun.
En hvernig hefur þeim tekist til, þeim þingkjörnum fulltrúum sem völdust til forustu á s.l. þingi? Efnahagsúrræði þeirra hafa nú leitt til víðtækra verkfalla, sem valda daglega ómældu fjárhagslegu tjóni, auk óþæginda, harðinda og þeirrar andúðar sem vaknað hefur og magnast vegna framkomu stjórnvalda. Sú kjaraskerðingarstefna, sem hefur verið leiðandi úrræði stjórnarinnar í glímunni við efnahagsdrauginn og verðbólguskottuna, hefur gengið svo nærri launafólki að þolinmæði þess er þrotin og það hefur engar fórnir að færa lengur, en leitar nú réttar síns og launa til að lifa af. Eru þetta óréttmætar kröfur og er þetta fólk hinir raunverulegu óvinir almennings?
Sagt var að einn ráðh. hefði haft á orði við erlenda fréttamenn nú á dögunum að í verkföllum stæðu öfgafullir byltingarsinnar — eða voru það ofbeldissinnaðir öfgamenn, ég er ekki viss. Og ég spyr: Eru kennslukonur, sem geta ekki framfleytt sér og fjölskyldum sínum á 15–18 þús. kr. á mánuði og gera kröfu um lífvænlegri laun, öfgafullir byltingarsinnar? Ég segi nei. Það er réttur fólks að geta framfleytt sér með vinnu sinni. Og það er algjörlega óviðunandi þegar það land, sem Efnahags- og þróunarstofnun Evrópu hefur nýlega reiknað út að er sjötta ríkasta land í heimi miðað við verðmæti þjóðarframleiðslu á hvern einstakling, er gert að láglaunasvæði og stórum hluta fólks er fyrirmunað að afla sér lífsviðurværis þótt það vinni myrkranna á milli. Að þetta sjötta ríkasta land í heimi þrengi samtímis að og skerði félagsleg réttindi þegna sinna, einkum þeirra sem minnst mega sín, er sömuleiðis gjörsamlega óviðunandi. Einkum er það óviðunandi meðan lítill sem enginn samdráttur verður á heildareinkaneyslu landsmanna, eins og fram kom í sumar í frétt frá Þjóðhagsstofnun. Þrátt fyrir umsamin lágmarkslaun launþega, sem varla og reyndar alls ekki duga fyrir nauðþurftum, hefur lítið sem ekkert lát orðið á eftirspurn og eyðslu í bílakaup, sólarlandaferðir, áfengiskaup og öldurhúsaferðir svo eitthvað sé nefnt. Hvaðan kemur fólki fé og hverjir eru það sem enn geta leyft sér áfallalaust að halda uppi þessari eyðslu á meðan aðrir berjast í bökkum? Er það von að réttlætiskennd fólks sé stórlega misboðið þegar meginefnahagsaðgerð stjórnarinnar, kjaraskerðingarstefnan, hefur bitnað svona misjafnlega á fólki, sumir hafa hreinlega hagnast á ástandinu á meðan aðrir eru á vonarvöl, og eru það ekki einmitt stjórnaraðgerðir eða skortur á þeim sem ráða því að slík forgangsröð ríkir og slíkt ástand getur viðgengist? Og mér ógnar sú forgangsröð, sem nú er valin, og ég óttast það ástand, sem ríkir, og ég mótmæli harðlega þeirri umbyltingu sem verið er að gera á íslensku þjóðfélagi.
Það gengu margir félagshyggjumenn fölir á vanga í gær eftir lestur fjárlaga og ég spyr: Í þágu hverra er nú það velferðarþjóðfélag, sem hér hefur ríkt, rifið niður? Er það í þágu þeirra sem trúa á frelsið? Hverjir eru þeir sem stjórna leið okkar út úr tímabundnu velferðarþjóðfélagi inn í frumskóginn þar sem lögmál hinna sterku, hæfu og efnuðu eru einráð? Eru það líka þeir sem trúa á frelsið, frelsi einstaklingsins? Er það von að maður spyrji: Frelsi hvaða einstaklings og hvers konar frelsi? Því ég álít að við séum að ræða grundvallarspurningar þessa dagana. Er það frelsi til einhvers eða er það frelsi frá einhverju? Er það frelsi til að gefa hinum sterku og hæfu lausan tauminn til sjálfsbjargar í þeirri trú og von að við það muni þeir eflast svo mikið að þjóðfélagið í heild hljóti að verða hagsælla og jafnframt munu stærri og feitari bitar hrynja af borði þeirra til hinna veikari? Er það frelsi hins sterka til að kúga þann veika ef honum býður svo við að horfa? Ef menn treysta ekki manninum til að flytja frið til barna í skólum landsins, hvernig geta menn treyst manninum til þess að muna eftir sínum minnsta bróður í vímu velmegunarinnar? Og á það að vera eina bjargarvon og trygging hins minnsta bróður til afkomu að eftir honum sé munað en hann ekki seldur? Er hinn minnsti bróðir óhultur þegar hann er settur í sjálfsvald hins sterka stóra bróður síns? Á ég að gæta bróður míns, var einu sinni spurt. Það er talsverður munur á því fyrir ömmur þessa lands hvort hér ríkir frelsi barnabarna þeirra til þess að selja þær eða frelsi þeirra frá því að verða seldar. Það er talsverður munur á því hvort hér ríkir frelsi til að vera fátækur og minni máttar eða frelsi frá því að lepja dauðann úr skel og vera boðinn upp með nauðung. Það er talsverður munur á því hvort hér ríkir það frelsi og þau sjálfsögðu mannréttindi að menn geti séð sér farborða með vinnu sinni eða hvort þeir þurfa að verða ölmusumenn á hjartalausu kerfi þrátt fyrir mikið vinnuframlag.
Það er ekki ýkjalangt síðan þessi þjóð gægðist út úr torfbæjum sínum og deplaði augum framan í bjarta framtíð og bættan hag og lagði af stað til velferðarríkisins. Hvorki þá né nú þykir sæmd í því að vera niðursetningur. Það að setja fólk niður á ekki bara við það að hola því niður á bæ hjá öðrum þar sem velferð þeirra er háð gæsku húsráðenda eða örlæti þeirra hverju sinni. Það er ekki síður að setja fólk niður í mannlegri reisn og virðingu. Slíkt frelsi, sem fyrst og fremst gefur hinum sterka lausan tauminn án tillits til þess að tryggja stöðu hins veika, er frelsi án ábyrgðar, réttindi án skyldna og því fylgir óhjákvæmilega hætta á ofbeldi og kúgun. Hvorki Íslandi né mannkyninu í dag eru boðleg slík frjálshyggjulögmál né heldur getum við lifað af ef við fylgjum þeim. Nægir í því sambandi að minna á eina af meginástæðunum fyrir því að þetta er ekki hægt, þó að aðrar veigamiklar verði ekki tíndar til, en hún er sú að lífsafkoma okkar allra á þessari jörð byggist á því að meiri jöfnuður komist á milli manna og þjóða. Sú vaxandi og óumflýjanlega togstreita, hvort sem lokaátök hennar verða okkar eða barna okkar, sú togstreita sem ríkir á milli norðurs og suðurs á þessum hnetti, hún verður ekki leyst nema með jöfnuði. Það er svo fráleit sjálfsmorðsstefna fyrir mannkynið að tryggja svo ákaft rétt hinna fáu sterku til fjármagns og valda að það tekur engu tali.
Í ragnarökum er talað um að bræður muni berjast og það sem verður þeim að falli er ágirndin. Presturinn talaði við okkur um græðgina í fyrradag, græðgina sem vikið hefði fyrir trúnni á Ísland, græðgina sem hefði sundrað þeim systkinahópi sem vildi bera Ísland út í sólskinið. Hann talaði um nauðsyn þess að samstæður systkinahópur íslensku þjóðarinnar þyrfti að sýna eindrægni til að geta leyst vandamál sín og borið byrðarnar sameiginlega þannig að skipting þeirra sé sanngjörn eftir þoli manna. Er það boðlegt Íslendingum, sem í seinni tíð hafa státað sig af því hve þjóðfélag þeirra er stéttlaust, að nú skuli verið að koma á stéttskiptu þjóðfélagi, þeirra sem eru á vonarvöl og bera þyngstar byrðar og hinna sem hafa meira en nóg og ganga léttir og byrðalausir til leiks? Getur það verið að meiri hluti landsmanna vilji slíkt? Því trúi ég ekki. Ég trúi því miklu fremur að hægt sé að halda hér áfram velferðarþjóðfélagi, að við höfum í raun efni á því, og það sem meira er: Ég held að meiri hluti landsmanna vilji það. Og ég spyr Framsfl.: Geta þeir flokkar, sem kenna sig við félagshyggju,staðið að öðru?
Framkoma stjórnvalda og einstakra ráðh. í yfirstandandi kjaradeilum lýsir fádæma skilningsleysi á kjörum fólks og aðstæðum og furðulega lélegu þefskyni á því hvaðan vindurinn blæs. Ég má til með að lýsa yfir ekki bara furðu minni á þekkingarleysi hæstv. fjmrh. á störfum kennara heldur hreinlega hneykslun. Og mér er spurn: Er nokkur furða á því þótt kjör kennara séu eins léleg og raun ber vitni á meðan fákunnátta og skilningsleysi um störf þeirra er jafnríkjandi meðal þeirra sem greiða þeim laun?
Mig langar að vekja athygli hæstv. fjmrh., ef hann skyldi vera viðstaddur, sem ég sé að hann er, á þáltill., sem hér var lögð fram í gærkvöldi af þingmönnum Kvennalista um endurmat á störfum kennara, og vil ég ráðleggja honum að lesa grg. með þeirri þáltill. og álít það ekki síður brýna þörf eftir að hæstv. fjmrh. hefur opinberað hug sinn og vitneskju í gærkvöldi. En mig langar til þess að leggja sérstaka áherslu á þá ábyrgð sem lögð er á kennara í starfi þeirra. Gæði þess uppeldis, þroska og þeirrar fræðslu, sem kennurum er ættað að sinna, ráðast af hæfni þeirra, alúð við kennslustörf og umhyggju fyrir velferð nemenda. Tryggja verður með öllu móti að hæft fólk veljist til slíkra ábyrgðarstarfa og geti einbeitt sér áð því áð leysa þau sem best af hendi. Kaup og kjör kennara og aðstæður, sem þeim eru búnar, verða því að vera í samræmi við þær miklu kröfur sem gerðar eru til þeirra og þeir sjálfir gera til sín sem samverkamenn foreldra um uppeldi og fræðslu. Og það verður óbætanlegur skaði, sem mun bergmála langt fram í ókomna framtíð, að búa eins illa að kennurum og gert er. Sá skaði og það tjón, sem af því hlýst, mun bitna fyrst og fremst á börnum okkar, komandi kynslóðum þessa lands. Það er því mikið gleðiefni að hæstv. menntmrh. sýndi svo mikinn skilning á mikilvægi kennarastarfsins í máli sínu í gærkvöldi og því hver nauðsyn er að bæta kjör kennara. Er það von mín að sá skilningur megi berast inn í fjmrn.
Sú grunnhyggna afstaða að borga mönnum ekki laun sín fyrir fram, eins og um er samið, og hirða jafnframt af þeim eins mikið og hægt var upp í skatta hleypti án efa illu blóði í fólk strax í byrjun verkfalls. Þetta var án efa sú aðgerð sem varð upphafið að þeim átökum og illindum sem síðar fylgdu. Þessi framkvæmd er einkum ámælisverð þar sem lagalegt réttmæti hennar er greinilegt ágreiningsmál lögfræðinga, háð túlkun þeirra á lögunum. Ég tel þessa ákvörðun hafa verið vægast sagt óskynsamlega og einmitt til þess fallna að valda ófriði. Gerræðisleg viðbrögð, óbilgirni einstakra ráðherra og stjórnvalda og ekki síst það að horfa ofan í þessi mjóslegnu launaumslög brýndi fólk til átaka og efldi samstöðu þess strax í upphafi verkfalls og þótti þó mörgum þegar brýn ástæða til þess.
En það er ekki bara kjaraskerðingin sem fólk er að mótmæla og krefjast leiðréttingar á. Stjórnarstefnan hefur víðar þjarmað að fólki. Fjárhagsgrundvöllur Húsnæðisstofnunar er í mesta ólestri, ef ekki hruninn, og það sitja margir með sárt ennið þegar stofnunin getur ekki staðið við skuldbindingar sínar við húsbyggjendur, svo ekki sé talað um mismunun þá sem ríkir milli þeirra sem byggja nú og þeirra sem byggðu fyrir tíu árum. Það að tryggja fólki þak yfir höfuðið með félagslegum aðgerðum er að tryggja jöfnuð og mannréttindi. Það að etja fólki út á harðfenni lánamarkaðar, sem hefur gróða að höfuðsjónarmiði, er í takt við lögmál frumskógarins.
Talað er um að bjóða skattalækkanir sem kjarabót, en skattalækkanir nýtast ekki þeim sem lægst hafa launin. Þar verða aðrar aðgerðir að koma til. Hvernig hefur ríkisstj. hugsað sér að fjármagna þær tryggingabætur sem hljóta að verða óumflýjanlegar ef þeir eiga yfirleitt að lifa af sem lægst hafa launin? Þetta þurfum við að fá að vita.
Ég talaði áðan um frelsi og fyrir hverja það væri. Hér á Alþingi virðist ríkja efi í hugum sumra og kemur fram í máli þeirra efi um það að lögbrot hafi verið framin þegar frjálsar útvarpsstöðvar tóku til starfa. Nú skilst mér að starfsemi þessara stöðva hafi verið afnumin samkvæmt dómsúrskurði sakadóms Reykjavíkur en ekki með lögregluaðgerð. Ef dómstólar úrskurða athæfið ólögmætt, er það ekki um leið viðurkenning á því að um lögbrot sé að ræða? (Gripið fram í.) En þá gildir einu hvaða skoðun menn hafa á nauðsyn þess að koma á frjálsari löggjöf um útvarpsrekstur.
Ég hef heyrt á tal margra undanfarna daga sem hafa verið slegnir óhug yfir því að ráðherrar og aðrir ábyrgðarmenn skuli vera bendlaðir, að því er virðist, við lögbrot eða meint lögbrot og furða sig á því hvernig þeir geta séð sóma sinn í slíku eða réttlætt það. Og menn velta því fyrir sér sumir, hvort einherjar muni nú allir rísa heilir upp aftur í þetta sinn.
Ég fyrir mitt leyti er búin að fá mig fullsadda af karlmannlegri festu stjórnvalda og afleiðingum hennar. Má ég nú fyrir mína hönd og umbjóðenda biðja um mildi, skilning og meiri jöfnuð, bæði fyrir launþega og aðra þegna þessa lands.
Eftir móðuharðindin var íslenska þjóðarfjölskyldan ekki nema tæplega 40 þús. manns, enda hart að henni sorfið, eldgos, sjúkdómar, veðurharðindi og fátækt. Þá dugði henni best til að halda á sér hita og lífi að standa þétt saman og líta vel eftir sínum og skipta jafnt því sem til skiptanna var. Í dag er íslenska fjölskyldan næstum því sex sinnum stærri og neyð hennar sem betur fer þess eðlis að hún getur ráðið við hana ef hún vill. En jafnt og áður dugir henni best að standa þétt saman til að leita réttar síns og tryggja afkomu sína og skipta jafnt því sem til skiptanna er og henni er jafnnauðsynlegt og áður að forðast þá forustusauði sem slegnir eru blindu og gætu leitt hana í glötun.