23.04.1985
Sameinað þing: 73. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4512 í B-deild Alþingistíðinda. (3801)
402. mál, lögreglustöð í Garðabæ
Kjartan Jóhannsson:
Herra forseti. Ég vil eindregið taka undir þau sjónarmið, sem komu fram hjá hv. þm. Geir Gunnarssyni, að nauðsyn beri til að endurskipuleggja þetta í heild sinni og þá eftir málaflokkum. Okkur finnst það orðið harla ankannalegt að lögreglustörfum í Mosfellssveit, Kjalarnesi og Kjós skuli vera stýrt frá Hafnarfirði fram hjá annarri lögreglustöð sem er í Reykjavík. Menn geta ekki látið þetta vera neitt metnaðarmál. Hér er fyrst og fremst um það að ræða að koma þessari þjónustu fyrir á sem hagkvæmastan og skynsamlegastan hátt. Hv. þm. Geir Gunnarsson undirstrikaði það mjög rækilega og mjög vel og ég tek eindregið undir það.
Það eru annað veifið uppi hugmyndir um að fjölga lögreglustöðvum. Ég hef í sjálfu sér ekkert á móti því ef það verður ekki til þess að valda kostnaði og ef það reynist nauðsynlegt til þess að auka þjónustuna. En ég vil benda á, með tilliti til þess sem hæstv. ráðh. minntist á áðan, að ný lögreglustöð er í byggingu í Hafnarfirði og ef við værum ekki að hugsa um sýslu-, hreppa- eða bæjarmörk hugsa ég að það sé álíka langt í meginhluta byggðar í Garðabæ úr þeirri lögreglustöð og er í syðstu hluta byggðar í Hafnarfirði og líklega heldur styttra en suður að Straumi. Sú stöð ætti því landfræðilega séð að geta þjónað Garðabæ eftir að nýi vegurinn er kominn og hann er kominn úr Kaplakrika og upp að Vífilsstöðum. Hún ætti landfræðilega séð að geta þjónað því byggðarlagi álíka vel og Hafnarfirði fjarlægðarinnar vegna.
En um leið og ég lýsi þakklæti mínu fyrir að þessi mál skuli vera tekin til umr. og frumkvæði hv. þm. Gunnars Schram í því að vekja máls á þessu máli tel ég að meginatriðið sé það að taka á málunum eftir þeim linum sem hv. þm. Geir Gunnarsson lagði.