23.04.1985
Sameinað þing: 73. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4514 í B-deild Alþingistíðinda. (3803)
402. mál, lögreglustöð í Garðabæ
Landbrh. (Jón Helgason):
Herra forseti. Ég þakka hv. alþm. fyrir undirtektir þeirra við það verk sem dómsmrn. hefur hafið í sambandi við úttekt á þessum málum og í framhaldi af því tillöguflutning um framtíðarskipulag lögreglumála. Vissulega getur það verið rétt og eðlilegt, sem hv. 5. þm. Reykn. sagði, að þörf væri á að skoða fleiri málaflokka en löggæsluna.
En vegna þess bréfs sem hv. fyrirspyrjandi, 2. þm. Reykn., las upp frá fyrrv. dómsmrh. og er frá 1978, um að verið væri að huga að þessum málum, vil ég geta þess að fyrirrennari minn í starfi flutti frv. á Alþingi um breytingar á skipulagi löggæslumála í Mosfellssveit og víðar og það náði ekki fram að ganga á Alþingi. Það hlaut ekki nægilegan stuðning á hv. Alþingi. Þess vegna sýndist mér vera nauðsynlegt að undirbúa málið með betri rökum en þar voru færð fram til þess að Alþingi treysti sér þá til þess að taka afstöðu til þess. Ég vil vonast til þess að þetta starf leiði til þess að færð verði nægileg rök fyrir breytingum á þann veg að það verði ekki verið að rígbinda sig við einhver mörk sem dregin eru á landakorti og hluta þannig niður þetta svæði í einstök bæjarfélög.