23.04.1985
Sameinað þing: 74. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4518 í B-deild Alþingistíðinda. (3808)
206. mál, nýjar hernaðarratsjárstöðvar á Íslandi
Frsm. 1. minni hl. (Sigríður Dúna Kristmundsdóttir):
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nál. 1. minni hl. hv. utanrmn. um till. hv. þm. Steingríms J. Sigfússonar og Kolbrúnar Jónsdóttur um að falla frá hugmyndum um að reisa nýjar hernaðarratsjárstöðvar á Íslandi. Meginatriði nál. 1. minni hl. eru á þessa leið, með leyfi forseta:
1. minni hl. leggur til að þessi þáltill. verði samþykkt með eftirfarandi rökum:
1. Bygging ratsjárstöðvanna táknar óumdeilanlega aukningu hernaðarumsvifa á vegum Bandaríkjahers og NATO hér á landi. Um þetta atriði segir Gunnar Gunnarsson, starfsmaður öryggismálanefndar, í nýlegu riti: „Keflavíkurstöðin: Áætlanir og framkvæmdir, m. a. eftirfarandi:
„Hugmyndir um nýjar ratsjárstöðvar eru nátengdar öðrum framkvæmdum og áætlunum, sem varða Keflavíkurstöðina eins og byggingu á styrktum flugskýlum í Keflavík, endurnýjun þeirra orrustuflugvéla sem þar eru, byggingu olíugeyma í Helguvík o. fl. Allt tengist þetta loftvörnum á einn eða annan hátt. Út frá hernaðarlegu sjónarmiði er því eðlilegra að líta á þessar áætlanir sem eina heild, áður en litið er á hvert einstakt atriði fyrir sig.“
Þótt ratsjárstöðvarnar einar út af fyrir sig auki ekki stórlega á hernaðarumsvif hérlendis verður að líta á þær í þessu samhengi og í heildarsamhengi við breytingar á eðli herstöðvanna hérlendis í það horf að þær geti orðið mjög mikilvægar í hugsanlegum hernaðarátökum risaveldanna.
2. Þá hefur það komið fram að mikil andstaða er gegn nýjum ratsjárstöðvum, bæði í þeim byggðarlögum þar sem helst er ráðgert að þær verði reistar sem og meðal annarra landsmanna.
Í skoðanakönnun dagblaðsins NT, sem birt var 10. apríl s. l., kom fram hjá 70% aðspurðra, sem afstöðu tóku, að helmingur þeirra er andvígur uppsetningu nýrra ratsjárstöðva hérlendis. NT dregur eftirfarandi ályktanir af þessari skoðanakönnun:
„Þegar öll kurl koma til grafar er svo niðurstaðan sú að þjóðin virðist skiptast í tvær nokkurn veginn nákvæmlega jafnstórar fylkingar í afstöðunni til þessa máls og ef þjóðaratkvgr. yrði látin fara fram yrðu úrslitin langt í frá ráðin fyrir fram.“
Í skoðanakönnun DV fyrr í vetur, þar sem spurt var um sama efni, kom fram að meiri hluti þeirra, sem afstöðu tóku, var andvígur hugmyndum um nýjar hernaðarratsjárstóðvar.
Það er þannig ljóst að mikil og víðtæk andstaða er við uppsetningu þessara stöðva og er hún engan veginn bundin við einstaka stjórnmálaflokka. Þá liggur það fyrir að verulegur hópur þess fólks, sem býr næst þeim stöðum þar sem rætt er um að reisa stöðvar, er andvígur byggingu þeirra. Nægir í því sambandi að vísa á bænarskrá 100 Vestfirðinga til ríkisstjórnar Íslands og mótmæli mikils fjölda íbúa í þremur sveitarfélögum í Norður-Þingeyjarsýslu.
1. minni hl. hv. utanrmn. telur að virða beri óskir heimamanna um að mannvirki sem þessi verði ekki reist við bæjardyr þeirra og bygging slíkra hernaðarmannvirkja eigi ekki að koma til greina þar sem veruleg andstaða er við slík áform í heimabyggð.
3. Þá átelur 1. minni hl. þá málsmeðferð að tengja fyrirætlanir um þessi hernaðarmannvirki æskilegum úrbótum í farþegaflugi um og við landið og reyna að réttlæta þessi áform með röngum staðhæfingum um gildi slíkra hernaðarratsjárstöðva fyrir öryggi sjómanna og siglingar með ströndum fram. Að áliti 1. minni hl. hljóta Íslendingar sjálfir að tryggja öryggi þeirra sem um loft fara eða höf sigla og gera sjálfir í því skyni nauðsynlegar úrbætur hér á landi.
Þá áfelur 1. minni hl. að innlendum stofnunum eins og Pósti og síma og flugmálastjórn hefur verið flækt í undirbúning vegna þessara hernaðarmannvirkja og virðist ætlað að eiga hlut að starfrækslu þeirra. Ef sú verður reyndin verður erfitt að greina á milli almennrar borgaralegrar starfsemi hérlendis og hernaðarumsvifa og er það í andstöðu við þá stefnu sem stjórnvöld hafa fylgt varðandi samskipti bandaríska herliðsins hérlendis og innlendra aðila til þessa.
Með tilliti til þessara ástæðna leggur 1. minni hl. utanrmn. til að þessi till. verði samþykkt.
Að þessu nál. stendur auk mín hv. þm. Hjörleifur Guttormsson.
Herra forseti. Við fyrri hluta umr. um þessa þáltill. í Sþ. 21. mars s. l. gerði ég sérstaklega grein fyrir afstöðu Kvennalistans til byggingar nýrra hernaðarratsjárstöðva hér á landi og las við það tækifæri upp ályktun landsfundar Kvennalistans um þetta mál þar sem tekið er undir þau rök sem fram koma í bænarskrá 100 Vestfirðinga og sem mæla tvímælalaust gegn því að þessar stöðvar verði reistar hér á landi. Jafnframt gerði ég grein fyrir því að eins og segir í stefnuskrá Kvennalistans erum við Kvennalistakonur andvígar allri aukningu á herbúnaði, bæði hér á landi og annars staðar í heiminum, og þess vegna erum við á móti þeirri aukningu á herbúnaði sem bygging nýrra hernaðarratsjárstöðva hér á landi er.
Að undanförnu hefur töluverð umræða átt sér stað hér á landi um þá neyð sem stór hluti mannkyns býr nú við og nauðsyn þess að vinna þar bug á. Ég trúi því ekki að það sjái ekki hver hugsandi maður að það er ekki með neinum rökum verjanlegt að eyða ótæpilegu fé í aukinn vígbúnað á þessari jörð okkar á meðan stór hluti barna hennar sveltur. Ég hef átt þess kost að kynnast af eigin raun neyð þeirra sem svelta í svonefndum þróunarlöndum og það er ekkert sem fær sannfært mig um að það sé réttlætanlegt að verja fé til aukins vígbúnaðar þegar þannig er ástatt og háttað afkomu stórs hluta mannkyns. Með sönnu má segja að það fé sem fer til byggingar nýrra hernaðarratsjárstöðva hér á landi sé smáaurar miðað við það fé sem veitt er til vígbúnaðar í heiminum á ári hverju. En — og það er stórt en — með því að samþykkja að fé sé veitt til aukins herbúnaðar hér á landi, sama hversu lítið það fé hlutfallslega er, gerumst við Íslendingar þátttakendur með beinum hætti í því vitfirrta vígbúnaðarkapphlaupi sem nú geisar í heiminum. Við gerumst þá hlutaðeigendur í þeirri ábyrgð sem fylgir þessum fjárfestingum, sem fylgir því að veita fé til aukins vígbúnaðar í sveltandi heimi. Slíkt tel ég með öllu óverjanlegt og siðferðislega rangt og mun því ekki samþykkja aukningu á neins konar herbúnaði, hvorki hér á landi né annars staðar í heiminum ef því væri að skipta.
En þetta er ekki eina ástæðan, þótt veigamikil sé, fyrir því að ég set mig á móti aukningu herbúnaðar hverju nafni sem nefnist. Þar er líka fyrir hendi nauðsyn þess að vernda lífið á jörðinni, það líf sem við gefum börnum okkar, fyrir þeirri tortímingu sem því er búin af vígbúnaðinum og sem ég hef oft rætt hér um. Og einnig, og það vil ég undirstrika, nauðsyn þess að vernda það frelsi og þá lýðræðisskipan sem við búum við í okkar heimshluta og sem ég er ekki í vafa um að er meiri en annars staðar í heiminum þótt fullkomið sé það ekki frekar en önnur mannanna verk. Hæstv. utanrrh. hefur oft talað um nauðsyn þess að halda uppi vörnum fyrir þessum hlutum og um það er ég honum sammála. En hvernig best sé að gera það erum við ekki sammála um, a. m. k. ekki í þessu máli. Á meðan hæstv. utanrrh. vill byggja hér nýjar hernaðarratsjárstöðvar og auka þannig herbúnað hér á landi og hyggur að þar séu bestu varnirnar, þá tel ég að bestu varnirnar séu þær að gera allt sem við getum til að hrinda af okkur sjálfum og öðrum þjóðum heimsins ógnun vígbúnaðarins. Og hvernig gerum við það? Ekki með því að taka þátt í hernaðaruppbyggingu, ekki með því að taka við auknum herbúnaði inn í okkar land, heldur með því að leggja áherslu á nauðsyn afvopnunar og sýna það með verkum okkar bæði á alþjóðavettvangi og heima fyrir, þ. á m. með því að taka ekki við aukningu á þeim herbúnaði hér á landi sem nýjar hernaðarratsjárstöðvar tvímælalaust eru. Með því að sýna slíkan kjark í afstöðu sinni til vígbúnaðar getur lítil þjóð úti við ystu höf kveðið sér hljóðs í þágu friðar í heiminum og orðið þeim sem stærri eru og voldugri verðugt fordæmi. Slíkt tel ég sæmandi verkefni íslenskrar þjóðar í stríðandi og hungruðum heimi.
Herra forseti. Þetta eru þær meginástæður sem liggja til grundvallar því að Kvennalistinn er andvígur allri aukningu á vígbúnaði hverju nafni sem nefnist og sem fram kemur í 1. lið nál. 1. minni hl. hv. utanrmn. og eins og ljóst má vera af 2. lið nál. benda skoðanakannanir til að sama gildi um um það bil helming þjóðarinnar. Hafa margir látið í sér heyra um þessa hluti á opinberum vettvangi á undanförnum misserum og langar mig til að vitna hér í blaðagrein sem séra Jakob Hjálmarsson sóknarprestur á Ísafirði skrifar í Morgunblaðið þann 30. jan. s. l. Eins og menn vita og fram hefur komið í fjölmiðlum er séra Jakob sjálfstæðismaður. Séra Jakob segir, með leyfi forseta:
„Við viðurkennum nauðsyn varna landsins og leggjum landið sjálft á metaskálarnar til að þjóðin gefi komist hjá að vera með í sorglegu vopnaskaki þjóðanna. Í þessu ljósi verður sú stefna mikilvæg sem allar ríkisstjórnir hafa fylgt frá stríðslokum og miðar að því að hafa hernaðarumsvif varnarliðsins hér í lágmarki og aðgreina þau þjóðlífinu svo sem kostur er. Í því ljósi verður flugstöðvarbyggingin á Keflavíkurflugvelli bráðnauðsynleg. Samstarf Landhelgisgæslu, Flugmálastjórnar, Pósts og síma, lögreglu, Almannavarna og annarra stofnana við varnarliðið umfram ýtrustu nauðsyn verður hins vegar til ófarsældar. Vissulega munum við þurfa á ráðgjöfum og sérfræðingum að halda til að leggja mat á og vera með í umfjöllun um öryggis- og varnarmál, bæði hér heima og erlendis, og þátttaka í öllu stjórnmála- og áætlunarstarfi Atlantshafsbandalagsins er sjálfsögð. Af þessum sjónarhóli skoða ég nú hugmyndir um byggingu nýrra ratsjárstöðva. Með mikilli tregðu og varhygð hljótum við að samþykkja aukin hernaðarumsvif hérlendis. Við berum ekki síður ábyrgð á fjárfestingum í þessu sambandi en aðrir bandamenn okkar og horfum ekki fram hjá því að auðvitað eru ratsjárstöðvarbyggingar þessar hluti af brjáluðu vígbúnaðarkapphlaupi í sveltandi heimi.“
Svo mörg voru þau orð. Hins vegar bregður nú svo við að þrátt fyrir málafylgju þessa sjálfstæðismanns og sjálfsagt fleiri sem þeim flokki fylgja rita allir hv. þm. Sjálfstfl. í hv. utanrmn. undir meirihlutaálit þess efnis að fella þá þáltill. sem hér er til umr. og lýsa sig þar með samþykka því að nýjar hernaðarratsjár verði reistar hér á landi. Þeim atriðum, sem fram koma í nál. meiri hl. n. á þskj. 735, er í rauninni svarað í nál. 1. minni hl. utanrmn., þannig að ég ætla ekki að fjölyrða þar um. Þó kemst ég ekki hjá því að vekja athygli á hve hæpnar röksemdir meiri hl. hv. utanrmn. eru, ekki síst hvað varðar fyrstu efnisliðina sem væntanlega eru einnig veigamestir að áliti þeirra sem að því nál. standa.
Ef dregin eru saman helstu atriði þessara fjögurra efnisliða, þá eru þau á þann veg að nýjar hernaðarratsjárstöðvar séu sárameinlaus eftirlitsbúnaður, þær breyti ekki hlutverki varnarliðsins á neinn hátt, geti ekki talist ögrun við neina þjóð og auki ekki líkurnar á að árás verði gerð á Ísland ef til styrjaldar kemur.
Eins og ég benti á við fyrri hluta umr. um þessa þáltill. eru ratsjárstöðvarnar sjálfar ekki hættulegar vígvélar. Það sem gerir þær að hættulegum herbúnaði er samhengi þeirra við annan herbúnað hér á landi, bæði þann sem til staðar er og þann sem kann að verða bætt við. Það er þetta samhengi sem mælir gegn þeim fullyrðingum sem fram koma í nál. meiri hl. hv. utanrmn. og vil ég í því sambandi benda hv. þm. á að fletta upp á bls. 29 í skýrslu öryggismálanefndar um Keflavíkurstöðina, en þar segir, með leyfi forseta:
„Um leið og hernaðarmannvirki eins og ratsjárstöðvar gegna eftirliti á friðartímum eru þau ekki síður sett upp með hliðsjón af því sem álitið er vera möguleg atburðarás á ófriðartímum. Væntanlega er gengið út frá svipuðum forsendum varðandi ratsjárstöðvarnar og koma fram í skýrslu þeirri sem gefin var út af fjárlagastofnun bandaríska þingsins 1977, þ. e. stuttum aðvörunartíma um að til ófriðar dragi og hættu á skyndiárás í slíku tilfelli.“
Af þessu má vitaskuld ljóst vera að hernaðarratsjár gegna mikilvægu hlutverki á ófriðartímum jafnt sem á friðartímum — og er þá einhver hér inni tilbúinn til að fullyrða að þar með séu þær ekki ögrun við neina þjóð, séu ekki hugsanlegt skotmark eða geti ekki skipt sköpum um það ásamt öðrum herbúnaði hér á landi hvert sé hlutverk herstöðvarinnar hér jafnt á friðar- sem ófriðartímum? Engan veit ég hermálasérfræðing hér sem getur fullyrt neitt slíkt og því eru þessar fullyrðingar meiri hl. hv. utanrmn. ekki á rökum reistar.
Hvað nál. 2. minni hl. utanrmn. varðar, sem útbýtt var á borð hv. þm. áðan, er ekkert um það að segja nema að þar er enga afstöðu að finna til þeirra framkvæmda sem hér um ræðir. Mun afstaða 2. minni hl. utanrmn. til þessa máls væntanlega koma fram þegar hv. 9. þm. Reykv. mælir fyrir nál. 2. minni hl. hér á eftir.
Herra forseti. Ég hef kosið að fylgja nál. 1. minni hl. hv. utanrmn. úr hlaði með því að ræða grundvallarforsendur þessa máls, enda snýst það um þá grundvallarafstöðu sem menn hafa til aukningar á vígbúnaði í heiminum. Við sem stöndum að áliti 1. minni hl. hv. utanrmn. höfum bent á að bygging nýrra hernaðarratsjárstöðva hér á landi tákni óumdeilanlega aukningu á hernaðarumsvifum hérlendis. Ég hef bent á að með því að samþykkja á Alþingi að taka við nýjum hernaðarratsjárstöðvum gerast Íslendingar með beinum hætti þátttakendur í því að veita fé til aukins vígbúnaðar í sveltandi heimi. Ég hef bent á að bestu varnirnar um frið og frelsi séu að gera allt sem í okkar valdi stendur til að lyfta af okkur sjálfum og öðrum þjóðum heimsins oki vígbúnaðarins og að eitt lítið skref í þá átt sé að samþykkja ekki byggingu nýrra hernaðarratsjárstöðva hér á landi. Við sem stöndum að nál. 1. minni hl. utanrmn. höfum bent á að þótt ratsjárstöðvarnar einar út af fyrir sig auki ekki stórlega á hernaðarumsvifin hérlendis verður að skoða þær í samhengi við breytingar á eðli herstöðvanna hér í það horf að þær geti orðið mikilvægar í hugsanlegum hernaðarátökum. Við höfum bent á að fram hefur komið mikil andstaða í landinu gegn þessum stöðvum, bæði í þeim byggðarlögum þar sem helst er ráðgert að þær verði reistar sem og meðal annarra landsmanna, og að tvímælalaust beri að virða óskir heimamanna um að þessar stöðvar verði ekki reistar við bæjardyr þeirra. Við höfum bent á að Íslendingar eigi sjálfir að tryggja öryggi þeirra sem um loft fara eða höf sigla og að fráleitt sé að blanda byggingu hernaðarmannvirkja saman við sjálfsagða íslenska öryggisþjónustu, hvað þá heldur að blanda innlendum stofnunum eins og Pósti og síma og Flugmálastjórn inn í undirbúning og hugsanlega starfsrækslu þessara hernaðarmannvirkja.
Herra forseti. Með þessum rökum leggur 1. minni hl. hv. utanrmn. til að þáltill. þessi verði samþykkt.