24.04.1985
Efri deild: 59. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4558 í B-deild Alþingistíðinda. (3832)

364. mál, jöfnun og lækkun hitunarkostnaðar

Frsm. (Davíð Aðalsteinsson):

Hæstv. forseti. Enda þótt ég ætli mér ekki að fara að deila við hv. 4. þm. Vesturl. vil ég að það komi fram við þessa umr. að ég hafði þann skilning varðandi þær upplýsingar sem beðið var um og kynntar hafa verið hér að nm. í iðnn. hefðu sæst á að þær upplýsingar kæmu fram við umr. Ég vil taka fram að það var minn skilningur að hæstv. iðnrh. yrði viðlátinn þessa umr., enda þótt ég gerði mér grein fyrir því að það væri ekki beinlínis krafa hv. 2. þm. Austurl. En ég vildi að þetta kæmi fram. Það var minn skilningur og er að iðnnm. hefðu sæst á að upplýsingarnar kæmu fram við 2. umr. Upplýsingarnar eru komnar fram. Ég vil taka það sérstaklega fram að það var alls ekki ætlun mín að fara á nokkurn hátt á svig við hv. meðnefndarmenn mína.