24.04.1985
Neðri deild: 60. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4578 í B-deild Alþingistíðinda. (3862)

289. mál, Landmælingar Íslands

Frsm. minni hl. (Steingrímur J. Sigfússon):

Herra forseti. Ég vil byrja á því að samgleðjast hæstv. samgrh. með þau ánægjulegu tíðindi að Danir skuli vera að skila heim þessum frumgögnum herforingjaráðskortanna og verður ánægjulegt fyrir hæstv. ráðh. að taka á móti þeim sem eins konar handritasendingu. Þetta eru vissulega merk gögn og ég tek einnig undir það að sú skylda hvílir á herðum okkar að sjá til þess að þau verði sæmilega varðveitt. Eins og búið er að Landmælingum Íslands í dag er borin von að svo geti orðið. Þar eru nú að skemmast og eyðileggjast í stórum stíl t. a. m. filmur með frumgögnum frá fyrstu dögum loftljósmyndatöku á Íslandi. Starfsmenn stofnunarinnar orða það svo að þeir séu að taka filmurnar í nefið þegar þær eru orðnar að dufti og geta þá sparað sér neftóbakskaupin. Fátt er svo með öllu illt... En þannig er þetta samt. Þar mígleka geymslur og þar er ekki hægt að halda uppi réttu hitastigi og rakastigi eins og þarf að vera í þeim geymslum sem geyma filmur og handrit. Kannske verður þessi lagasetning og allt það brölt sem um hana er þó til þess að vekja einhverja alþm. til umhugsunar um hvernig þarna er að hlutunum búið.

Ég tel engan veginn vansalaust hvernig staðið hefur verið að Landmælingum á Íslandi á undanförnum áratugum. Með það sérstaklega í huga geri ég tillögur um þetta stjórnarfyrirkomulag á Landmælingum Íslands. Það er mikið verk óunnið, eins og reyndar segir í nál. minni hl., í þá veru að reyna að samræma vinnubrögð og starfsemi þeirra fjölmörgu aðila sem standa að landmælingum á Íslandi. Það er ekki nóg, eins og hæstv. ráðh. virðist halda, að koma í veg fyrir að margir séu að vinna að sama verkinu í einu. Það á sér sjálfsagt stað í allt of miklum mæli, en það er ekki það eina sem miður fer í þessum efnum. Menn eru hér að mæla í mismunandi mælikerfum. Menn nota mismunandi staðla, mismunandi, hnitakerfi o. s. frv. störf opinberra stofnana sem eru að vinna þarna hver á sínu sviði nýtast ekki sem skyldi vegna þess að það er enginn einn aðili sem samræmir þessi störf, sér um að mælingar séu allar í stöðluðu kerfi og séu þannig nýtanlegar í einu og sama formatinu. Það er ekki síst þetta hlutverk sem ég vil að landmælingastjórn taki að sér og ég tel að það sé óhjákvæmilegt að hún hafi þarna framkvæmdaskyldu. Hún þarf að geta vísað í lög þar sem henni er falið að sinna þessu verkefni. Annars gerist þetta ekki, því miður. Það er sannfæring mín, virðulegi samgrh.

Það er allt gott um þetta blessað samráð að segja og ágætt að hafa það í grg. Vissulega er það til bóta. Það er skárra en ekki neitt. Ég tók það reyndar fram í samgrn. að ég væri tilbúinn að fallast á þá málamiðlun að við þessa stofnun starfaði einhvers konar ráðgjafar- eða samráðsnefnd sem innti þetta hlutverk af höndum, en þó aðeins að um það væri ákvæði í lögunum sjálfum og hennar hlutverk. Menn treystust ekki til að ganga svo langt vegna andúðar eða ótta við að það yrði svo erfitt að skipa nefnd. Það er því greinilegt að ástæðan fyrir þessum vandræðum er hugleysi. Menn treystast ekki til þess að ákveða hverjir eiga að tilnefna í þessa stjórn. Það getur vel verið að Vegagerð ríkisins eigi ekkert sérstakt erindi inn í þetta og af því að hún heyrir undir sama ráðh. og Landmælingar má hún mín vegna falla þarna út: Ég er tilbúinn til að sameinast um breytingu þar að lútandi. Ég teldi þá ekki óeðlilegt að t. d. samtök mælingaverkfræðinga kæmu þarna í staðinn. Þá yrðu tilnefningar frá fjórum mismunandi aðilum, í fyrsta lagi frá mælingaverkfræðingum, í öðru lagi frá Háskóla Íslands sem heyrir undir menntmrn., í þriðja lagi frá Rannsóknastofnun landbúnaðarins sem heyrir undir landbrn. og í fjórða lagi frá Orkustofnun sem mun vera eitthvað skyld iðnrn. Ég held þá að bærilega væri þá fyrir því séð ef fjórir fulltrúar úr mismunandi áttum og frá mismunandi ráðuneytum ættu þarna fulltrúa. Ég vil segja það við hæstv. ráðh. að vel kann að vera að það yrði einhvers staðar einhver fýla út af því að stjórnin yrði þannig tilnefnd, en ég held að andrúmsloftið yrði samt skárra í kringum það en það verður með þessu eins manns kerfi virðulegs ráðherra. Ég bakka ekki tommu með það að hér er heldur óheppilega að hlutunum staðið og mér finnst virðulegt Alþingi setja ofan og því hafi farið aftur í lagasetningu frá 1978 ef borin eru saman þessi pappír sem nú er boðið upp á og það frv. sem þá var lagt fram á Alþingi.

Virðulegur ráðh. var að barma sér yfir því að allt of langan tíma tæki að vera að fara yfir allt stjórnkerfið og ræða hvernig standa ætti að þessum hlutum. Ég held að mjög þarft væri að hv. Alþingi tæki sér einhvern tíma smálotu í þessum málum, því að þetta skiptir ekki litlu máli. Virðulegir þm. skulu athuga það að við erum ekki að tala um neina smámuni þar sem við erum að tala um stjórnarfyrirkomulag á opinberum rekstri og opinberum þjónustustofnunum. Það fer verulega eftir því hvers eðlis sú starfsemi er sem sinnt er í hverri og einni stofnun. Það getur vel verið að þurfi ekki stjórn í stofnun sem hefur einkarétt á sínu sviði eða er algerlega ein um að sinna því verkefni í landinu. En það er ekki tilfellið hvað Landmælingar Íslands varðar, langt því frá. Þar er stofnun að starfa á sviði sem fjölmargir aðrir aðilar fjalla um á einn eða annan hátt og það gerir náttúrlega starfsemi hennar sérstaks eðlis.

Í mínum huga er það aðalatriðið að nokkrir aðilar úr „feltinu“, eins og það heitir á landmælingamáli, eigi aðild að stjórnun stofnunarinnar. Ekki er endilega aðalmálið hverjir það eru, heldur að þar séu einhverjir fulltrúar nokkurra aðila á þessu sviði sem geti verið þarna inni til faglegs ráðuneytis og faglegrar stjórnunar fyrst og fremst.

Ef virðulegur samgrh. vill einn ráða alla menn að þessari stofnun má hann það mín vegna. Ég taldi það einfaldlega greiða við hann frekar en hitt að taka frá honum þann kaleik og fela það frekar forstjóra og stjórn stofnunarinnar og hefði talið það að öllu jöfnu eðlilegra. Það má ekki misskiljast að ég legg til að þetta frv. verði samþykkt og það kemur fram í nál. minni hl. En ég legg til að það verði samþykkt með þeim breytingum sem ég flyt á sérstöku þskj. og einnig með brtt. meiri hl. því að þær ganga í rétta átt og eru reyndar við aðra kafla, þ. e. II. kafla frv. og aftur úr og eru allar til bóta að mínu mati. En meiri hl. treystir sér ekki til að gera brtt. við 2. og 3. gr. þar sem stjórnun stofnunarinnar er ákveðin í tveim setningum og við það er ég alveg ósáttur og kaus þess vegna að skila sérstöku nál. um þetta.

Það mætti segja nokkur orð um þennan pappír eins og hann birtist hér á virðulegu Alþingi, þetta frv. um Landmælingar Íslands, og ég verð að segja eins og er að mér finnst þetta óskaplega rýrt í roðinu. T. d. greinar 1–4 í kaflanum um stjórn stofnunar. Þetta er ansi götótt stjórnskipulag fyrir eina opinbera stofnun og mikið er skilið eftir handa reglugerðinni, það verð ég að segja. Menn þurfa ekki endilega að vera sammála mér um að lög þurfi helst að vera svo greinargóð að sem minnst þurfi að segja eða helst ekkert í reglugerð, að þau standi fyrir sínu. En hvað um það. Það er ansi mikið skilið eftir þarna opið og aðilum úti í bæ er ætlað ansi mikið hlutverk í því að ákveða þessari stofnun stjórnarfyrirkomulag.

Ég held að það væri einnig þarft að hv. Alþingi tæki sér einhvern tíma smátíma til að ræða þessi málefni hvað varðar reglugerðarsetningu í tengslum við þau lög sem virðulegt Alþingi er að samþykkja á hverjum tíma. Ég verð að segja að þegar verkefni stofnunar er ekki skilgreint nánar en gert er hér í 5. gr. þessa frv. til l. um Landmælingar Íslands er ansi mikið skilið eftir fyrir reglugerðina einnig á því sviði. En engu að síður segja höfundar þessa frv. ósköp einfaldlega í 4. gr.:

„Um skipulag og starfsháttu Landmælinga Íslands skal nánar ákveðið í reglugerð.“

Það er allt og sumt sem þeir hafa um það að segja. Við þetta er ég ósáttur og tel eðlilegra að a. m. k. einhver rammi sé gefinn um hvernig sú reglugerð skuli vera og á hvaða þáttum hún skuli taka.

Herra forseti. Það virðast ekki margir hafa áhuga á þessari umr. hér og þm. eru heldur sútarlegir yfir þessu þeir fáu sem hér eru, þannig að ég ætla ekki að fara að ræða þetta miklu lengur. Ég hefði þó alveg skap í mér til að halda dálítið lengri ræðu um þetta, sérstaklega ef virðulegur samgrh. gerði mér þann heiður að nenna að hlusta á þessa umr. En svo er ekki og þá skal ég ekki vera að þýfga meira um það.

Ég legg að sjálfsögðu til að brtt. mínar verði samþykktar og ég endurtek það sem ég sagði áðan. Hversu mikil nauðsyn sem er á því að setja þessari stofnun lög skal það vel vanda sem lengi á að standa og ég mun ekki taka þátt í því að standa hér að lagasetningu, sem ég er í grundvallaratriðum ósammála og ósáttur við, bara vegna þess að einhverja stofnun einhvers staðar úti í bæ vantar lög. Ég mun því ekki standa að samþykkt þessa frv. nema breytingar í þá veru sem ég flyt hér till. um nái hér fram að ganga.