24.04.1985
Neðri deild: 60. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4580 í B-deild Alþingistíðinda. (3863)

289. mál, Landmælingar Íslands

Sturla Böðvarsson:

Herra forseti. Ég skal ekki lengja þessa umr., en vil minna hv. 4. þm. Norðurl. e. Steingrím J. Sigfússon á það, þegar hann talar um efnisrýrð frv., að það hafa engin lög verið um þessa stofnun. Með einhverjum hætti hefur hún þrátt fyrir allt getað lifað af þau ósköp.

Ég segi um þann málflutning sem þm. hefur haft uppi hér og við að mæla fyrir nál. sínu að efni standa alls ekki til þess málflutnings vegna þess að í brtt. n. er í öllum meginatriðum komið til móts við þá aðila sem hafa lagt til merkustu breytingarnar við frv. Vil ég þá nefna sérstaklega, vegna þess að hann tiltók það, að í brtt. við 5. gr. er tekið sérstaklega fram að landmælingarnar skuli standa fyrir setningu staðla fyrir landmælingar og kortagerð o. s. frv. Þetta vil ég taka sérstaklega fram. Auk þess, eins og fram kom í máli hæstv. samgrh., er gert ráð fyrir að samráð verði haft á faglegum grundvelli.

Það er allt annað hvort verið er að fjalla um stofnanir sem hafa mjög sérhæft svið, eins og Landmælingar Íslands, eða hvort verið er að fjalla um stofnanir eins og Hafnamálastofnun sem hefur á sinni könnu allt annars konar verkefni. Ég tel að í framhaldi af yfirlýsingum ráðh. og í framhaldi af því sem nefndin leggur til í brtt. verði hið faglega samráð, sem er aðalatriði málsins, tryggt. Ég vil benda á að skv. brtt. frá samgn. er lögð áhersla á að það sé greiður aðgangur að gögnum Landmælinga og það er mjög mikils vert.

Ég ætla ekki að hafa uppi miklar rökræður um það atriði hvort yfir höfuð eigi að vera stjórn yfir öllum ríkisstofnunum. Hins vegar vil ég segja það að ég tel vafasamt að setja upp stofnanir sem ríkisstofnanir sameinist um að standa að. Ef hv. 4. þm. Norðurl. e. hefði viljað taka sérstaklega tillit til þeirra aðila annarra sem fjalla um landmælingar hefði hann átt að gera till. um að inn í stjórn kæmu þeir aðilar sem mest vinna að landmælingum. Það eru ýmsar mælingastofur í landinu. Ég tel miklu meiri ástæðu til þess og hefði talið meiri ástæðu til þess að þeir aðilar fengju aðgang þarna að en Háskólinn. Hann tók sérstaklega fram hver þau rök voru sem stæðu til þess að Háskólinn ætti að hafa aðild að. Það eru mælingastörf nemenda. Ég held satt að segja, með fullri virðingu fyrir störfum nemenda að landmælingum, bæði á vegum Háskólans og Tækniskólans, að ekki sé ástæða til þess að Háskólinn eigi þess vegna aðild að Landmælingum Íslands. Þau verk eru unnin þannig að sömu svæðin eru mæld áratugum saman. Það er ekki sérstök ástæða til þess þess vegna að Háskólinn hafi aðild að þessari stofnun.

Ég vil endurtaka það að ég tel að með brtt. hafi samgn. komið til móts við mikilvægustu atriðin sem umsagnaraðilar settu fram.