29.04.1985
Efri deild: 60. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4586 í B-deild Alþingistíðinda. (3873)

323. mál, iðnþróunarsjóðir landshluta

Frsm. (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Hæstv. forseti. Hv. iðnn. hefur tekið frv. þetta til meðferðar. Nefndin leitaði álits allmargra aðila, skrifaði samtals tíu aðilum, en hefur ekki fengið svar nema frá þremur og þar koma fram vissir fyrirvarar eða athugasemdir við frv. Ég sé ekki ástæðu til þess að fara að rekja það sérstaklega.

En það leikur hins vegar ekki neinn vafi á því að hér er um merkilegt mál að ræða þar sem er frv. það sem við fjöllum nú um, um stofnun iðnþróunarsjóða landshluta. Eins og segir í grg. með frv. skiptir fátt meira máli í atvinnumálum Íslendinga á næstu árum og áratugum en að stuðla að hagstæðri iðnþróun um allt land.

Ég hygg að það geti naumast verið ágreiningur um þessa skoðun. Hins vegar þótti n. einsætt að það þyrfti að afhuga þetta mál betur en gert hefur verið svo að ekki yrði rasað um ráð fram. Það sem nefndin hafði sérstaklega í huga voru ákvæði frv. um fjáröflun til árlegu framlagi frá sveitarfélögum og auk þess sérstöku iðnþróunargjaldi sem lagt verði á raforkuver í landinu. Í þeim umsögnum, sem n. fékk um málið, komu aðallega fram athugasemdir um þessi efni, fjáröflun til sjóðsins. Nefndinni sjálfri fannst einnig að það mál væri svo viðurhlutamikið að það þyrfti að athuga betur með hverjum hætti slíkir iðnþróunarsjóðir landshlutanna væru fjármagnaðir.

Með tilliti til þessa lagði nefndin til að málinu yrði vísað til ríkisstj.