30.10.1984
Sameinað þing: 11. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 599 í B-deild Alþingistíðinda. (388)

80. mál, einingahús

Félmrh. (Alexander Stefánsson):

Herra forseti. Vegna einhverrar tregðu hjá hv. 5. landsk. þm. að skilja töluð orð vil ég aðeins endurtaka það, sem ég sagði, að ég mun boða stjórn stofnunarinnar á fund um þetta mál og leggja fyrir stjórnina þau gögn í málinu sem ég hef sem rök fyrir því að láta breyta þessum reglum í það horf sem þær voru áður.