29.04.1985
Neðri deild: 61. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4598 í B-deild Alþingistíðinda. (3893)
455. mál, nýsköpun í atvinnulífi
Svavar Gestsson:
Herra forseti. Þau mál sem hér eru til umræða; og mér finnst sjálfsagt að þau séu öll rædd í einu, snerta auðvitað ákaflega marga þætti íslenskrar efnahagsstjórnar og atvinnumálastjórnar. Þau snerta deilumál sem hafa verið mjög lengi uppi á Íslandi, hvernig afskiptum opinberra aðila af atvinnulífi eigi að haga, og þau snerta deilumál sem hefur verið sérstaklega mikið um rætt allt frá árinu 1971 þegar Framkvæmdastofnun ríkisins var stofnuð undir forrustu þáv. ríkisstjórnar Ólafs Jóhannessonar. Ef þau frumvörp verða að lögum, sem hér er gerð tillaga um, þá hefur tekist að kljúfa þessa einu stofnun upp í fjórar nýjar stofnanir. Það eru afrekin sem liggja fyrir, einkum undir forrustu Sjálfstfl., við að draga úr bákninu hér í landinu. Það var Þjóðhagsstofnun sem var tekin þarna út úr með ákveðnum hætti árið 1976, það var Byggðastofnun, sem hér var frv. um, það var Framkvæmdasjóður og það er svo það Þróunarfélag sem hér hefur verið mælt fyrir tillögu um. Þannig að á þessari skepnu, sem menn deildu á hér forðum 1971, og töldu mikið bákn og hættulegt, yrðu skv. þessum tillögum fjögur höfuð. Það er því full ástæða til þess að óska frjálshyggjudeildinni í Sjálfstæðisflokknum, sem hóf sína stjórnmálastarfsemi með því að heimta báknið burt, til hamingju með þennan gífurlega árangur sem birtist í þessum frumvörpum.
Það er ástæða til þess, herra forseti, að fara hér bæði yfir frumvörpin sem slík og eins almennt þá ræðu sem forsrh. flutti áðan. Ég ætla að víkja í upphafi að almennum atriðum í ræðu forsrh. Hann sagði: Þessi frumvörp hafa þann tilgang að draga úr ríkisafskiptum. Hvað er í rauninni hæft í því? Það sem lagt er til er að ríkið eigi svo að segja eitt nýtt hlutafélag, sem getur verið með hlutafé frá ríkinu að upphæð allt að 200 millj. kr., þannig að ríkisafskiptin af atvinnumálum yrðu færð í þann búning að vera á vegum hlutafélags í staðinn fyrir að vera á vegum lánadeildar Framkvæmdastofnunar ríkisins. En það er ekki látið hér við sitja við að auka stórkostlega ríkisafskipti í raun, heldur eru þessar stofnanir, sem hér er gerð tillaga um, allar settar undir forsrh. einan. En það var mjög þýðingarmikið ákvæði í lögum um Framkvæmdastofnun ríkisins að hún heyrði undir ríkisstj. í heild og um það var samkomulag á sínum tíma, 1971, og svo aftur í ríkisstjórn Geirs Hallgrímssonar 1974–1978 að þessi stofnun, Framkvæmdastofnun ríkisins, ætti að heyra undir ríkisstj. í heild. Hérna er horfið frá þessu og þetta er í rauninni sett undir forsrh. einan með mjög afgerandi hætti, þannig að hann fer einn með svo að segja allt vald yfir hlutafé ríkisins í Þróunarfélaginu, sem stundum er kallað því nafni, upp á 500–700 millj. kr. Menn eru ekki nákvæmari með litlu tölurnar en það þegar þeir eru að sletta þeim frá sér að þeir segja svona 500–700 millj. kr. Það er eins og það sé nóg til af seðlum í ríkisbúinu um þessar mundir. Síðan er gerð sérstök tillaga um það að takmarka vald Alþingis verulega frá því sem verið hefur vegna þess að forsrh. á einn að fara með Þróunarfélagið. Forsrh. á einn að fara með Framkvæmdasjóð og Alþingi fær einungis að kjósa menn í stjórn Byggðastofnunarinnar. Þannig er vald Alþingis takmarkað stórkostlega frá því sem það er nú. Og til að bæta um betur er vald embættismanna síðan aukið sérstaklega með sérkennilegu stjórnvaldi sem er skotið þarna inn eins og hér segir: „stjórn Framkvæmdasjóðs starfar undir forsrh. og er skipuð þremur mönnum, einum tilnefndum af forsrh., einum tilnefndum af fjmrh. og einum tilnefndum af Seðlabankanum.“ Það er sem sé verið að skerða vald Alþingis og auka embættismannavaldið og með því að hafa stofnanirnar fjórar en ekki eina er verið að framleiða fleiri forstjóra, fleiri ráðamenn, fleiri menn í hina nýju stétt hinna margvíslegu fríðinda sem við höfum verið að ræða um hér á Alþingi að undanförnu. Kannske það sé það sem liggur á bak við þessar miklu stjórnarbætur núv. ríkisstj. að það eigi að fara að raða fulltrúum helmingaskiptaflokkanna á þessa jötu. Það hefur þurft að stækka hana til að fleiri kæmust á garðann áður en gefið verður á hann. Það eru fjögur bákn fyrir eitt. Ég endurtek sérstakar hamingjuóskir mínar til 2. þm. Reykv. og 1. þm. Suðurl. með árangur þeirra í baráttunni gegn bákninu mikla.
Þetta er eitt meginatriðið sem ég ætla að benda á í sambandi við þessi frumvörp. Það er verið að fjölga í embættismannaliðinu og styrkja það, hinu dýra embættismannaliði, og það er verið að rýra vald Alþingis.
En það er fleira í þessu máli sem vert er að vekja sérstaka athygli á. Það er að áherslan á byggðasjónarmið, á jafnvægi í byggð landsins er mun minni í þessum frumvörpum en í lögunum um Framkvæmdastofnun ríkisins. Á sama tíma og landsbyggðin stendur hallari fæti en nokkru sinni fyrr um mjög langt skeið flytur ríkisstjórn Framsfl. frv. til l. um minnkandi áherslur á stuðning við byggðaþróun í landinu. Auðvitað býst maður ekki lengur við neinu öðru en nöktum frjálshyggjutillögum frá Framsfl., sbr.. tillögur Sambands ungra framsóknarmanna sem hafa verið birtar að undanförnu. En þessi yfirlýsing um að Framsfl. segi sig frá byggðastefnunni í raun er ákaflega athyglisverð og er kannske punktur yfir i-ið. Á sama tíma og þetta liggur fyrir er það deginum ljósara að ríkisstj., þrátt fyrir allt talið um nýsköpun í atvinnulífi, tekur hvergi á málum þannig að ætla megi að það hafi í för með sér eflingu atvinnulífsins. Hvernig er ástandið í sjávarútveginum? Hvernig er ástandið í landbúnaðinum? Ræður hæstv. forsrh. og forrustumanna stjórnarflokkanna um eflingu atvinnulífsins á sama tíma og ástandið í landbúnaði og sjávarútvegi er eins og menn þekkja eru hjómið eitt, innihaldslaust hjóm, loftfimleikar. Á bak við það er greinilega engin alvara. Það er tilraun til að slá ryki í augu kjósenda.
Ég held að full ástæða væri til þess, herra forseti, að hér færi fram í þinginu ítarleg umræða um atvinnumál í heild, um þróunarmöguleika þjóðarbúsins, hagvaxtarhorfur á næstu árum og hvað má til varnar verða til að auka hér framleiðslu og verðmætasköpun í landinu, þannig að við sköpum betri forsendur fyrir bætt lífskjör á komandi árum og áratugum. Það væri full ástæða til að fram færi heildarumræða um það mál svo að flokkarnir gætu komið fram með sínar tillögur í atvinnumálum, hvað þeir vilja gera og hvað þeir vilja leggja á sig og hvert þeir vilja sækja peningana til þess að stuðla að raunverulegri nýsköpun í atvinnulífinu. Menn eiga að velja því fyrir sér: Á að halda áfram á þeirri braut að taka hér erlend lán á erlend lán ofan eða á að reyna að knýja hér fram í landinu stóraukinn sparnað frá því sem nú á sér stað?
Ég ætla þessu næst, herra forseti, að víkja að einstökum frumvörpum sem hér eru á dagskrá og koma síðan að nokkrum almennum áherslum í atvinnumálum. Ég tek þá fyrst til umræðu frv. á þskj. 774 um þátttöku ríkisins í hlutafélagi til að örva nýsköpun í atvinnulífi og um heimildir til annarra aðila til þátttöku í félaginu. Það var sannarlega kominn tími til að Framsfl. þyrði að tala um nýsköpun. Það var bannorð í Framsfl. í nokkra áratugi, 40 ár. Eysteinn gerir að vísu tilraun til þess í ævisögu sinni núna, 2. eða 3. bindi, að eigna Framsfl. nýsköpunina frá 1944. Það er eins og gengur hjá þeim þar á bæ, þeir reyna auðvitað að krafsa það til sín sem þeir mögulega geta. En það er kostulegt að Framsfl. skuli nú allt í einu þora að taka sér í munn þetta orð: nýsköpun. En maður sér á þessum pappírum að það er engin alvara á bak við þetta, ekki nokkur. Eins og kom fram í útvarpsþætti núna um helgina er eitt alvarlegasta pólitíska vandamálið á Íslandi um þessar mundir að stjórnmálamenn eins og hæstv. forsrh. komast upp með það mánuðum og árum saman að blaðra um hluti eins og nýsköpun í atvinnulífinu án þess að nokkurn tíma sé gengið á þá með hvað þeir í raun og veru vilja í þessum efnum. Í ræðu hæstv. ráðh. áðan kom ekkert fram um það hvernig þessi frv. geti þar einhverju breytt. Það kom ekkert fram um það. Hann sagði að skv. þessu frv. væri farin áhættufjármagnsfyrirtækjaleið, það er orðrétt vitnað í hæstv. ráðh., áhættufjármagnsfyrirtækjaleið sem hér væri verið að fara. Ég verð að segja að þó að orðið sé langt, þá er það ekki tæmandi fyrir mig. Frv. er í rauninni ákaflega óljóst.
Í frv. er gert ráð fyrir að ýmsum fyrirtækjum, þar á meðal viðskiptabönkum, verði heimilað að leggja hlutafé í þetta Þróunarfélag. Í umræðum um viðskiptabanka á dögunum lýsti ég andstöðu minni við það að viðskiptabankarnir væru teknir inn í almennan atvinnurekstur. Ég endurtek það að ég tel óheppilegt að gera ráð fyrir því að viðskiptabankarnir séu að vasast í almennum fyrirtækjarekstri. Ég tel það óheppilegt og ég lýsi andstöðu minni við þá hugmynd.
Í 4. gr. frv. er gert ráð fyrir að verja megi allt að 700 millj. kr. að meðtöldum ríkisábyrgðunum handa þessu félagi. Í frv. kemur ekki fram á hve löngum tíma hugsanlega mætti nota þetta fjármagn. Eru menn að tala um að verja þessu fé kannske öllu á þessu ári? Ég býst nú ekki við því. En ef svo væri eykst hallinn á fjárlögum sem þessu svarar, vegna þess að í fjárlögunum er aðeins gert ráð fyrir, ef ég man rétt, 50 millj. í þessu skyni. Ef ríkissjóður greiddi allar þessar upphæðir á árinu 1985 væri því verið að auka hallann á ríkissjóði sem þessu næmi. Þess vegna er nauðsynlegt að spyrja hæstv. fjmrh. og hæstv. forsrh.: Á hve löngum tíma gera þeir ráð fyrir að verja þessum upphæðum, hvorki meira né minna en 700 millj. kr.? Það er ekki eins og þetta séu neinir smáaurar sem menn eru að tala um hér.
Til viðbótar er gert ráð fyrir því að fyrirtæki sem kaupa hlutabréf í þessu félagi geti fengið helminginn að láni, helminginn af andvirði hlutabréfanna. Ef þau kaupa t. d. bréf fyrir 10 millj. geta þau fengið 5 millj. að láni skv. ákvæðum 4. gr., ef ég skil hana rétt, og auk þess notið skattafrádráttar skv. lögum nr. 9/1984. Það er því bersýnilegt að ætlun Sjálfstfl. og Framsfl. er að þetta félag hafi betri möguleika til fjáröflunar en öll önnur hlutafélög. Það kann út af fyrir sig að vera skynsamlegt að halda þannig á málum, en er það ekki alveg ljóst að verið er að veita þessu félagi algjöran forgang á hlutafélagamarkaði? Ég er ekki að segja að slíkt þurfi að vera fráleitt, en mér finnst það athyglisvert að tillögur um slíkt skuli koma frá Sjálfstfl. og þetta hlutafélag þannig tekið fram yfir öll hlutafélög í landinu með alveg sérstök fríðindi. Þetta er tekið fram hér í 4. gr. þar sem segir:
„Að veita einstaklingum og félögum í atvinnurekstri lán til allt að fjögurra ára til kaupa á hlutabréfum í hlutafélagi skv. 1. gr.“
Hérna er auðvitað verið að ýta undir að menn kaupi hlut í þessu og allt gott um það að segja. En það er athyglisvert, eins og ég sagði, að Sjálfstfl. skuli hafa forrustu um að þetta ríkishlutafélag skuli hafa þarna algera forréttindastöðu miðað við önnur hlutafélög í landinu. Nú er ég ekki kominn til með að segja að það þurfi að vera fráleitt að standa svona að málum. En ég bendi á hina pólitísku þversögn fyrir Sjálfstfl. í þessu efni að því er varðar þetta sérstaka hlutafélag.
Síðan getur það auðvitað komið upp að ríkisstj. ráði þessu hlutafélagi að öllu leyti, 100%. En það er ekki ríkisstj. í heild, heldur er það forsrh. Hafa stjórnarflokkarnir gert einhvern samning um það hvernig að stýringu þessa hlutafélags verður staðið? Ég spyr bæði hæstv. forsrh. og hv. 1. þm. Suðurl.: Hafa stjórnarflokkarnir samið eitthvað um það hvernig forsrh. muni fara með þetta vald upp á 500–700 millj. kr. sem hér á að fara að færa honum? Eða er honum frjálst að fara þá leið sem honum sýnist ef hann heldur sig innan ramma þeirra óljósu ákvæða sem er að finna í greinargerð frv. og ég kem hér að á eftir. Og til þess að það komi beint fram, sem ég er hér að vísa til, þá er best að fara strax yfir grg. um tilgang félagsins sem birt er á bls. 3 í grg. ríkisstj. Þarna er birtur innan gæsalappa eða hermimerkja, eins og sumir kalla það nú hér, kafli um tilgang þessa félags. Er þetta samþykkt ríkisstj., þessi kafli hér?
Það kemur í raun og veru ekki fram með skýrum hætti hvað þetta er. Ég vænti að þetta sé ekki samþykkt t. d. landsfundar Framsfl. eða miðstjórnarfundar Framsfl. En það kemur ekki fram hvaða skepna þetta er sem er hér innan hermimerkjanna á bls. 3 en það væri fróðlegt að vita hvað þetta er í rauninni. Er þetta samþykkt eða hvað er þetta? Er þetta bókun í ríkisstjórninni eða hvað er þetta eiginlega?
Burtséð frá því þá kemur þarna fram hver er tilgangurinn með þessu félagi. Það er að taka þátt í gerð og fjármögnun forkannana og hagkvæmnisathugana, að eiga frumkvæði að og taka þátt í stofnun, endurskipulagningu og sameiningu fyrirtækja. Á forsrh. einn að ráða því hvaða félög eru endurskipulögð og sameinuð? Á hann að ráða því einn ef ríkið á hlutafélagið, bara ríkið? Samkvæmt orðanna hljóðan á forsrh. í raun og veru að ráða þessu meira og minna einn. Sumir hafa eitthvað verið að tala um það að Framsfl. væri einhver hagsmunagæsluflokkur fyrir SÍS. Mér sýnist nú ekki verið að draga neitt úr möguleikum þeirra til hagsmunagæslu með þessu. Það er verið að skaffa þeim þarna 700 millj. kr. til þess að verja í endurskipulagningu og sameiningu fyrirtækja. Þetta er býsna sérkennilegt og býsna opinn aðgöngumiði fyrir hæstv. forsrh.
Og svo segir hér: að kaupa hlutabréf, kaupa hlutabréf atvinnufyrirtækja. Eftir hvaða reglum á að fara í þeim efnum? Eftir hvaða stefnu á að fara í þeim efnum? Það kemur ekkert fram um það í þessu frv. hvaða stefnu á að fylgja. Þetta frv. um 700 millj. kr. er m. ö. o. tæknilega séð þvílíkt sull að það hefur aldrei sést annað eins hér í tíð núv. ríkisstj. og er þá langt til jafnað.
Svo segir hér í tölul. 5: „Tilgangur félagsins er að taka þátt í og styrkja hagnýtar rannsóknir á nýjungum í atvinnulífi og tilraunir með þær og aðstoða við öflun og sölu á réttindum til hagnýtingar þeirra.“ Allt er þetta góðra gjalda vert. En þarna er gert ráð fyrir því að félagið geti styrkt ákveðna starfsemi, styrkt, þ. e. gefið peninga. Það er gert ráð fyrir því hér að þetta félag hafi heimild til að gefa öðrum fyrirtækjum peninga. Það stendur hér skýrum stöfum. Ætlast menn til þess að forsrh. einn ráði því hverjum eru gefnir peningar? Mér þykir það nokkuð athyglisvert hvað hæstv. heilbr.- og trmrh. treystir kollega sínum í þessu efni t. d. Hann segir bara við hæstv. forsrh.: Minn kæri vin. Þú skalt gefa hérna 500–700 millj. kr. og ráðstafa því bara eins og þér sýnist. — Þetta heitir nú að vera almennilegur, hæstv. heilbr.- og trmrh. og samgrh. með meiru.
Í 6. gr. frv. segir svo, með leyfi forseta: „Forsrh. fer með mál er varða eignaraðild ríkisins að hlutafélagi skv. 1. gr.“ Vald forsrh. er algjörlega ótvírætt í þessu, 100%. Svo segir hér til að hnykkja á þessu í grg. — kannske hún hafi verið samþykkt á landsfundi Sjálfstfl., þessi grg.:
„Hér er lagt til að forsrh. fari með mál er varða eignaraðild ríkisins að hlutafélagi skv. 1. gr. Í því felst og að forsrh. fari með fyrirsvar ríkisins að því er varðar forgöngu um og undirbúning að stofnun nefnds hlutafélags.“
Hérna er ekkert verið að draga af því. Og mér finnst þetta nokkuð fróðlegt miðað við þær yfirlýsingar sem m. a. hafa áður komið fram frá þeim sjálfstæðismönnum. En ég vil spyrja: Hvernig verður stjórnin í þessu félagi? Er meiningin að félagið starfi algjörlega eftir almennum hlutafélagalögum? Hvernig er ætlunin að skipa stjórn þessa félags? Hvenær á að stofna þetta félag? Það stendur hérna í frv.: „Lög þessi öðlast þegar gildi.“ Hvenær fer fram hin mikla stofnun þessa félags? Það hefur ekkert komið fram um það hver er ætlunin í þeim efnum. En það væri fróðlegt að sjá það og fróðlegt að vita hvort hæstv. fjmrh. veit hvenær hann á að fara að dæla út þessum 500–700 millj. kr. (Gripið fram í.) Hann fréttir það, akkúrat, hann fær að sjá listann einhvern tíma. Kannske ekki í sjónvarpinu en einhvern tíma seinna. Þannig gengur það fyrir sig.
Og síðan kemur hér næsta mál, herra forseti, sem er 456. mál á þskj. 475, frv. til laga um Byggðastofnun. Það er þriðja afkvæmið sem þá verður til út af Framkvæmdastofnuninni. Fyrst var það Þjóðhagsstofnun, svo er það Þróunarfélag og síðan er það Byggðastofnun. Um þetta frv. gilda þær almennu athugasemdir sem ég hef í rauninni þegar gert. Það er gert ráð fyrir því að Byggðastofnunin heyri undir forsrh. í stað ríkisstj., eins og þetta er nú, þ. e. að Framkvæmdastofnunin heyrir undir ríkisstj. í heild. Menn kunna að bera því við og segja: Ja, ríkisstjórnin er ekki fjölskipað stjórnvald, það er auðvitað eðlilegt að þetta heyri undir einn ákveðinn ráðherra frekar. En þá spyr ég: Af hverju forsrh.? Ég bendi á það í þessu efni að það er í rauninni mjög óeðlilegt að forsrh. fari með yfirstjórn þessa málaflokks, mjög óeðlilegt. Það er mjög óeðlilegt að stofnun, sem fjallar um atvinnulíf og byggðajöfnun m. a., heyri undir forsrh. Ég teldi að mörgu leyti eðlilegra að Byggðastofnun heyrði undir félmrn. Það er sjónarmið sem ég hef áður látið koma fram og ég endurtek það núna.
Félmrn. fer með málefni sem varða sveitarfélögin, fer með Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Ég teldi þess vegna miklu eðlilegra að félmrn. hefði með þennan málaflokk að gera. Þetta er sjónarmið sem oft hefur komið fram hjá Alþb., en þetta er einnig sjónarmið sem hefur komið fram hjá Alþfl., m. a. í frv. sem ég trúi að Alþfl. hafi flutt hér á síðasta kjörtímabili. Ég spyr því: Eru einhver sérstök rök fyrir því að þetta sé allt saman undir forsrn., Þróunarfélagið þá líka? Forsrn. fer ekki með atvinnumál almennt en Þróunarfélagið ku eiga að hafa almennar skyldur í atvinnumálum. Forsrn. fer ekki með almenn atvinnumál en hins vegar fer iðnrn. með mjög mikilvæga þætti atvinnumála. Af hverju er verið að setja þessa hluti undir forsrn.? Þetta er bastarður í stjórnkerfinu eins og tillaga er gerð um þetta núna.
Ég vil þess vegna beina því til hæstv. ríkisstj. að hún hugleiði hvort þetta frv. um byggðamál á ekki að heyra undir félmrn. og hvort frv. um Þróunarfélag ætti ekki að heyra að einhverju leyti frekar undir atvinnuvegaráðuneytin en undir forsrn.
Varðandi þetta frv. um Byggðastofnun er felld út sú áhersla sem er í lögunum um Framkvæmdastofnun ríkisins á byggðastefnu. Það segir hér í lögunum um Framkvæmdastofnun ríkisins, með leyfi hæstv. forseta, 10. gr.:
„Byggðadeild gerir áætlanir um þróun byggða og atvinnulífs í þeim tilgangi að tryggja atvinnu og búsetu í byggðum landsins.“
Og í 28. gr. laga um Framkvæmdastofnun ríkisins segir svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Hlutverk Byggðasjóðs er að stuðla að jafnvægi í byggð landsins með því að veita fjárhagslegan stuðning til framkvæmda og eflingar atvinnulífs með hliðsjón af landshlutaáætlunum o. s. frv. og til að bæta aðstöðu til búsetu í einstökum byggðarlögum og koma í veg fyrir að lífvænlegar byggðir fari í eyði.“
Í þessu frv. um Byggðastofnun á þskj. 775 eru þessar áherslur um jafnvægi í byggð landsins, jöfnun byggðar í landinu, felldar út. Að vísu segir í 3. gr.:
„Byggðastofnun fylgist með þróun byggðar í landinu. Stofnunin getur gert eða látið gera áætlanir um þróun byggða og atvinnulífs í þeim tilgangi að treysta búsetu og atvinnu í byggðum landsins.
Í samræmi við hlutverk stofnunarinnar veitir hún lán eða annan fjárhagslegan stuðning í því skyni m. a. að bæta aðstöðu til búsetu í einstökum byggðarlögum og koma í veg fyrir að óæskileg byggðaröskun eigi sér stað eða lífvænlegar byggðir fari í eyði.“
Þetta er gott svo langt sem það nær. En ég vil spyrja: Hvaða pólitísk hugsun er á bak við það hjá forsrh. að fella niður áhersluna á jafnvægi í byggð landsins? Hefur Framsfl. gert það upp við sig að yfirgefa þær áherslur sem hann áður taldi sig hafa varðandi jafnvægi í byggðum landsins? Eða hvaða önnur hugsun er á bak við það að þetta ákvæði er fellt út úr lögunum um Framkvæmdastofnun ríkisins eins og tillaga er um hér? Í grg. með frv. segir m. a. svo, herra forseti:
„Ótvírætt er að þær breytingar, sem hér eru lagðar til, munu gera Byggðastofnun allsjálfstæða og skapa um leið möguleika á því að takast megi að gera störf hennar og stefnumótun markviss og árangursrík.“
Ég spyr: Hvað er það í frv., eins og það lítur hér út, sem gefur til kynna að ótvírætt sé um þær breytingar til bóta að ræða sem nefndar eru í grg.? Ég segi: Það er ekki neitt, ekki neitt. Ef eitthvað er þá er heldur dregið úr áherslum frá því sem verið hefur. En ég vil spyrja: Hvaða ótvíræðu breytingar fyrir byggðir í landinu eru til bóta í þessu frv. eins og það liggur hér fyrir?
Ég vil þessu næst, herra forseti, vekja athygli á 20. gr. frv. Þetta er ný grein, trúi ég:
„Stjórnarmenn og allir starfsmenn Byggðastofnunar eru bundnir þagnarskyldu um atriði sem þeir fá vitneskju um í starfi sínu og leynt skulu fara skv. lögum, fyrirmælum yfirboðara eða eðli málsins. Þagnarskylda helst þótt látið sé af starfi.“
Hér er um hefðbundna grein að ræða, þagnarskyldugrein, sem ég hygg að sé sú sama og er í bönkunum, geri ráð fyrir því. En mér sýnist að þetta sé ný grein í lagaákvæðum um Byggðasjóð og Byggðastofnun. Og þá vil ég spyrja hæstv. forsrh.: Er ætlunin að þrengja aðgang almennings að upplýsingum um Byggðastofnun og Byggðasjóð frá því sem verið hefur? Er það ætlunin? Ef það er ekki þá væri gott að fá það fram en upplýsingar um þessa grein komu ekki fram í ræðu hæstv. forsrh.
Þá kem ég næst, herra forseti, að frv. á þskj. 776, 457. máli, sem heitir frv. til laga um Framkvæmdasjóð Íslands. Og þá er fyrst sú almenna athugasemd sem ég hef áður gert: Þessi stofnun á skv. frv. að heyra undir forsrh. en heyrir nú undir ríkisstj. í heild. Sjóðurinn er tekinn í raun og veru undan stjórn Alþingis að öllu leyti. Forsrh. á að skipa stjórn þriggja manna. Vald embættismanna er því stórkostlega aukið frá því sem verið hefur og hélt ég að flestum þætti þó nóg um í þeim efnum. Í 3. gr. er gert ráð fyrir þriggja manna stjórn, einn skv. tilnefningu Seðlabanka Íslands, einn skv. tilnefningu fjmrh. og einn án tilnefningar og skal hann vera formaður stjórnarinnar. Ég vil vísa til þess sem ég sagði hér í upphafi máls míns um þetta atriði.
En ég vil síðan spyrja: Er ekki óvenjulegt í lagafrumvörpum það sem lesa má hér í 4. gr.? Það eru auðvitað alltaf unnin ýmis brautryðjendastörf hjá þessari stjórn, eins og t. d. það að hún er með erlend lán í húsnæðismálum, svo að hún fer á undan í ýmsum efnum. En það er nokkuð athyglisvert að hérna stendur:
„Hinn 1. janúar 1986 skal eignarhaldsfyrirtæki ríkisins taka við allri hlutafjáreign Framkvæmdasjóðs og eignarráðum sjóðsins í viðkomandi hlutafélögum.“
Hvað er eignarhaldsfyrirtæki ríkisins? Hvað er það? Það er ekkert frv. um það hér, a. m. k. ekki í þessum bunkum sem ég hef hér. Og ég kannast ekki við að forseti hafi lesið það upp að útbýtt hafi verið frv. um eignarhaldsfyrirtæki ríkisins. Hvar er sú skepna nú á vegi stödd í stjórnarsamstarfinu? En hérna er engu að síður flutt frv. um það að þetta eignarhaldsfyrirtæki ríkisins á að eignast alla hluti Framkvæmdasjóðs í ýmsum fyrirtækjum núna bara strax um næstu áramót.
Í ræðu forsrh. komu ekki fram sérstakar upplýsingar um það hvar þetta mál er á vegi statt, þetta eignarhaldsfyrirtæki. Hver á að ráða þessu eignarhaldsfyrirtæki? Er það forsrh.? Á hann að ráða því líka? Eða iðnrh.? Kannske hann fái að ráða einhverju núna. Hvar er þetta eignarhaldsfyrirtæki eiginlega á vegi statt og hvers lags eiginlega skrímsli er það? Er meiningin að það eigi hluti ríkisins í öllum atvinnufyrirtækjum í landinu? Ja, þá er nú „báknið burt“ loksins komið á leiðarenda.
Hvar er frv. til laga um þetta bákn, ríkisbákn? Ég óska eftir að hæstv. forsrh. svari því hér á eftir.
Þegar farið er yfir þetta frv. og það borið saman við lögin um Framkvæmdastofnun ríkisins þá kemur það í raun og veru fram að hlutverki og skipulagi Framkvæmdastofnunarinnar, sem er kveðið á um í I. kafla laganna, er breytt í grundvallaratriðum, eins og ég hef hér rakið, þannig að vald ríkisstj., embættismanna og forsrh. er stóraukið frá því sem verið hefur, en vald Alþingis minnkað. II. kafli laganna um Framkvæmdastofnun fjallar um áætlanadeild. Hún er að hluta til sett undir Byggðastofnun en að hluta til má segja að verkefni hennar séu sett á þetta Þróunarfélag að nokkru leyti. III. kafli fjallar um byggðadeild. Hennar verkefni fer á Byggðastofnun. IV. kaflinn fjallar um lánadeild. Það er aðalkafli laganna um Framkvæmdastofnun ríkisins. Þau verkefni fara annars vegar til Byggðastofnunar, hins vegar til Þróunarfélags og líka til Framkvæmdasjóðs. V. kaflinn fjallar svo um Framkvæmdasjóð Íslands. Það verkefni er flutt yfir til Framkvæmdasjóðs sem yrði sjálfstæð stofnun ef þetta verður samþykkt sem hér er lagt til.
Ég held að það sem hér er að gerast sé ósköp einfaldlega það að hér hafa verið lögð fram þrjú frv. til laga um pólitíska einokun helmingaskiptaflokkanna á þessu stjórnkerfi. Það held ég að sé kjarni málsins. Í rauninni eru hér engar stjórnarbætur á ferð, engar upplýsingar liggja fyrir um það að hve miklu leyti þetta getur orðið til að bæta og styrkja atvinnulífið í landinu frá því sem það er nú. Að vísu má segja að í frv. felist viss viðurkenning beggja stjórnarflokkanna á því að það er ríkið sem verður að hafa forgöngu um helstu uppbyggingu í atvinnulífi hér á landi. Það er viðurkenning á því að frjálshyggjukreddurnar eiga ekki við íslenskt atvinnulíf, vegna þess að samfélagið verður að koma þarna til, því að pilsfaldakapítalistarnir á Íslandi eru svo aumir að þeir ráða ekki við neitt frumkvæði eða forrustu þegar allt kemur til alls. Og það er ánægjulegt að forustumenn Sjálfstfl. skuli vera orðnir svo þroskaðir að þeir geri sér grein fyrir þessum staðreyndum.
Í heild eru þessi frv. í rauninni öll mjög í skötulíki, ófullkomin frá tæknilegu sjónarmiði og margt að athuga við þau pólitískt eins og hér hefur komið fram í máli mínu. Ég tel að þessi frv. séu flutt til þess að bjarga pólitískum hnút á milli stjórnarflokkanna og innan stjórnarflokkanna. Á bak við þau er engin önnur alvara, því miður. Þess vegna er nauðsynlegt að menn hefji hér hið fyrsta umræður um atvinnumál, þróun þeirra á komandi árum og hvað má gera til að auka verðmætasköpun, til að styrkja lífskjör Íslendinga í samanburði við aðrar þjóðir.
Ég ætla að ljúka máli mínu með því, herra forseti, að vekja athygli á nokkrum tölum. Ef við gerum ráð fyrir því að þjóðartekjur á mann á Íslandi hafi verið 100, þá eru þær í Bandaríkjunum 126, í Kanada 117, í Danmörku 114, í Svíþjóð 131. Ef við tökum hins vegar verga þjóðarframleiðslu eftir hverja unna vinnustund, þ. e. það sem fólkið í landinu skilur eftir sig í verðmætum eftir hverja unna vinnustund og segjum að talan fyrir Ísland sé 100, þá er þessi tala fyrir Bandaríkin 211, fyrir Kanada 194, fyrir Danmörku 175 og fyrir Svíþjóð 196. Þetta segir okkur margt bæði um lífskjör og stöðu íslensks atvinnulífs. Ég held að við eigum að setja okkur það markmið að lífskjör á Íslandi verði á komandi árum bæði í kaupi og í félagslegri þjónustu sambærileg við það sem gerist í grannlöndum okkar. Til þess að svo megi verða verður hagvöxtur hér á landi að verða meiri á ári hverju á komandi árum heldur en í samkeppnislöndum okkar. Það leggur okkur á herðar mjög alvarleg og erfið viðfangsefni. Ég tel hins vegar að þeir möguleikar, sem eru fólgnir í íslenska þjóðarbúinu, í verkþekkingu og reynslu og auðlindum þjóðarinnar, séu svo miklir að við getum sett okkur þetta markmið, að við séum hér til frambúðar með lífskjör sem eru fyllilega sambærileg við það sem gerist í grannlöndum okkar, bæði í kaupi og félagslegri þjónustu. Ef okkur tekst að ná því markmiði þá hefur okkur tekist að tryggja að það sem hv. 5. þm. Reykv. kallaði hér á dögunum tilraunina um íslenska lýðveldið, þá hefði okkur tekist að tryggja það að tilraunin með íslenska lýðveldið hefði náð að framkvæmast fullburða. Annars getur hún verið í hættu, herra forseti.