30.04.1985
Sameinað þing: 76. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4611 í B-deild Alþingistíðinda. (3903)

411. mál, hvalveiðar

Guðrún Helgadóttir:

Herra forseti. Ég vil taka undir með þeim sem hér hafa verið þeirrar skoðunar að hæstv. sjútvrh. fari að með fullri gát. Ég tel að við höfum gert það á Alþingi og farið með þetta mál af fullri ábyrgð og þess vegna er engin ástæða til annars en ræða það yfirvegað og rólega.

Það sem rekur mig hins vegar í ræðustól er að ég undrast nokkuð að hér skuli hafa verið í umferð skýrsla sem einungis hv. utanrmn. hefur fengið að sjá. Ég tel þar nokkuð farið á bak við okkur sem beittum okkur í þessu máli og bárum það mjög fyrir brjósti. Ég vil því mælast til þess að þegar framkvæmdaáætlun liggur fyrir fái allir hv. þm. að sjá hana. Ég tel að hana þurfi að ræða hér.

Ég vil jafnframt leggja áherslu á að ég held að mjög nauðsynlegt sé að það verði haft samráð við Alþjóðahvalveiðiráðið. Óviturlegt væri að gera það ekki. Jafnframt held ég að full ástæða sé til, eins og hæstv. sjútvrh. er eflaust fullkunnugt um, að fylgjast mjög vel með afstöðu Norðmanna og tilraunum þeirra til þess að fá skilgreiningum breytt innan ráðsins. Þeir hafa gengið þó nokkuð fast fram í því að fá breytt þeirri skilgreiningu sem er á veiðum svokallaðra jaðarþjóða sem hafa um langan aldur lifað af hvalveiðum og nýtt alla hluta hvalsins í miklu meira mæli en aðrar þjóðir hafa gert. Norðmenn hafa lagt á það mikla áherslu að a. m. k. fámennari byggðarlög í Norður-Noregi fengju að heyra til þessum kvóta. Ég held að Íslendingar ættu að sjá um að okkar menn væru þar á verði.

Það er tómt mál að deila hér um hvort óhætt sé að veiða hval eða ekki, um það vitum við ekki, og þess vegna er skynsamlegri sú stefna að fara að með gát en að hegða sér óskynsamlega þangað til of seint er að bæta fyrir það. Ég hlýt þess vegna að treysta hinu háa Alþingi til að ræða þessi mál í fullri alvöru og með fullri rósemd. Þegar framkvæmdaáætlun Hafrannsóknastofnunar liggur fyrir tel ég það algjöra skyldu hæstv. ráðh. að sýna okkur hinum hana sem ekki eigum sæti í hv. utanrmn.

En ég þakka svör ráðh. Ég tel að hann hafi farið að skv. vilja meiri hluta Alþingis og samkvæmt bestu vitund.