30.04.1985
Neðri deild: 62. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4670 í B-deild Alþingistíðinda. (3954)

455. mál, nýsköpun í atvinnulífi

Jón Baldvin Hannibalsson:

Herra forseti. Meðan ég hlýddi á mál hv. 5. þm. Vestf. kom mér í hug saga sem gerðist í kjördæmi hv. þm. og var á þá leið að karl nokkur lá undir grun um að selja svikna vöru. Hann hafði falboðið á markaðnum úrvals kindakæfu en menn grunaði að í raun og veru væri þetta hrossakæfa. Við yfirheyrslur og rannsóknir fór það svo að karl viðurkenndi að vísu að hross væri í kæfunni, en hann stóð fastur á því að það væri einn á móti einum. Nánar var hann spurður og þá sagði hann: Ég meina eitt hross á móti einu lambi. Mér sýnist að það sé eins með hæstv. ríkisstj. Hún er að reyna að selja svikna vöru og hefur nú verið gripin hér í þessum umræðum um það að þetta er meira andlitslyfting og sýndarmennska en raunverulegar breytingar ef talað er annars vegar um ríkisforsjá og hins vegar um valddreifingu. En ríkisstj. bregður á sama ráð og karlinn. Hún heldur því fram að það sé að minnsta kosti einn á móti einum, þ. e. eitt hross af ríkisforsjá á móti einu lambi af valddreifingu.

Og síðan hneigja þeir talið að fortíðinni. Hv. 5. þm. Vestf. fór hátt á flugi og líkti stefnumótun Alþfl. nú við ævintýri úr sögu eftir Agatha Christie. Mér skildist að það væri í því fólgið að alveg eins og í þeim sögum eru gamlar konur skornar á háls þá sé öll fortíð Alþfl. hér með skorin á háls, ríkisforsjárfortíðin. Hvað á nú hv. þm. við? Hann vitnaði til samstjórnar Alþfl. og Framsfl. á fjórða áratugnum, þeirrar frægu umbótastjórnar sem kennd var við Rauðku sem er einhvers konar hross. Sannleikurinn í málinu er sá, að árið 1933 setti Alþfl. fram mjög róttæka umbótastefnuskrá, reyndar þá fyrstu sósíaldemókratisku stefnuskrá sem flokkurinn setti sér, fyrir kosningar og sú hét Fjögurra ára áætlun gegn kreppu og atvinnuleysi. Ástandið í heiminum, ástandið á Íslandi var þannig að einkaframtakið í atvinnulífinu var hrunið. Það var um að ræða fjöldaatvinnuleysi og fátækt alls fjölda þjóðfélagsþegnanna. Á þeim tíma var Alþfl. ríkisforsjárflokkur alveg eins og aðrir sósíaldemókratiskir flokkar á þeim tíma. Þess vegna setti hann fram stefnuskrá til að leysa vandamál þess tíma með úrræðum þess tíma. Það var reyndar svo að það var Alþfl. sem lagði þessari samstjórn framsóknar og Alþfl.-manna til allar hugmyndirnar.

Það getur hv. þm. skoðað nánar með því að kynna sér annars vegar málefnasamning stjórnarinnar og hins vegar þessa kosningastefnuskrá Alþfl. En Framsfl. lagði til ráðherra eins og venjulega og ekki mikið annað enda var það um þetta leyti sem hann, svo ég noti hans eigið orðalag, skar á háls í pólitískum skilningi sinn eina sanna andlega leiðtoga og hugmyndafrjóa sköpuð, Jónas Jónsson frá Hriflu, og hafnaði forustu hans.

Þetta segir ósköp einfaldlega að Alþfl. og jafnaðarmenn hafa þau vinnubrögð að þeir gera ekki hugmyndir, sem eiga við við tilteknar aðstæður, að kreddum eða bábiljum. Alveg eins og það var róttækt og nauðsynlegt þá að beita sér fyrir ríkisforsjá, að gera þá kröfu að ríkið hefði frumkvæðið að endurreisn atvinnulífs, sem það gerði undir forustu þessarar stjórnar t. d. með því að leggja grundvöll að frystiiðnaðinum á Íslandi, alveg eins og það var róttækt, sjálfsagt og skynsamlegt sjónarmið þá, er þetta sjónarmið nú, við gerólíkar aðstæður, sjónarmið erkiíhaldssemi og með öllu óviðeigandi til þess að ná árangri, því að kreppan í íslensku þjóðfélagi núna er fyrst og fremst í ríkisbákninu sjálfu. Hana má að öðru leyti rekja til þess að ríkisbáknið er vaxið þessu þjóðfélagi yfir höfuð. Höfuðið er orðið allt of þungt. Samt reyna menn nú að ganga upprétt. Nú er það róttækt sjónarmið, róttæk stefna og skynsamleg í efnahagsmálum að draga úr ríkisbákninu, að sneiða af því fitulagið, eins og ég hef stundum orðað það, og skila aftur til baka til atvinnulífsins og einstaklinganna meiru af þeim fjármunum sem ríkisbáknið hefur hingað til tekið til sín og farið illa með, því það er niðurstaðan af reynslu framsóknaráratugarins sérstaklega að ríkið og báknið fer illa með fé. Það kom líka rækilega fram í máli hv. þm. þegar hann var að lýsa t. d. afleiðingum af ríkisstjórn Seðlabankans og reyndar afleiðingum þess fyrir landsbyggðina.

Það sem er þess vegna að bæði í Framsfl. og var að á framsóknaráratugnum er nákvæmlega þetta: að framsóknarmenn, sem skildu og reyndu að skilja að vissu leyti hugmyndir jafnaðarmanna á kreppuárunum, þeir eru enn á kreppuárunum og í andlegri kreppu þess vegna. Það sem skildi þessa tvo flokka að á samstarfsárunum samkvæmt hernaðaráætlun Jónasar frá Hriflu var reyndar alls ekki spurningin fyrst og fremst um ríkisforsjá eða ekki. Stóra ágreiningsmálið, sem að lokum batt enda á samstarf þessara flokka, var allt annað. Það var afstaðan til lýðræðislegra mannréttinda fólksins á mölinni. Það var það ofríki Framsfl. að skilja ekki að hann átti ekki og gat ekki staðið í vegi fyrir eðlilegum mannréttindum vinnandi fólks á mölinni sem fór auðvitað sífjölgandi með eðlilegri þjóðfélagsþróun. En valdakerfi sitt vildi Framsfl. byggja á því að gæðaflokka þegna þjóðfélagsins og vigta atkvæði misjafnlega þannig að bændur og þeir sem í sveitunum bjuggu skyldu hafa margfaldan atkvæðisrétt á við þá sem bjuggu og störfuðu við sjávarsíðuna. Þetta skilningsleysi og þetta ofríki og þetta ranglæti kom líka fram í öðrum íhaldssömum sjónarmiðum Framsfl. þá þegar, eins og t. d. þegar flokkurinn beitti sér gegn frumkvæði Alþfl. að byggingu verkamannabústaða, þ. e. fyrir þeirri þjóðfélagsbyltingu á Íslandi, sem varð undir forustu jafnaðarmanna, að leiða fátækt fólk á mölinni ofan af hanabjálkum eða úr saggaköldum kjöllurum og upp á 1. hæð mannabústaða. Það voru mál af því tagi sem fyrst og fremst kollvörpuðu þessu samstarfi. En fyrst og síðast var það skilningsleysi Framsfl. og forréttindakrafa gagnvart sjálfsögðum mannréttindum sem að sjálfsögðu eiga ekki að vera verslunarvara.

Um framsóknaráratuginn að öðru leyti hirði ég ekki að ræða. Spurningin er: Ætla menn að læra eitthvað af mistökunum? Auðvitað voru byggðir togarar. Það var meira að segja búið að panta og semja um smíði og kaup á 12 togurum áður en umrædd ríkisstjórn komst til valda 1971. Og auðvitað voru byggð skip áður. Það er ekki málið. Auðvitað var landhelgin færð út. Og hún var færð út áður. (Gripið fram í: Jæja.) Já, já, árið 1958 í 12 mílur og síðan í 50 mílur og loks í 200 mílur. Auðvitað var það sjálfsögð ráðstöfun og auðvitað var ekki ágreiningur um það. Það þýðir ekki að snúa málinu upp í það. Það sem ágreiningur var um var fyrst og fremst þetta: Undir stjórnarforustu og samfelldri stjórnarsetu Framsfl. gerðist það að verðbólgunni var sleppt lausri í þessu þjóðfélagi, í 50%, 70% og að lokum upp í 130%. Það að sleppa verðbólgu lausri er mælikvarði á kunnáttuleysi og getuleysi í efnahagsstjórn. Með þessu var verið að grafa undan öllu heilbrigðu atvinnulífi á Íslandi. Með þessu var fótunum kippt undan samkeppnishæfni íslenskra útflutningsatvinnuvega. Með þessu var verið að fremja tilræði við kaupmátt og kjör vinnandi fólks í landinu. Verðbólga er ósköp einfaldlega gróðamyndunaraðferð braskara og það sem gerðist á þessum áratug var að í skjóli þessarar óðaverðbólgu, skjóli neikvæðra vaxta áttu sér stað hrikaleg fjárfestingarmistök. Það var byggt upp sérstakt kerfi til þess að reyna að ráða bót á þessu, þegar innlendur sparnaður hrundi, með því að gera kerfi og stofnanir undir forustu stjórnmálamanna að skömmtunarstjórn á fjármagni sem var allt fengið erlendis frá með þeim hrikalegu afleiðingum að við erum núna sokknir í skuldir. Það er búið að veðsetja lífskjör okkar fram í tímann og það er búið að binda okkur þvílíkar byrðar að því er varðar raunvexti og ávöxtunarkröfur þessa erlenda fjármagns, sem er í þessu kerfi, að arðsemi íslensks atvinnulífs fær ekki undir risið. Þetta er kjarni málsins um framsóknaráratuginn. Þetta er hinn endanlegi dómur um þau hrikalegu pólitísku mistök sem á þessum tíma voru gerð og við erum ekki búnir að súpa seyðið af því. Það mun taka aðra langan tíma að bæta fyrir þessi hrikalegu mistök.

Hæstv. forsrh. vakti athygli á því að það er stundum hægara að boða heilræðin en halda þau. Það er auðveldara að hans mati að vera í stjórnarandstöðu og gagnrýna en að standa í forsvari í málum í ríkisstj. og taka ákvarðanir og móta stefnu. Það kann vel að vera að svo sé. Mér liggur við að segja því miður hefur ekki reynt á það allt of lengi að því er varðar hæstv. forsrh. Ég vildi gjarnan fá að sjá hann í stjórnarandstöðu og sjá hvernig hann heldur þessi heilræði. Hitt er annað mál, að að því er varðar tillögugerð Alþfl. í stjórnarandstöðu, gagnrýni hans á þessa stefnu, þá hygg ég að ef menn skoða hana hlutlægt verði ekki annað sagt en að hún hafi bæði verið málefnaleg og hún hafi verið sjálfri sér samkvæm lengst af þennan tíma. Ég hygg að það sé leitun að stjórnarandstöðuflokki sem hefur flutt jafnmikið af tillögum sem liggja hér fyrir á borðum þm. um breytingar á þessu ástandi og hafi gert það reyndar allan tímann.

Ég minni t. d. á eitt mál. Fyrir kosningar 1983 viðurkenndi Alþfl. að þáverandi vísitölukerfi, sem þjóðin hafði hræðilega 40 ára reynslu af, væri úrelt og það ætti að afnema. Þm. Alþfl. boðuðu það í kosningum, þeir settu það fram í stjórnarmyndunarviðræðum við aðra flokka og þeir stóðu við það í framkvæmd hér á hinu háa Alþingi að þeir greiddu atkvæði með afnámi þess þrátt fyrir það — (ÓÞÞ: Það var nú blendið.) Það var ekkert blendið — þrátt fyrir það að það var ekki orðið við þeim kröfum sem flokkurinn setti fram á sama tíma um aðrar aðgerðir sem þurftu að fylgja í kjölfarið.

Nú er rétt að rifja það upp að hæstv. forsrh. hefur viðurkennt að það grundvallaratriði í stjórnarstefnunni að afnema vísitölukerfi launa en láta undir höfuð leggjast á sama tíma að gera ráðstafanir til þess að breyta þáverandi mælikvarða á eftirstöðvar lána, þ. e. lánskjaravísitölu, það hefur hæstv. forsrh. lýst yfir að væru helstu mistök stjórnarstefnunnar. Ég get ekki fallist á það að þetta séu mistök vegna þess að þetta er stjórnarstefnan sjálf í framkvæmd. Í stjórnarmyndunarviðræðum við aðra flokka voru af okkar hálfu lagðar fram ótal tillögur um það hvað yrði að gera jafnhliða því að sjálfvirkt vísitölukerfi launa yrði afnumið. Í annan stað hafa allt frá árinu 1981 legið hér á borðum þm. tillögur um að flytja þann mun, sem þá þegar var farinn að verða greinanlegur á milli lánskjaravísitölu og kaupgjaldsvísitölu, aftur fyrir höfuðstól lána og lengja þar með lánstímann til þess að halda greiðslubyrði lána í sama hlutfalli af launum. Það eru ekki mistök þegar stjórnarmeirihluti, þ. á m. hæstv. forsrh. í tveimur ríkisstjórnum, stendur að því að fella slíkar tillögur. Það eru ekki mistök þegar stjórnarflokkarnir í sameiningu vísa á bug öðrum tillögum, sem lagðar voru fram í stjórnarmyndunarviðræðum, um það að samhliða afnámi vísitölubindingar launa yrði að koma til strax verulegur niðurskurður á tekjusköttum og skattbyrði launafólks til þess að halda kaupmætti og kjörum í einhverju jafnvægi.

Ég nefni þetta vegna þess að hæstv. forsrh., um leið og hann gagnrýnir stjórnarandstöðuna fyrir það að reyna að vera vitur eftir á, gerir sig allt of oft sekan um það að tala eins og hann sé sjálfur stjórnarandstæðingurinn og hafi hvergi komið nærri þróun mála í ríkisstj. á undanförnum árum.

Það er nokkuð algild regla þegar nýjar ríkisstjórnir taka til starfa að þær hafa nokkurn veginn u. þ. b. 100 daga tímabil til þess að koma stefnu sinni fram. Það eru þeir hveitibrauðsdagar sem nýjar ríkisstjórnir fá. Og á þessum 100 dögum er það venjan að ríkisstjórnir komi fram þeim róttæku og þýðingarmiklu breytingum sem þær vilja koma fram ef þær á annað borð ætla að gera það.

Í ljósi þessa undrar mig það að hæstv. forsrh. er hér að kynna frv., sem að hans mati hafa grundvallarþýðingu að því er varðar mótun stefnu í atvinnumálum, fjárfestingarmálum, einhverjum þýðingarmestu málum hans stjórnar, núna þegar tæp tvö ár eru liðin frá því að ríkisstj. settist á stjórnarstólana. Og þegar þau loksins koma eftir tvö ár þá eru þau þannig úr garði gerð að þau eru meira sýnd veiði en gefin, meiri sýndarmennska en veruleiki. Þetta kom ákaflega vel fram í máli hæstv. forsrh. Hann var í raun og veru sammála stærstu þáttunum í gagnrýni okkar stjórnarandstæðinga á þessi frv. Hann tók það fram að það væri mjög rétt og æskilegt að draga úr miðstýringu og ríkisforsjá. Hann lýsti því að það væri margt í athugun, það væri verið að athuga eitthvað með nýtt átak í markaðsmálum, það væri eitthvað verið að athuga með breytingar á menntakerfinu og nánari tengsl þess við atvinnulífið. Hann viðurkenndi þau hrikalegu fjárfestingarmistök sem hefðu orðið en taldi að aðrir hefðu ekki gagnrýnt nægilega forsendu þágildandi orkuspár, þá offjárfestingu í orkumannvirkjum sem fram fór.

Þetta er að tala nærri því eins og stjórnarandstæðingur. Þetta er ekki að tala eins og forsrh. ríkisins. Þetta er ekki að tala eins og sá maður sem er ábyrgur fyrir ríkisstj. sem þegar hefur setið að völdum í tvö ár.

Að því er varðar málflutning hv. 1. þm. Suðurl. þá er það þakkarvert þegar hann fer með ræðuna sína um nauðsyn aukinnar arðsemi, um nauðsyn aukinnar hagkvæmni, um nauðsyn þess að draga úr ríkisbákninu, um nauðsyn þess að skapa atvinnulífinu bætt samkeppnisskilyrði, um nauðsyn þess að ríkisvaldið dragi úr sveiflum o. s. frv., o. s. frv. Um þetta er vafalaust enginn ágreiningur okkar í milli. Ég benti aftur á móti á að sú stjórnarstefna, sem núv. hæstv. ríkisstj. hefur fylgt, stuðlar ekkert að þessum markmiðum. Og það merkilegasta í þessum umræðum er það að hv. 1. þm. Suðurl. og formaður Sjálfstfl. viðurkenndi í reynd að svo væri. Hann viðurkenndi með öðrum orðum að veiluna, brotalömina í starfi núv. hæstv. ríkisstj. væri m. a. að finna í ríkisfjármálunum.

Hæstv. forsrh. sagði að hann vildi ekkert taka undir gagnrýni á hæstv. fjmrh. og hæstv. viðskrh. vegna hallareksturs í ríkisbúskapnum og vegna dúndrandi viðskiptahalla. En formaður Sjálfstfl., hv. 1. þm. Suðurl., viðurkenndi að á sama tíma og ríkissjóður er rekinn með halla, á sama tíma og viðskiptahallinn er jafnhrikalegur og raun ber vitni, á sama tíma og jafnmikið innstreymi erlends fjármagns á sér stað til þess að halda hér uppi falskri framkvæmdagetu þá væri auðvitað borin von að næðist sá stöðugleiki í íslensku efnahagskerfi sem skiptir sköpum fyrir samkeppnishæfni og rekstursgetu fyrirtækja og atvinnulífs. M. ö. o., hæstv. forsrh. hefur viðurkennt að kjarni stjórnarstefnunnar sé mistök. Hv. 1. þm. Suðurl., formaður stærsta flokks stjórnarinnar, viðurkennir að þessar brotalamir í stjórnarstefnunni og í framkvæmd stjórnarstefnunnar séu af því tagi að þær torveldi að menn nái nokkrum árangri, nái þeim markmiðum sem menn eru að reyna að setja sér. Og að þessu leyti er eins með hv. 1. þm. Suðurl. og hæstv. forsrh. Það er ekki hægt að taka orð þeirra í staðinn fyrir efndirnar. Það er allt of mikið bil á milli þessara orða og veruleikans.

Tökum sem dæmi sjóðakerfið. Það var sett upp nefnd sem lagði til að þessu úrelta sjóðakerfi yrði stillt í einn sjóð. Á bak við það býr sú hugmynd að það sé röng efnahagspólitík í fjárfestingarmálum að hafa sérstakan sjóð fyrir hvern einasta atvinnuveg og láta hann stjórnast af hefðbundnum reglum eða af pólitísku valdavægi einstakra valdahópa, útgerðarmanna, fiskiðnaðarins, landbúnaðarins, verslunarinnar, vegna þess að þetta er ósveigjanlegt kerfi, andstætt þeim grundvallarsjónarmiðum að fjármagnið eigi að leita þangað sem það skilar mestum arði og getur staðið undir bestum lífskjörum. Þessari hugmynd var hafnað og niðurstaðan er málamiðlun um þrefalt sjóðakerfi með nákvæmlega sama hætti og var.

Hv. 1. þm. Suðurl. sagði síðan hvað eftir annað, það var viðlagið í ræðu hans: Að vísu má segja að kannske væri æskilegt að við gætum stigið stærri skref. — Já, það er meira en æskilegt auðvitað að stíga stærri skref. Þessi hænufet duga ekki lengur. Menn hafa verið að trítla allan þennan endemis framsóknar hálfan annan áratug með þvílíkum afleiðingum sem okkur greinir ekkert á um. Þessar breytingar, sem hér er verið að boða, eru allt of lítilfjörlegar. Þær eru allt of mikil sýndarmennska. Það er allt of lítil alvara á bak við þetta. Þegar maður lítur aftur á nýjan lagabálk um Framleiðsluráð landbúnaðarins þá kemur á daginn að það er engin alvara á bak við þetta. Það er kjarni málsins. Það á að halda áfram því kerfi að allt vald yfir málefnum landbúnaðarins á að vera í höndum þessa framsóknar-SÍS-kerfis, allar ákvarðanir sem máli skipta eru í höndum örfárra skriffinna í Reykjavík. Það á að vera framleiðslustjórnun af þessu tagi, sem er kvótakerfi á bændur. Verðmyndunarkerfið á að vera meira og minna miðstýrt, fjárfestingarstjórnin meira og minna miðstýrð. Og meira að segja þær nýju greinar í landbúnaði eða landbúnaðarframleiðslu sem voru utan kerfisins, meira segja er það skilið eftir sem heimildarákvæði að setja þær undir framsóknarkerfið líka.

Þetta dæmi sýnir að Sjálfstfl. sættir sig við það í þessu stjórnarsamstarfi eins og hann gerði 1974–1978 að hann kemur engu fram af þessari svokölluðu stefnu sinni. Auðvitað á hann við þá innbyrðis meinsemd að stríða að það eru allt of margir framsóknarmenn í þessum þingflokki Sjálfstfl. Og þegar framsóknarmenn beggja deilda, eins og kom fram í máli hv. þm. Ellerts B. Schram og hann þekkir það vel innanhúss frá, þegar þessir aðilar ná saman þá er framsóknarkerfið ómengað og engum róttækum breytingum hægt að koma áleiðis. Þess vegna er það rétt sem sagt hefur verið: Þessi ríkisstj. er mistök frá upphafi.