30.04.1985
Neðri deild: 62. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4677 í B-deild Alþingistíðinda. (3962)

454. mál, tollskrá

Flm. (Guðrún Helgadóttir):

Herra forseti. Ég mæli fyrir frv. til l. um breyt. á lögum nr. 120 frá 31. des. 1976, um tollskrá o. fl., með síðari breytingum, og samflm. minn er hv. þm. Svavar Gestsson, 3. þm. Reykv. Frv. hljóðar svo, með leyfi forseta:

„1. mgr. 27. tölul. 3. gr. laganna (sbr. 1. gr. laga nr. 11 1981) orðist svo:

Að lækka eða fella niður gjöld af allt að 600 fólksbifreiðum fyrir fólk sem er svo mikið fatlað að það á erfitt með að fara ferða sinna án farartækis.“

Og 2. gr.: „Lög þessi öðlast þegar gildi.“

Það er fljótlegt að gera grein fyrir þessu máli. Í núgildandi lögum um tollskrá er heimilað að lækka eða fella niður gjöld af allt að 550 bílum fyrir þá sem þurfa nauðsynlega á bifreið að halda vegna fötlunar, en af 40 bifreiðum er heimilað að fella algjörlega niður aðflutningsgjöld fyrir þá sem búa við erfiðasta fötlun. Á síðustu árum hefur tollalögum verið breytt svo mjög að eftirspurn eftir þeim bifreiðum sem gjöld eru felld algjörlega af er svo til fullnægt. Það er ekki hörgull á þeim niðurfellingum. En við síðustu úthlutun kom mjög sterklega í ljós að ástæða er til þess að bæta við 50 bifreiðum fyrir þá sem við minni fötlun búa, en eru þó háðir bifreið. Á biðlista frá síðustu úthlutun eru nú milli 30 og 50 fatlaðir einstaklingar sem mjög þurfa á bifreið að halda, en varð að synja vegna þess að bifreiðarnar eru ekki nógu margar. Því er lagt til að þessum bifreiðum verði fjölgað um 50. Við síðustu úthlutun, í febrúar s. 1., nam þessi lækkun 84 þús. á bifreið, auk niðurfellingar söluskatts, og má því hugsa sér að þessi upphæð sé nálægt 100 þús. kr. á hverja bifreið. Þarna er því beðið um kostnaðaraukningu sem nemur u. þ. b. 5 millj. kr. og sú úthlutun fer fram í febrúar 1986.

Í grg. er bent á að á hinum rausnarlegu úthlutunartímum þegar bankastjórum landsins eru veittar 450 þús. kr. til bifreiðakaupa, þá er hér um að ræða upphæð sem samsvarar um ellefu slíkum launaaukum, en um 20 bankastjórar eru í landinu. Það getur því varla verið til of mikils mælst að vandi þessa fólks, sem svo mjög þarf á bifreið að halda, verði leystur. Ég treysti þess vegna þeim hv. þm. Friðrik Sophussyni, Jóhönnu Sigurðardóttur og Svavari Gestssyni, sem hér sitja, að greiða fyrir þessu máli um leið og ég mun beina því til hæstv. forseta að málinu verði vísað til hv. fjh.- og viðskn. og 2. umr.