03.05.1985
Efri deild: 63. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4759 í B-deild Alþingistíðinda. (3999)
292. mál, tollskrá
Fjmrh. (Albert Guðmundsson):
Virðulegi forseti. Í tollalögum eins og þau eru í dag er heimild til handa fjmrh. til að fella niður aðflutningsgjöld af ráðherrabifreiðum. Það er líka gert ráð fyrir því að fjmrh. setji um það reglugerð hvernig að skuli staðið í bílamálum almennt, ef hv. flm. heyrir til mín.
Ég vil upplýsa hv. 5. landsk. þm. um það að ég hef ákveðið að gera tilraun til þess að breyta þeim lögum. En í millitíðinni hef ég gefið út nýja reglugerð sem svarar að fullu þeirri till. sem hann hefur lagt hér fram. Reglugerðin er þegar út gefin og það er fjmrh. en ekki annarra ráðh. né heldur ríkisstj. að gefa út þá reglugerð.