12.10.1984
Sameinað þing: 4. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 155 í B-deild Alþingistíðinda. (40)

Skýrsla ríkisstjórnarinnar um kjaradeilurnar

Steingrímur J. Sigfússon:

Herra forseti. Ég bið þá hv. þm. sem eftir eru hér í þingsalnum að skelfast ekki mjög þó að bunkinn sé þykkur sem ég hélt á með mér upp í þennan stól. Þar eru m.a. fjárlögin að hluta til í bundnu máli og það kynni að fara svo að maður þyrfti að nota þau hér eitthvað á eftir.

Á dagskrá þessa fundar, herra forseti, eru yfirstandandi kjaradeilur í þjóðfélaginu. Það hefur vonandi ekki farið fram hjá neinum. Að vísu hefur þessi umræða dreifst nokkuð út um hóla, enda hefur margt gerst undanfarna daga sem hefur haft áhrif á þessar deilur og þar af sumt mjög alvarlegt. En nóg um það að sinni.

Hæstv félmrh., sá sem fer með húsnæðismál í landinu, kom hér í þennan virðulega ræðustól og afneitaði vaxtahækkuninni um daginn, afneitaði með öllu þessu vaxtastigi sem er í þjóðfélaginu. Mér telst svo til að hann sé þriðji hæstv. ráðh. a.m.k. sem kemur í þennan ræðustól á þessu þingi og afneitar þessum vöxtum. Þá fer manni að verða spurn: Hver eiginlega vill hafa þessa vexti? Hvernig í ósköpunum stendur á því að þessir vextir skuli vera svona háir úr því enginn vill bera ábyrgð á þeim, enginn virðist ánægður með þá? Meira að segja hæstv. fjmrh. lýsti því yfir hér í gær að ekki væri hann ánægður með þessa vexti. En það er bara eins og þetta sé eitthvert lögmál af himnum og aumingja mennirnir geti ekkert við þessu gert. Eða hvers vegna er ekkert gert? Það þýðir ekki að fara upp í Borgarnes og halda þar ræður um það að vextir séu allt of háir og nöldra eitthvað um það hér í þingsölum. (Gripið fram í.) Hvers vegna er ekkert gert, hæstv. félmrh.? (Gripið fram í: Hver er bankamálaráðherra?) Ég skil vel óánægju og gremju hæstv. félmrh. þegar hann sér sinn málaflokk hrynja fyrir augunum á sér m.a. vegna þessa ófremdarástands í vöxtum. Það er okrið sem leikur umbjóðendur hæstv. félmrh. verst nú um stundir. Hann barmar sér sáran en virðist ekkert fá að gert. Ríkisstj. öll samanlögð, hæstv. ráðh. úr báðum flokkum afneita vöxtunum en ekkert gerist. svo koma menn í þennan ræðustól og eru hissa á því að staða lífeyrissjóðanna sé slæm, að þeir geti ekki staðið við skuldbindingar sínar til Húsnæðisstofnunar ríkisins, til byggingarsjóðanna. Eða átti ekki að skilja ummæli hæstv. félmrh. svo að hann væri hissa á því, þetta kæmi honum mjög á óvart? Hæstv. ráðh. var bent á þetta í fyrra að þær væntingar sem kæmu fram í lánsfjáráætlun og í áætlunum Húsnæðisstofnunar ríkisins eins og gengið var frá þeim hér væru algerlega óraunhæfar, lífeyrissjóðirnir hefðu ekki möguleika á að standa við skuldbindingar sínar eins og ástandið væri í þjóðfélaginu því sókn þeirra sem eiga rétt til lántöku hjá þessum sjóðum hefur af öðrum ástæðum ýmsum stóraukist á undanförnum árum. Alveg sérstaklega eftir að þessi hæstv. félmrh. og aðrir ráðh. tóku við stjórnartaumunum hefur fyrst keyrt um þverbak. Sömuleiðis má segja að skuldbindingar þær, sem atvinnuleysistryggingasjóði voru ætlaðar, væru aldeilis óraunhæfar vegna ástandsins eins og það blasti við á síðasta vetri. Á þetta var hæstv. félmrh. bent hér í fyrra og hann þarf því ekki að vera svo mjög hissa á því ástandi sem nú er að skapast, m.a. í hans málaflokkum.

Herra forseti. Ég sagði áðan að þessi umr. hefði tilhneigingu til að dreifast dálítið út um víðan völl og það er sönnu nær. Nú er ég hér farinn að tala um húsnæðismál og vinnubrögð hæstv. félmrh. í þeim í fyrra þegar hann var að ganga frá fjárlögum og lánsfjárlögum. Ég skal nú reyna að hverfa aftur að því sem er meginumræðuefni þessa fundar og var svo einnig á fundum hér í Sþ. í gær, þ.e. yfirstandandi kjaradeilum í þjóðfélaginu.

Ég er þeirrar skoðunar að þessi kjaradeila sé með nokkuð öðrum hætti og hún sé orðin nokkuð annars eðlis en aðrar slíkar sem menn hafa upplifað hér á Íslandi undanfarin ár og undanfarna áratugi. Þessi deila er að mínu mati annars eðlis fyrst og fremst vegna afstöðu annars deiluaðilans í málinu, þ.e. ríkisins. Það er harka og ósveigjanleiki ríkisvaldsins í þessari kjaradeilu við opinbera starfsmenn sem setur alveg nýjan blæ, varpar alveg nýju ljósi á þessa deilu, borið saman við þær aðrar sem við höfum upplifað í landinu.

Afstaða BSRB er einföld, þeir berjast fyrir lífvænlegum launum. Því er auðvitað borið við nú af hálfu hæstv. fjmrh. — og væri ánægjulegt að sjá hann hér í þingsal — að ríkiskassinn sé tómur. Þegar opinberir starfsmenn koma upp í rn. að ræða við hæstv. fjmrh. snýr hann við vösunum, sýnir þeim fóðrin. Sjáið þið, hér er enga peninga að hafa. Allt tómt, gatslitið. Hann snýr sem sagt og veifar fóðrinu á tómum vösum sínum frammi fyrir opinberum starfsmönnum og segir: Hér er ekkert að hafa.

Þetta er að vísu sami hæstv. fjmrh. og í fyrra á þessu háa Alþingi reytti af sér tekjustofnana eins og hann væri manna múraðastur, eins og aldrei hefði verið áður í sögu lýðveldisins fjmrh. sem ætti aðrar eins gullkistur að baki sér. Hann reytti af sér mjólkurkýrnar, maðurinn, með lagabreytingum. Hann létti álögum af bönkum. Hann tók ekki skatta af skrifstofu- og verslunarhúsnæði eins og áður hafði verið gert og hann vildi ekki hirða neitt af þeim sem væru að fara í lystireisu til útlanda. Nógir peningar í ríkissjóði þá, þegar fjmrh. var að skera niður mjólkurkýr ríkissjóðs hér á hv. Alþingi í fyrra. En nú er öldin önnur.

Á sama tíma er svo reyndar annar aðili í þjóðfélaginu, Vinnuveitendasambandið, að falbjóða tekjustofna ríkissjóðs úti í bæ rétt eins og það hafi tekið við hlutverki löggjafarvaldsins. Það virðist hafa efni á því, þetta Vinnuveitendasamband, hvaðan sem umboð þess er nú komið.

Nei, auðvitað er það svo, herra forseti, að hér býr annað að baki. Það eru allt aðrir hlutir sem í raun ráða ferðinni af hálfu hæstv. fjmrh. og meðreiðarsveina hans í þessari deilu. Hæstv. fjmrh. ætti að vita það manna best, maðurinn sem fer með fjármál ríkisins, að ríkissjóður sem slíkur mun njóta góðs af því að laun hækki í landinu og fá þannig auknar tekjur eins og aðrir aðilar með því að velta eykst í þjóðfélaginu. Það sem í raun er hér á ferðinni og birtist okkur í dag í hörku og ósveigjanleika ríkisvaldsins gagnvart samtökum launafólks eru allt aðrir hlutir að mínu mati. Þar eru á ferðinni erlendar kenningar. Fyrirmyndin er sótt út fyrir landsteinana í erlendar kenningar sem ýmist eru kenndar við peningamagnshagfræði eða frjálshyggju eða hvað sem menn svo vilja láta það heita. Eitt lykilatriði í þessum kenningum öllum er harka og ósveigjanleiki gagnvart verkalýðshreyfingunni á hverjum tíma í þeim tilgangi beinlínis og yfirlýstum að mola þá hreyfingu niður, að veikja hana, að draga úr áhrifum hennar.

Það getur vel verið að hæstv. fjmrh. Albert Guðmundsson hafi alls ekki áttað sig á þessu, hann hafi ekki áttað sig á því að með því sem hann kallar þolinmæði, og felst aðallega í því að sitja þegjandi og gera engin tilboð, er hann að gerast bandamaður ofstækisfyllstu íhaldsaflanna sem nú ráða ríkjum bæði í gamla Sjálfstfl. hans og í hinni deildinni sem enn þá er kennd við Framsóknarfl. Það er grímulaus markaðshyggjan, frjálshyggja, markaðskreddan sem nú leggst á hugi ungra íhaldsmanna eins og farsótt, eins og svartadauðasótt. Það er hún sem er hér á bak við tjöldin. Og hvort sem hæstv. fjmrh. Albert Guðmundsson veit meira eða minna um frjálshyggju er hann orðinn fánaberi í þessari krossferð ofstækisfyllstu aflanna í íhaldsflokkunum á landinu gegn samtökum launafólks. Þannig er það nú orðið, hvort sem það er meðvituð reið hjá hæstv. fjmrh. eða ekki, hvort sem hann veit af veifunni sem hann hefur uppi eða ekki.

Auðvitað hlaut ríkisvaldið að beita sér á því sviði þar sem það er milliliðalaus viðsemjandi, þ.e. í kjaradeilum við opinbera starfsmenn. Þar hlutu þeir að láta reyna á þessar nýju hugmyndir. Vilji menn fræðast frekar um þann anga þessara kenninga, sem snýr að verkalýðshreyfingunni, geta þeir lesið sér til því svokallaðir lærðir menn af þessum skóla skrifa um þessa blessun, frjálshyggjuna, og hvernig eigi nú að framkvæma hana. Stór hluti af því sem þeir skrifa fjallar um viðskipti ríkisvalds og verkalýðshreyfingar. Það er ekki lítil liður í þessum kenningum og þar gengur eitt eins og rauður þráður í gegnum allt saman. Ríkisvaldið verður að hætta þessari linkind við verkalýðshreyfinguna. Nú skal hart látið mæta hörðu.

Ég bendi mönnum á Fjármálatíðindin ef þeir vilja sækja sér lesningu um þetta. Þar skrifar lærður maður. Reyndar var það upphaflega fyrirlestur haldinn á aðalfundi Verslunarráðsins sem er stofnun sem ýmsir hafa heyrt nefnda. Í fyrsta hefti Fjármálatíðinda á þessu ári skrifar lærður maður, Þorvaldur Gylfason, mikla grein um þessi mál. Þar er megininntakið þetta: Að sú hættulega undanlátssemi ríkisvaldsins við launþegahreyfinguna og aðila vinnumarkaðarins sé öllu öðru hættulegri. Henni verður nú að linna og nú skal öldin önnur.

Þetta er að mínu mati það sem öllu öðru fremur er orsök þeirrar hörku og þeirrar illsku sem hlaupin er í þá kjaradeilu sem við erum hér að ræða. Það eru þessar hugmyndir sem liggja þarna að baki, hvort sem menn sem standa síðan í framvarðasveitinni vita af því eða ekki. Hvort sem þetta er meðvitað af þeirra hálfu eða ekki þá er það að mínu mati þannig sem í þessu liggur.

Hæstv. fjmrh. eyddi hér í gær löngum tíma í að útlista einlægan vilja sinn til samninga. Hann var svo einlægur og heilagur í framan, langaði svo óskaplega til að semja og eyddi í það drjúgum hluta af langri ræðu sinni að reyna að sannfæra menn um það. En hvað er það helsta sem frá hæstv. fjmrh. hefur komið til þess að liðka fyrir samningum? Ef við færum yfir þá þróun sem verið hefur í þessari deilu síðustu dagana fyrir verkfall og svo það sem síðan er liðið, hver er þá þáttur hæstv. fjmrh. í því að liðka fyrir samningum? Ég ætla að sleppa hér deilum um lögfræðileg atriði og ýmislegt annað sem vissulega hafa áhrif í þessu máli. En hver eru bein tilboð hæstv. fjmrh.? Hver voru viðbrögð hans eftir að hann sjálfur og síðan opinberir starfsmenn höfðu fellt tillögu sáttasemjara? Hvað var það næsta sem frá honum heyrðist? Jú, hæstv. ráðh. bauð reyndar að borga mönnum kaup ef þeir mættu til vinnu og þótti rausnarlegt. En næsta tilboð hans var tveimur heilum prósentustigum fyrir neðan sáttatillöguna sem allur þorri opinberra starfsmanna var þegar búinn að hafna. Þetta er nokkuð merkilegt. Átti hæstv. fjmrh. von á því að samningar tækjust um þetta? Skildi hann opinbera starfsmenn svo að þeir hefðu fellt sáttatillöguna af því að hún væri of há? Það hlýtur eiginlega að vera. Þess vegna gerði hann sér vonir um það, þessi hæstv. ráðh. sem hefur svona mikinn áhuga á að ná samningum, að með því að bjóða þeim aðeins minna mundi hann ná samningum.

Forsendur og niðurstaða þeirra kjarasamninga, sem gerðir voru í vetur, verða, held ég, ekki undir neinum kringumstæðum kenndir við heimtufrekju frá hlið launþega sem undir þá skrifuðu. En þær forsendur eru því miður brostnar. Þær hafa brostið m.a. vegna þess að vöruverð hefur hækkað meira en þar var ráð fyrir gert og kaupmátturinn, sem þar var um samið, hefur ekki haldist.

Reyndar má segja að þessar forsendur séu brostnar einnig af öðrum orsökum, sem sé þeim að þær forsendur, þær spár, sem þá voru lagðar til grundvallar, hafa ekki staðist. Þær hafa ekki staðist í þá átt að þróun mála hefur orðið hagstæðari en gert var ráð fyrir þegar skrifað var undir samninga á s.l. vetri. Þetta kemur skýrt fram í plöggum frá Þjóðhagsstofnun sem bæði aðilar vinnumarkaðarins og hv. þm. hafa fengið í hendur. Þjóðhagsáætlun í fyrra gerði ráð fyrir að þjóðarframleiðslan mundi minnka um 4–5% en tölur frá Þjóðhagsstofnun nú og upplýsingar úr ræðum hæstv. forsrh. gera ráð fyrir að sá samdráttur verði um eða innan við 1%. Þannig hafa í raun þær forsendur, sem þá voru lagðar til grundvallar, ekki staðist á þann veginn heldur hefur þróun mála orðið hagstæðari og ber að sjálfsögðu að fagna því.

Fleiri tölur mætti nefna sem hafa þróast til rétts vegar, t.d. aukna útflutningsframleiðslu upp á 8–9%. Viðskiptakjör í heild, allir vöruflokkar meðteknir, eru nú 1.5 prósentustigi hagstæðari en í fyrra. Þrátt fyrir allt hafa því ýmsar ytri ástæður — ekki allar, ég er ekki að segja það — þróast í hagstæðari átt en gert var ráð fyrir þegar þjóðhagsáætlun fyrir árið var lögð fram, fjárlög og lánsfjárlög voru afgreidd og kjarasamningar undirritaðir. Þess vegna er eðlilegt að þetta sé nú tekið til endurskoðunar.

Síðan hefur, herra forseti, ástandið í sjávarútveginum mikið verið rætt hér sem ofureðlilegt er. Stjórnarliðar nota þetta ástand sem svipu. Þetta er svipan sem er reidd á bak launamanna ef þeir voga sér að krefjast hærri launa. Hv. þm. Þorsteinn Pálsson, 1. þm. Sunnl. með meiru, dró hér upp mjög dökka mynd af ástandinu. Þvílíkt svartnætti var það sem við honum blasti. Niðurstaðan var sú að sjávarútvegurinn þyldi ekki að greiða hærri laun. En hvar var þessi þm., þessi hv. 1. þm. Suðurl., flokksbróðir Árna Johnsen úr Vestmannaeyjum, formaður Sjálfstfl., húsbóndi í Valhöll með meiru, svo að fátt eitt sé talið af hans virðingarstöðum, þegar vextirnir voru hækkaðir í sumar? Jú, hann var úti á torgum að fagna. Stórkostleg kerfisbreyting í peningamálum, sagði maðurinn. Stórkostlegt afrek, kerfisbreyting aldarinnar. Mánuði síðar voru reyndar bankarnir lokaðir og var það að sönnu mikil kerfisbreyting. En veit Þorsteinn Pálsson, hv. 1. þm. Suðurl., ekki að hringinn í kringum landið í hverju fyrirtækinu í sjávarútvegi á fætur öðru er vaxtakostnaður svipuð stærð og launin? (Gripið fram í: Hverjir eiga spariféð?) Og hvað með aðra kostnaðarliði í sjávarútvegi, hv. skrifari og þm. úr Vestmannaeyjum, Árni Johnsen? (ÁJ: Hverjir eiga spariféð?) Hvað með þá? Það er misjafnt. T.d. eiga Íslenskir aðalverktakar slatta af sparifé. (Gripið fram í: Það er launafólk sem á 40% af sparifé landsins.) Á ég að snúa mér að hv. skrifara, herra forseti, eða á ég að ræða málin á öðrum forsendum?

Ég var að tala um það, herra forseti og hv. þm. Árni Johnsen úr Vestmannaeyjum, að það sé ýmislegt fleira en laun sem kosti sitt í rekstri sjávarútvegsins. Þannig eru t.d. vextirnir svipuð stærð og launin í mörgum fyrirtækjum í sjávarútvegi hringinn í kringum landið. Ég var að segja það, hv. þm. og skrifari, að formaður Sjálfstfl. hefði verið úti á torgum og fagnað vaxtahækkuninni í sumar en hann ætlar ær að verða, þessi hv. þm., ef minnst er á launahækkanir. Ég hef ekki orðið var við að hv. þm. Árni Johnsen né heldur formaður Sjálfstfl., hv. þm. Þorsteinn Pálsson, væru að óskapast hér yfir því að tryggingar hefðu hækkað, að olía hefði hækkað, rafmagn hefði hækkað, að farmgjöld hefðu hækkað o.s.frv. Það er nefnilega ýmislegt fleira sem kostar peninga við rekstur sjávarútvegsins en laun.

Við skulum gera okkur grein fyrir því að með þeirri vaxtahækkun einni sem þessir menn fögnuðu í sumar voru teknir burtu miklir möguleikar frá sjávarútveginum til að borga hærri laun. Það segir manni bara að þessir menn vilja heldur hækka vextina en launin. Það segir manni nákvæmlega ekkert annað. Ég skil og ég veit hvers vegna það er. Það er nefnilega trúaratriði í þessum hópi að þetta verði að vera svo. Það er fjármagnið sem öllu skal ráða, peningarnir. Þeirra skal vera valdið. En launin eru miklu neðar á listanum. Það sannast æ betur þessa dagana.

Herra forseti. Ég sé ástæðu til þess að harma það, eins og við gerum gjarnan, sumir, að hæstv. sjútvrh. mun í brottu. (Forseti: Ég vil vekja athygli hv. ræðumanns á því að sjútvrh. tjáði mér að hann gæti ekki verið hér á þessum fundi vegna þess að búið var að ákveða áríðandi fund í kjördæmi hans.) Ég þakka hæstv. forseta þessar upplýsingar og mun að sjálfsögðu taka þær til greina. Vegna ummæla hæstv. sjútvrh. hér í gær hefði ég gjarnan viljað hressa upp á minni hans að því leyti að hann virðist hafa gleymt öllu sem við í Alþb. og aðrir stjórnarandstöðuliðar fjölluðum um sjávarútveg á þinginu í fyrra. Hæstv. sjútvrh. stóð í þeirri meiningu að við hefðum verið á móti öllu sem gert hefði verið í sjávarútvegi og aldrei lagt neitt til málanna. Þetta er óskaplegur misskilningur og slæmt ef menn ganga lengi með svona í maganum. Ég mun reyna að ná til hæstv. sjútvrh. við tækifæri og leiðrétta þetta, benda honum m.a. á að lesa þingtíðindin og fara yfir þskj. frá þinginu í fyrra. Þá mun hann að sjálfsögðu sjá það og minnast þess að við fluttum marga gagnlega brtt. og löguðum ýmislegt til af því sem hann var að baksa við í sjávarútvegsmálunum, lögðum þar gjörva hönd á margt og hjálpuðum honum eins og við gátum. Það þýddi þó ekki að við gætum lagað alla hluti svo til að við treystum okkur til að samþykkja þá sem er annað mál. En ýmislegt tókst okkur þó að ná saman um. Slíkur málflutningur, að við höfum ekkert getað samþykkt, verið á móti öllu og ekkert lagt til málanna yfirleitt, á helst ekki að heyrast hér í þingsölum þegar þskj. og þingtíðindi sanna annað.

Þar fyrir utan hefur Alþb. sent frá sér ítarlega till. m.a. í þeim mikla vanda sem nú er við að etja í sjávarútvegi og hefði verið ástæða til að fara yfir þær hér til að hrekja það enn frekar að við höfum ekkert til málanna að leggja. En ég mun geyma það til betri tíma.

Skattamál, herra forseti, hafa mikið dregist inn í þessa umr. Það væri, eins og ég reyndar vék að áðan, fróðlegt að fá það upplýst hvernig því umboði sem Vinnuveitendasambandið virtist hafa frá hæstv. ríkisstj. — þá væntanlega í trausti meiri hl. hennar hér á Alþingi — til að valsa með skattamál og að því er virðist bjóða breytingar á skattalögum er háttað, hvernig þetta valdaafsal hefur farið fram eða hvar hið eiginlega löggjafarvald í þessum efnum er eiginlega statt?

Nú er það svo að á bls. 216 í þessu merka frv. til fjárl., sem hér liggur fyrir, eru allmiklar skýringar við gerð þessa frv. Og af því að menn hafa talað hér um skattalækkanir tel ég óhjákvæmilegt, með leyfi herra forseta, að fá að vitna aðeins í þetta frv. Það segir t.d. hér á miðri síðu:

„Í frv. er í aðalatriðum gert ráð fyrir óbreyttum tekjustofnum ríkissjóðs. Þó er gerð sú meginbreyting að áætlaðar tekjur af tekjusköttum einstaklinga eru lækkaðar um 600 millj. kr.“ Og neðar segir aftur, með leyfi forseta: „Í frv. er gert ráð fyrir að tekjur af neyslusköttum aukist að sama skapi.“

Er nú ekki eitt og það sama skattur og skattur, þ.e. er þetta skattalækkun að lækka tekjuskatt og hækka neysluskatta að sama marki? Ekki fæ ég það þannig út. Fyrir mér er þetta tilfærsla á sköttum úr einum flokki í annan og má auðvitað ýmislegt um það segja. En hér er sem sagt marglofaður fyrsti áfangi hæstv. ríkisstj. í því að afnema tekjuskatt af almennum launum á ferðinni. Í þessu fjárlagafrv. segir að hann skuli tekinn aftur með hærri neyslusköttum. Síðan er mikil umr. í gangi um að þessar skattalækkanir allar saman eigi að verða skiptimynt í yfirstandandi kjaradeilu. En mér er spurn, eru það þessar 600 millj. sem á að taka aftur með neyslusköttum eða er það eitthvað annað sem þar er verið að ræða um? Hvers konar skollaleikur er þetta? Eiga launþegar að kaupa það sem stórkostlega kjarabót að tekjuskattur verði lækkaður þegar í fjárlagafrv. ríkisstj. stendur að það skuli vegið upp með hækkuðum neyslusköttum? Hvernig halda menn að það komi út fyrir það fólk sem minnst ber úr býtum í þjóðfélaginu í dag og í langflestum tilfellum borgar alls ekki neina tekjuskatta? Hvernig kemur það út úr þessu dæmi? Hvernig á að tryggja að þetta verði sama kjarabótin fyrir alla þá sem mest þurfa hennar við?

Það geta allir verið sammála um að endurskoðunar sé þörf á lögum um tekjuskatt. Sé svo er ekkert eðlilegra en að ríkisvald og verkalýðshreyfing ræði hvort slíkar breytingar geti komið í stað kauphækkana til þeirra hópa sem njóta þess að tekjuskattur verði lækkaður. En ef á að rétta þá kjarabót með vinstri hendinni og taka hana svo aftur með hægri hendinni þá er það tálbeita sem enginn mun líta við.

Herra forseti. Ég vil að það komi hér fram að það sem ég tel að hið opinbera vanti í dag eru tekjustofnar miklu fremur en hitt að missa þá frá sér. Það þarf að ná til þeirra aðila í þjóðfélaginu sem hafa peninga og borga með þeim samneysluna í þjóðfélaginu og tryggja hana. Ég er þeirrar skoðunar að samneyslan sem slík sé besta trygging þeirra sem verst standa að vígi og hitt komi ekki í þess stað ef minnka á samneysluna. Á erfiðleikatímum einkum og sér í lagi er samneyslan helsta vörn þeirra sem minnst bera úr býtum. Það fær mig ekki nokkur maður til að trúa því, herra forseti, að opinberir starfsmenn til að mynda gíni við því agni í kjarasamningum að skera svo niður tekjumöguleika ríkissjóðs að það verði hrun í félagslegri þjónustu í landinu, svo ekki sé minnst á framkvæmdir. Það væri að mínu mati sama og að saga undan greinina sem setið er á f orðsins fyllstu merkingu.

Þetta fjárlagafrv., sem hér hefur verið lagt fram, sannar og sýnir betur en flest annað að mínum dómi að ríkið er þegar í dag vanmegnugt að halda uppi þeirri félagslegu þjónustu og þeim framkvæmdum sem við hljótum að gera kröfu til. Þegar ríkissjóður er þannig staddur eða þeir menn sem með hann fara þannig á sig komnir að þeir skera niður lögbundin framlög ríkissjóðs til aðila eins og Framkvæmdasjóðs fatlaðra, Eftirlaunasjóðs aldraðra, Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga og svo mætti lengi telja, þá er sá ríkissjóður eða þeir menn sem með hann fara ekki aflögufærir um tekjustofna að mínu mati.

Hvað með framlög til heilbrigðis- og menntamála ef þau eru nú skorin niður við trog? Er þá líklegt að opinberir starfsmenn, kennarar og aðrir slíkir, muni gína við því að skera enn frekar niður tekjumöguleika ríkissjóðs þegar hann er nú þegar þannig á sig kominn að hann getur naumast haldið uppi því sem kalla mætti lágmarksþjónustu á þessum sviðum? Það þarf að fara aðrar leiðir til að ná í fjármagn heldur en nota óréttláta innheimtu á tekjuskatti. Um það er ég sammála öðrum hv. þm. hér sem hafa reyndar þegar gert um það samþykktir. En þær leiðir vill ríkisstj., Framsfl. og Sjálfstfl. greinilega ekki fara.

Hv. þm. Halldóri Blöndal þótti ekki nóg að gert hjá flokksbróður sínum, hæstv. fjmrh., í ummælum um kennara. Hann sá ástæðu til að hnykkja þar aðeins á. Hann er reyndar fyrrv. kennari sjálfur og þekkir vel til. Hann fór að tala um þessa grunsamlegu fjölgun kennara miðað við grunsamlega litla fjölgun nemenda. Hvað segir hv. þm. t.d. um meðalfjölda barna í bekkjardeildum á Íslandi? Telur hann það bara allt í himnalagi og eðlilegt og sjálfsagt að þeir séu milli 28 og 30 í mörgum þéttbýlisstöðum á landinu? Eða er hann að gera um það till. að unnt sé að fækka kennurum og fjölga í bekkjardeildum á hvern kennara eða hvernig átti að skilja orð hans hér áðan og annarra þeirra sem vitna í þessa grunsamlegu fjölgun kennara? Ég held að kennarastéttin í landinu hljóti að lesa þingtíðindin næstu daga, hvenær sem þau koma út, með nokkurri athygli og finna þar ýmislegt athyglisvert um viðhorf þessara talsmanna Sjálfstfl. í málefnum kennara. Og læt ég það duga um þann málaflokk og þann þáttinn í þessari umr., athyglisverðan nokkuð.

Herra forseti. Ég fer nú að stytta mál mitt. En vegna þeirrar ræðu sem hv. þm. Ellert B. Schram hélt hér í gærkvöldi — en mér skilst að hann sé heill þingflokkur eða langleiðina í það — hlýt ég að segja örfá orð og væri æskilegt ef hægt væri að fá þann hv. þm. til að hlýða á umr. ef hann er í húsinu. (Gripið fram í: Eru forsrh. og fjmrh. staddir í húsinu?) (Forseti: Það kom fram í ræðu forsrh. að hann væri um þessar mundir á samningafundi með forsvarsmönnum BSRB.) Það kallast ekki til stórtíðinda þó forsrh. sé ekki hér í húsinu. Hann hefur brugðið sér lengri bæjarleiðir undanfarið.

Við vorum ekki, hv. þm. hér á Alþingi, merkilegir pappírar í ræðu hv. þm. Ellerts Schram hér í gærkvöldi. Það mátti helst á honum skilja að hér sæti samansafn af gamalmennum, a.m.k. andlegum ef ekki einnig líkamlegum. Við sætum hér hv. þm. og horfðum ofan á tærnar á okkur gersamlega sambandslausir við umheiminn, við fólkið í landinu, við kjósendur okkar. Ég hefði spurt hv. þm. að því hvort hann telji sig hafa umboð til þess og efni á því að tala sem slíkur, hann sem fór þannig með virðingu kjósenda sinna og traust hér í Reykjavík að hann sá ekki ástæðu til að sinna störfum í þessari stofnun í heilan vetur. Ég bið hann að svara fyrir sig sjálfan og gera það á síðari stigum því að hann er ekki hér viðstaddur. Það hefði verið fróðlegt að fá við því svör frá hv. þm. í leiðinni hvers vegna hann var yfirleitt, hafandi gefið þá lýsingu á þessari stofnun og þeim sem hér vinna, að koma hingað til starfa að nýju.

Herra forseti. Í kjaradeilum er í meginatriðum deilt um tvennt, þ.e. hve mikið sé til skipta og hvernig skuli skipta því. Komið hefur fram hér í þessari umr. að fall þjóðartekna á Íslandi í þeirri lægð sem gengið hefur yfir s.l. 2 ár sé á milli 9–10%. Einnig hefur komið fram að skerðing kaupmáttar launafólks á sama tíma nálgast nú 30%. Þennan mun stendur upp á hæstv. ríkisstj. að skýra. Ríkisstj. hefur breytt hlutaskiptunum í íslensku þjóðfélagi. Það sanna þessar tölur. Hlutfall launa hefur lækkað borið saman við þjóðartekjur.

Á sama tíma og almennt launafólk hefur vart til hnífs og skeiðar raka ýmsir aðilar í þjóðfélaginu að sér fé. Þetta eru breytt hlutaskipti. Ábyrgðin á þessum breyttu hlutaskiptum getur ríkisstj. ekki velt yfir á aflabrest eða aðrar ytri aðstæður. Þann hluta sem það má með sönnu gera getur hún vissulega fært þangað. En það sem eftir stendur, munurinn þarna á milli, fyrir hann verður þessi ríkisstj. að svara launþegum í landinu. Er það ekki það sem þeir eru nú fyrst og fremst að spyrja um í dag? Þetta er afleiðing stjórnarstefnunnar. Sömuleiðis yfirvofandi atvinnuleysi og byggðaröskun. Þetta eru afleiðingar leiftursóknarinnar í anda frjálshyggjunnar sem framkvæmdar eru með hæstv. forsrh. Steingrím Hermannsson í bílstjórasætinu. Hv. 1. þm. Sunnl., Þorsteinn Pálsson, situr sem bílstjóri í aftursætinu og leggur gjörva hönd á axlir forsrh. og segir honum hvert hann eigi að beygja.