03.05.1985
Neðri deild: 63. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4779 í B-deild Alþingistíðinda. (4030)
364. mál, jöfnun og lækkun hitunarkostnaðar
Iðnrh. (Sverrir Hermannsson):
Herra forseti. Á þskj. 582 eigum við viðskrh. barn saman, sem er frv. til l. um breyt. á lögum um jöfnun og lækkun hitunarkostnaðar, borið fram af viðskrh., en samkomulag um að ég mæli fyrir því.
Skv. gildandi lögum um jöfnun og lækkun hitunarkostnaðar er framkvæmd laga þessara skipt þannig að iðnrh. fer með framkvæmd III. kafla laganna, um orkusparnað, og IV. kafla, um nýtingu innlendra orkugjafa, en framkvæmd II. kafla, um olíustyrk, er í höndum viðskrh. Þegar lögin um greiðslu olíustyrks voru fyrst sett 1974 var litið svo á að um verðlagsmál væri að ræða og var framkvæmd laganna því í vörslu viðskrn. og hefur svo verið síðan að því er snertir framkvæmd og greiðslu olíustyrks.
Samkomulag hefur nú orðið um að færa framkvæmd þessara mála alfarið til iðnrn. og felur frv. þetta í sér lögfestingu á því samkomulagi. Verði frv. þetta að lögum færast mál er varða greiðslu olíustyrkja til iðnrn. og með því verður framkvæmd þessa málaflokks á einni hendi. Eðlilegt þykir að fela iðnrn. að sjá um greiðslu olíustyrkja, m. a. með tilliti til þess að leggja verður áherslu á að menn skipti sem mest yfir í rafhitun í stað olíuhitunar, en iðnrn. hefur besta yfirsýn yfir möguleika á rafhitun í hinum ýmsu héruðum landsins.
Af hálfu og fyrir forgöngu iðnrn. í samstarfi við félmrn. hefur verið hafist handa um átak í orkusparnaðarskyni. Eitt af því sem það framtak felur í sér er breyting á olíukyntum húsum í rafkynt hús þar sem kostur er að leggja rafhitun í hús. Það er ætlað að um 2700 íbúðir í landinu séu enn kyntar með olíu. Það er álitið að yfir 2000 íbúðum sé auðgert að breyta úr olíu yfir í rafhitun með tiltölulega vægum kostnaði í flestu falli. Þetta er það átak sem nú stendur fyrir dyrum og í ár er það hyggja manna að takast muni að breyta um, úr olíukyndingu yfir í rafhitun, 1000 íbúðum og 1000 til viðbótar á næsta ári.
Til olíustyrkja er varið skv. fjárlögum á þessu ári rúmum 50 millj. kr. og ætti þess vegna að vera hægt að spara verulega á þessum lið. Þá er hugmyndin að nýta þá fjármuni til að liðka fyrir hjá húseigendum að framkvæma þessar breytingar, en sérstakar ráðstafanir hafa verið gerðar í því skyni. Enn fremur er ætlunin nú að taka fyrir mannvirki, skólahúsnæði og félagsheimili og annað húsnæði, á vegum sveitarfélaga o sjá til hversu langt við getum náð fram í því skyni. Ég nefni kirkjur í þessu sambandi einnig.
Herra forseti. Ég legg til að þegar 1. umr. lýkur verði frv. þessu vísað til 2. umr. og iðnn.