06.05.1985
Efri deild: 64. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4812 í B-deild Alþingistíðinda. (4077)
404. mál, Fiskveiðasjóður Íslands
Frsm. (Valdimar Indriðason):
Virðulegi forseti. Sjútvn. þessarar hv. deildar hefur fjallað um frv. til l. um viðauka við lög nr. 44 25. maí 1976, um Fiskveiðasjóð Íslands, er lagt var fram hér í deild á þskj. 661. Nefndin er öll sammála um það að mæla með samþykkt frv. Kemur það fram í nál. á þskj. 830.
Á fund nefndarinnar komu fulltrúar Fiskveiðasjóðs, þeir Már Elísson forstjóri, Svavar Ármannsson skrifstofustjóri og Hinrik Greipsson fulltrúi. Þeir skýrðu þær breytingar sem þarna er lagt til að gerðar verði og mæltu með þeim. Um er að ræða einn þátt í svokallaðri skuldbreytingu sjávarútvegsins sem unnið var að á síðasta ári. Bönkum og sparisjóðum var falið að sjá um framkvæmd þessara skuldbreytinga með fyrirheiti um að Fiskveiðasjóður endurkeypti þau skuldabréf sem bankar og sparisjóðir tækju vegna þessara breytinga. Til þessara endurkaupa yfirtæki Fiskveiðasjóður allt að 500 millj. kr. lán úr Framkvæmdasjóði, en heimilt er einnig að fella niður stimpilgjöld af skuldabréfalánum þessum.
Sérstakur vinnuhópur tók til starfa á miðju ári 1984 að tilhlutan sjútvrh. Skyldi hann fjalla um breytingar á viðskiptaskuldum sjávarútvegsfyrirtækja með það fyrir augum að breyta þeim í lengri lán. Ríkisstj. samþykkti tillögur vinnuhópsins á fundi sínum 9. ágúst 1984. Í bréfi Fiskveiðasjóðs Íslands til sjútvrn. dags. 10. sept. 1984 varðandi þessi mál kemur m. a. fram, eins og greint er frá í aths. við lagafrv. þetta, að þá telur sjóðstjórnin að yfirtaka sjóðsins á fyrrgreindum skuldabréfum geti ekki hafist fyrr en heimildir eru fengnar að lögum og þá stofnaður nýr lánaflokkur eða deild við sjóðinn og um það efni gefin út sérstök reglugerð. Þess vegna er lagafrv. þetta flutt. Kaupum viðskiptabanka og sparisjóða á skuldabréfum útgerðar og fiskvinnslu er nú sem næst lokið. Er því brýnt að yfirtaka Fiskveiðasjóðs geti hafist sem fyrst.
Það kom fram í viðræðum við fulltrúa Fiskveiðasjóðs og það vil ég sérstaklega undirstrika svo að ekki valdi misskilningi að þar sem í aths. við frv. stendur að fyrsti vaxtagjalddagi skuldabréfanna sé 1. maí 1985 þá er þetta sett þarna inn vegna þess að lán Fiskveiðasjóðs hafa má segja öll gjalddagana 1. maí og 1. nóv. En þar sem við erum nú að ræða þetta í fyrri deild hér í byrjun maí stenst ekki þessi dagsetning. Henni þarf því að breyta í 1. nóv. Ég vil að þetta sé undirstrikað hér. Það er þó ekki þörf á neinni sérstakri brtt. um þetta, þetta felst ekki inni í neinni grein frv. heldur né athugasemdum. En ég taldi rétt að þetta kæmi fram hér í framsögu frá nefndinni.
Skuldbreyting sú sem hér um ræðir hefur tekið lengri tíma en búast mátti við. En þarna var við mörg vandamál að etja og margt þurfti að athuga hjá einstökum aðilum. Þessu var samt að meginhluta lokið um síðustu áramót. Skuldabréf þau sem Fiskveiðasjóður yfirtekur af bönkum og sparisjóðum, verði frv. þetta að lögum, verða til 8 ára. Þau eru í japönskum yenum og munu bera 81/4% vexti og vera afborgunarlaus fyrstu þrjú árin.
Virðulegur forseti. Ég endurtek að sjútvn. þessarar hv. deildar var öll sammála um að leggja til að frv. þetta verði samþykkt og mælir með því að það fái sem fyrst fullnaðarafgreiðslu hér í Ed.