06.05.1985
Neðri deild: 64. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4818 í B-deild Alþingistíðinda. (4090)

463. mál, kosningar til Alþingis

Forseti (Ingvar Gíslason):

Það kom hér fram till. frá hæstv. dómsmrh., sem flutti þetta mál, um það að kosin yrði sérstök nefnd, eða lausanefnd eins og það heitir í þingsköpum, um þetta mál. Nú hefur ekki gefist tími til þess á þeim tíma sem liðinn er að þingflokkar taki afstöðu til þess hverjir sitji í þessari nefnd og þess vegna er ekki um það að gera í sjálfu sér að kjósa einstaklingana í nefndina. Hins vegar gæti Alþingi eða þingdeild nú ákveðið hvort sá háttur verður hafður á að sérstök nefnd verði kosin eða ekki. Og það var það sem ég ætlaði að bera upp núna, hvort hv. þingdeild vill ekki samþykkja þá till., sem fram hefur komið frá dómsmrh. og nú er studd af hv. 3. þm. Reykv., að kosin verði lausanefnd í málið. Ég ber þá till. upp. Síðan verður að afgreiða á formlegan hátt síðar hvaða einstaklingar sitja í nefndinni. Ég ber það nú upp hvort sú till. fær ekki stuðning að kosin verði sérstök nefnd til þess að fjalla um þetta mál með líkum hætti og gert var á síðasta þingi. (ÓÞÞ: Forseti, á hvaða þskj. er þessi till.?) Þessi till. er ekki á þskj., þetta er munnleg till. sem komið hefur fram. (ÓÞÞ: Þarf ekki að leita afbrigða?) Það þarf ekki að leita afbrigða fyrir þessu. Það er leyfilegt að kjósa lausanefndir skv. 15. gr. þingskapalaga ef ég man rétt.