06.05.1985
Neðri deild: 64. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4845 í B-deild Alþingistíðinda. (4115)

86. mál, áfengislög

Forseti (Ingvar Gíslason):

Þessum fundi verður lokið núna. Það verður ekki gert hlé á fundinum. Honum verður slitið því að það verður ekki fundur hér í kvöld. Hins vegar er einn hv. þm. á mælendaskrá, hv. 2. þm. Reykn. Hann hefur skrifað undir nál. meiri hl. með fyrirvara og hefur óskað eftir því að fá tækifæri til þess af sérstökum ástæðum að gera örstutta grein fyrir fyrirvara sínum ef það gæti orðið samkomulag við hv. frsm. minni hl. um að hann frestaði nú ræðu sinni og héldi henni áfram á síðari fundi og viki þá fyrir þessum hv. þm. og hann fengi aðstöðu til að mæla hér nokkur orð með fyrirvara sínum.