30.10.1984
Sameinað þing: 12. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 619 í B-deild Alþingistíðinda. (413)
100. mál, þingnefnd vegna rekstrarvanda í sjávarútvegi
Eiður Guðnason:
Herra forseti. Ég vildi aðeins með örfáum orðum lýsa stuðningi við meginefni þessarar till., þ.e. að kjörin verði nefnd sjö þm. til að kanna og safna upplýsingum um þau vandamál sem hér er við að stríða og benda á leiðir til úrbóta. Það er auðvitað kunnara en frá þurfi að segja við hvern vanda togararnir eiga að stríða núna og sjávarútvegurinn í heild og ég held að mönnum hér inni sé það ákaflega vel ljóst að ef sjávarútvegurinn ekki gengur og ef útgerðin hefur ekki rekstrargrundvöll, svo að notað sé það eftirlætisorð manna nú um stundir, þá gengur ekki þetta þjóðfélag heldur. Það er alveg skýrt og klárt.
Hv. síðasti ræðumaður, hv. 5. þm. Norðurl. e., vék að því hér að menn hefðu sjálfir komið sér í þann vanda sem hér væri við að etja. Ég held að það sé ekki alveg rétt. Ég held að það sé staðreynd, sem ekki verður móti mæli, að a.m.k. töluverður hluti þessa vanda, a.m.k. sumra skipanna, stafar af því að á þeim hvíla lán í dollurum og að nú hefur gengisþróun varðandi dal orðið önnur en menn ætluðu.
Ég hygg að það sé ekkert leyndarmál að það var beinlínis stefna bankakerfisins að menn tækju dollaralán. Menn sem vildu sumir hverjir taka lán í norskum krónum eða sterlingspundum voru mjög hvattir ef ekki beinlínis ýtt inn á þær brautir af bankakerfinu að taka lán í dollurum. Fyrir þessu tel ég mig hafa alveg örugga vitneskju og þess vegna bera opinberir aðilar auðvitað ábyrgð á hluta þessa vanda. Menn sjá eftir á að þau skip sem t.d. eru með lán í sterlingspundum eða norskum krónum eru yfirleitt ólíkt betur á vegi stödd en þar sem dollaralán eru og skýrir það sig sjálft ef menn skoða gengisþróun og þróun á gengi Bandaríkjadals að undanförnu. Þess vegna bera opinberir aðilar með nokkrum hætti ábyrgð á því hvernig komið er.
En hér er um margslungið vandamál að ræða. Það má vera að það taki nokkurn tíma og hlýtur að taka nokkurn tíma að komast til botns í því. En auðvitað komast menn ekkert hjá því. Það verður ekki látið ske að öllum þessum flota verði lagt, sem skuldar hvað mest, vegna þess að það þýðir neyðarástand á fjölmörgum stöðum víðs vegar um landið. Það þýðir fjöldaatvinnuleysi. Það er þjóðfélaginu miklu dýrara að láta þennan flota, sem verst er settur, stöðvast en að gera ráðstafanir til að leiðrétta það misvægi sem þarna hefur skapast því að fjármagn hefur verið fært frá sjávarútvegi með ýmsum hætti til verslunar og þjónustu t.d. sem blómstrar nú meir en nokkru sinni fyrr, a.m.k. hér í höfuðborginni og nágrenni. Það segir í fskj. með þessari till., með leyfi forseta, 6. liður:
„Gagngert verði unnið að því að tryggja ódýrari þjónustu við sjávarútveginn en nú er um að ræða. Verði sérstaklega tekið á bönkum, olíufélögum og skipafélögum í þessu sambandi sem græða nú hundruð milljóna kr. á ári. Ekki er vafi á því að uppistaðan í hagnaði þessara fyrirtækja er sótt í sjávarútveginn.“
Þarna er kannske nokkuð sterkt til orða tekið, en ég held að það sé öruggt mál að töluvert af gróða þessara fyrirtækja er sótt til sjávarútvegsins. Ég bendi sérstaklega á bankakerfið sem ríkisstj. sá ástæðu til að undanþiggja sköttum á síðasta ári sem bankakerfið áður hafði greitt og létti stórlega á bönkunum. Hvert fara þeir fjármunir nú? Ætli þeir fari ekki í húsbyggingar og fleiri bankaútibú og eitthvað fleira því skylt? Það er minnst á olíufélögin hér. Menn hafa fylgst með því, og ekki bara hér í kringum höfuðborgina, hvernig olíufélögin blómstra, hvernig bensínhallirnar rísa hér hver á fætur annarri með nokkur hundruð metra millibili við þjóðvegina út úr höfuðborginni. Menn hafa fylgst með því hvernig olíufélögin færa sífellt út kvíarnar jafnframt því sem olíuverð og bensínverð hækkar. Nú liggur fyrir ein hækkunarbeiðni upp á að mér skilst 15–20% frá þessum olíufélögum samtímis því sem olía er að lækka á mörkuðum erlendis. Menn hafa líka fylgst með því hvernig þessi félög hafa opnað matvöruverslanir. Menn hafa líka fylgst með því hvernig olíufélögin hafa opnað myndbandaútleigur með Dallas og ég veit ekki hverju. Hvers vegna í ósköpunum eiga þeir sem kaupa bensín og olíur að vera að greiða niður svona vitleysu? Hvaða skylda ber olíufélögunum til að sjá mönnum fyrir sjónvarpsefni? Ég hélt að það væru nógir aðrir aðilar til þess. Eiga þeir sem kaupa bensín og olíur, eiga útgerðarmenn sem kaupa olíu, að greiða niður innkaup olíufélaganna á Dallas? Það er fáránlegt. Þessi félög eru komin langt út fyrir sitt verksvið. Það er fullkomin ástæða til þess að íhuga hvort ekki eigi að kasta þessu dreifingarkerfi, sem nú er, fyrir róða. Ríkið flytur inn olíuna, þannig að það hefur milligöngu um innkaupin. Olíufélögin taka síðan við henni og dreifa henni gegnum þrefalt dreifingarkerfi. Ég hef ekki hingað til verið talsmaður þjóðnýtingar á þessu sviði, en mér sýnist vera fullkomin ástæða til að skoða það í fúlustu alvöru hvort þessi félög séu ekki óþörf, hvort ríkið eigi ekki bara að flytja inn þessa olíu, eins og það hefur nú milligöngu um, og hvort síðan eigi ekki einstaklingar að reka þessar bensínstöðvar út um allt land og hér í Reykjavík. Á ekki bara að bjóða þær út og leyfa einstaklingum að spreyta sig á þessum rekstri? Ég get ekki ímyndað mér að það sé í andstöðu við sjónarmið þeirra sjálfstæðismanna. Ég get ekki ímyndað mér það.
Ég sé ekki betur en þessi olíufélög séu orðin dragbítur og geri það að verkum að við verðum að borga dýrara bensín og dýrari olíu en ella væri. Ég held að þetta sé mikillar athugunar virði.
Ég skal ekki hafa þessi orð fleiri, herra forseti. Ég ítreka stuðning við meginefni þessarar till., þ.e. að farið verði ofan í saumana á þessu vandamáli. Það er ekkert auðleyst og engar pennastriksaðferðir duga þar, ég get alveg tekið undir það. En þetta er vandamál sem menn komast ekki hjá því að leysa. Ég held að mönnum sé líka ljóst og því fyrr sem menn átta sig á því að þetta verður að gera, því betra. Það verður að tryggja þessum togaraflota skilyrði til þess að hann geti haldið áfram að fiska.