30.10.1984
Sameinað þing: 12. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 620 í B-deild Alþingistíðinda. (415)

60. mál, þjónusta vegna tannréttinga

Flm. (Helgi Seljan):

Herra forseti. Á þskj. 60 hef ég leyft mér að flytja svohljóðandi till. til þál.:

„Alþingi ályktar að skora á ríkisstj. að leita allra leiða til að koma á ákveðinni skipulegri þjónustu í tannréttingum úti á landsbyggðinni. Skal um málið leitað samvinnu við Tannlæknafélag Íslands og samráð haft við Tryggingastofnun ríkisins um mögulega framkvæmd þessa.“

Í grg. segir svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Það er alkunna að tannréttingar eru orðnar býsna algengar sem veigamikill þáttur í tannvernd. Mikill fjöldi barna og unglinga er í tannréttingum sem taka yfir langan tíma og eru bæði dýrar og kostnaðarsamar á ýmsan veg. Lætur nærri að um 30% þurfi að fara í slíkar aðgerðir. Ekki skal dregið úr nauðsyn þess að tannréttingar séu framkvæmdar á þeim sem þurfa, þó óneitanlega hafi aukning þeirra orðið mjög mikil og þyrfti vissulega að kanna það hvort þessa er í raun þörf í svo ríkum mæli sem nú er, en á það skal enginn dómur lagður. Aðeins skal á það bent“ — skv. þeim upplýsingum sem ég hef fengið, en hafa reyndar verið dregnar í efa síðan þessi till. var flutt — „að 41 % ferðakostnaðargreiðslna, sem tryggingayfirlæknir úrskurðar, eru vegna tannlækninga og tannréttingar eru þar yfirgnæfandi.

Sjúkrasamlögin taka verulegan þátt í þessum aðgerðum, bæði hvað tekur til tannréttinganna sjálfra og ferðakostnaðar þeirra sem lengra þurfa að sækja. Þáttur sjúkrasamlaga í tannréttingum er nú 50%, var 75% fyrir valdaskeið núv. ríkisstj. En þessi till. snýst fyrst og síðast um hinn þáttinn, ferðakostnaðinn sem hér af hlýst. Mun þar um verulegar upphæðir að ræða, því ekki er óalgengt að fara þurfi 12–14 ferðir á fund sérfræðings vegna meiri háttar tannréttinga. Þáttur sjúkrasamlags í þessum ferðakostnaði er flugferðin að frádregnum 800 kr. fyrir fyrstu ferð og 400 kr. fyrir aðrar. Þá er að sjálfsögðu eftir sá verulegi kostnaður sem hver einstaklingur þarf að greiða. Auk þess er greitt fyrir fylgdarmann ef þess er talin augljós þörf.

Austfirsk börn og unglingar leita ýmist til Akureyrar eða Reykjavíkur eftir þessari þjónustu. Fyrst er ferð á flugvöll sem getur verið talsvert dýr, svo ekki sé minnst á erfiðleika í vetrarferðum, óþægindi og aukakostnað. Síðan er svo flugferðin og þar er um verulegan kostnað að ræða sem hverjum einstökum ber að greiða. Ótalin er þá röskun vegna skóla eða vinnu, t.d. ef flug fellur niður og biðtími verður lengri af þeim sökum. Varla fer flm. þessarar till. svo um Egilsstaðavöll að þar séu ekki einhverjir að koma eða fara í þessum erindagjörðum.

Það er því augljóst að allra leiða verður að leita til að reyna að koma á hagkvæmri skipan þessara mála, færa þjónustuna að svo miklu leyti sem unnt er nær fólkinu. Á því eru sögð ýmis tormerki og verða þau ekki tíunduð hér, en ekkert úr þeim dregið. Hins vegar er hér um stærri fúlgur að ræða en svo í endurgreiðslu ferðakostnaðar frá tryggingakerfinu, svo aðeins sé nú á þann þátt litið, að ekki megi talsverðu til kosta og yrði þó umtalsverður sparnaður niðurstaðan. Hins vegar skal höfuðáhersla lögð á kostnað viðkomandi aðila sem er mjög verulegur, margs kyns óhagræði og umtalsverð röskun varðandi nám eða vinnu.

Ef þjónustan yrði a.m.k. á einum stað í fjórðungnum yrði um mjög mikla bót að ræða svo vægt sé til orða tekið. Að þessu ber því ótvírætt að stefna og fjölmargir foreldrar hafa rætt um þetta við flm. og óskað eftir því að knúið yrði á um úrbætur. Vel kann að vera að einhverjar athuganir hafi átt sér stað á möguleikum þessa, vel kann að vera að þetta verði torleyst, en að því ber rækilega að huga. Hér er um hagsmunamál fjölmargra að tefla, hér eru miklar upphæðir á ferðinni úr tryggingarkerfinu og því hlýtur að verða að kanna gaumgæfilega hvort ekki er unnt að fá sérfræðing í þessari grein til að koma til móts við fólkið eins ríkulega og unnt er. Þegar sparnaðarhjali er helst á lofti haldið væri ómaksins vert að huga hér að.“

Til viðbótar við þessa grg. er kannske óþarft að hafa uppi frekari rökfærslu. Á eðlilegum tímum hefði vissulega verið unnt að fá enn nánari talnalegar upplýsingar um umfang þessa kostnaðar sem hér er sérstaklega vikið að. Það er nauðsynlegt líka vegna þess að ef unnt væri að koma þessari þjónustu nær fólkinu væri að því ótvíræður sparnaður fyrir tryggingakerfið í landinu, en venjulega eru svona þjónustuatriði talin ómöguleg í framkvæmd sakir allt of mikils kostnaðar sem þeim kynni að fylgja. Ef allir legðust nú hér á eitt og gott skipulag næðist í þessum efnum er auðsætt að sparnaður mundi af verða. Þá er að sjálfsögðu hinn stóri þáttur eftir, eins og ég kom inn á í grg., sem snýr að viðkomandi aðilum, hagræði, þægindi og minni kostnaður yfirleitt. Þetta hlýtur því að vera verðugt athugunar- og úrlausnarefni.

Að því er vikið í grg. hver þörfin sé fyrir tannréttingar almennt. Án þess lítið sé úr þeirri þörf gert þá ber vissulega að kanna það rækilega í leiðinni hvort hér sé í heildina gengið of langt, farið offari. Tölur frá Norðurlöndunum eru ákaflega misjafnar og greinilegt að ólíkt mat er lagt á þörfina, alveg sér í lagi þörfina á meiri háttar tannréttingum. Sumir tannlæknar fullyrða að við séum alveg í hámarki með þessar aðgerðir, þær séu nánast, eins og virtur maður í þeirri stétt orðaði það, „tískufyrirbrigði“ sem nýtt væri til hins ýtrasta. Það er ekki launungarmál að yfirtannlæknir heilbrrn., sá ágæti maður Magnús Gíslason, telur að hér sé a.m.k. um mjög verulegt athugunarefni að ræða og ýmsar efasemdir hefur hann uppi um þýðingu þessara síauknu tannréttingaraðgerða.

Mér eru hins vegar efst í hug þolendur þessa, börn og unglingar á landsbyggðinni og aðstandendur þeirra, og hversu unnt megi reynast að minnka kostnað þeirra og auka þjónustuna með því að færa hana nær fólkinu, hvort sem það yrði með reglubundnum ferðum þeirra tannlækna sem eru sérfræðingar á þessu sviði og munu vera átta talsins, eða þá að tryggja það með búsetu þeirra og aðstöðu í a.m.k. hverjum landsfjórðungi.

Ég þekki til foreldra sem hafa verið með fjögur börn sín í tannréttingum á s.l. fjórum árum og veit gjörla um þær drjúgu upphæðir sem það heimili hefur þurft að eyða til þessa. Ég veit hins vegar að öll þessi tilvik hafa verið óhjákvæmileg og sjálfsögð fyrir viðkomandi. En svona dæmi og ótal fleiri þessu lík knýja á um að eitthvað sé gert í þessu máli og því er þessi till. flutt. Ég leyfi mér, herra forseti, að leggja til að að loknum þessum hluta umr. verði till. vísað til hv. allshn.