07.05.1985
Sameinað þing: 80. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4869 í B-deild Alþingistíðinda. (4150)
76. mál, endurreisn Viðeyjarstofu
Frsm. (Ólafur Þ. Þórðarson):
Herra forseti. Það kom fram í máli mínu að þetta verk er þegar hafið og mjög vel á veg komið. Vegna afmælis er miðað við þetta ártal, en nefndin telur að hægt sé að standa við þessi mörk miðað við það að hefja ekki veitingarekstur á þessum stað eins og hugmyndir eru e. t. v. uppi um. En það kom fram að verkið sjálft, viðgerðin, er mjög vel á veg komin.