07.05.1985
Sameinað þing: 80. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4876 í B-deild Alþingistíðinda. (4160)

200. mál, Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins

Helgi Seljan:

Herra forseti. Við fyrri hluta umr. þessa máls urðu allnokkrar umræður hér um þetta mál í heild sinni. Í þeirri þáltill. sem hæstv. félmrh. kynnti þá var um það að ræða að leysa að fullu í raun og veru ákvæði til bráðabirgða um ráðgjafar- og greiningarstöð ríkisins í lögum um málefni fatlaðra, sem menn muna að var á sínum tíma vísað til nánari ákvörðunar síðar, enda um býsna viðamikið mál að ræða og ekki auðleysanlegt.

Þáltill. eins og hún kom frá hæstv. félmrh. þá og hv. frsm. rakti hér áðan tók á þessum þáttum öllum, þ. e. greiningarstöðinni sem stofnun, byggingu hennar, ákveðinni áfangalausn í húsnæði sem þar var fyrirhuguð og síðar stöð sem fullkomnust og jafnvel, eins og þar stóð í síðustu greininni, skv. ákveðinni teikningu, sem ég gerði nú athugasemd við hér á sínum tíma að væri heldur óeðlilegt að vera með inni í þál. frá Alþingi.

1. mgr. þessarar till. frá hæstv. félmrh. var einmitt um yfirstjórnina. Hún var að vísu orðuð sem eins konar málamiðlun, sýndist mér, milli ráðuneyta og við hv. 2. landsk. þm. Jóhanna Sigurðardóttir, sem tókum þátt í þessum umr., bárum þá fram brtt. við 1. málsliðinn, um að hann orðaðist svo með leyfi hæstv. forseta:

„Athugunar- og greiningardeild í Kjarvalshúsi við Sæbraut á Seltjarnarnesi verði breytt í Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins, þ. e. fyrsta áfanga í þróun þeirrar stofnunar sem verði undir yfirstjórn félmrn.“

Hv. fjvn. hefur tekið þennan eina þátt út úr og gert það á þann veg að meira er í takt við brtt. okkar en upphaflegu till. Ég fagna því og því munum við að sjálfsögðu taka till. okkar aftur þar sem meining okkar varðandi yfirstjórn þessara mála er í raun og veru skýrt ákveðin nú í brtt. þeirri sem fjvn. leggur til.

Ég ætla ekki að leggja neinn dóm á það atriði að fjvn. hefur nú valið þann kostinn að taka aðeins þennan eina

Greiningar þátt fyrir og leggja þar til lausn sem ég styð fullkomlega. Ég bendi hins vegar á það að nefndin hefur ekki tekið á öðrum þáttum, þ. e. uppbyggingu stöðvarinnar, úrlausn til bráðabirgða, svo og fjármögnun á öllu saman. Ég ætla ekki að fara að rekja þær umræður sem urðu hér á sínum tíma um þetta mál og hafa lengi verið í „farvatninu“. Þetta hefur verið viðkvæmt mál, deiluefni sumt, en ég bendi aðeins á að það er brýn nauðsyn að leysa úr því fyrr en síðar svo að framtíðarfyrirkomulag á þessum málum sé tryggt.

Ég ítreka aðeins nú að það bráðabirgðaákvæði í lögunum um málefni fatlaðra, sem hér er vísað til alveg sérstaklega, er út af fyrir sig ekki úr sögunni með þessari afgreiðslu. Hér er aðeins tekið á hluta þessa vanda með þeirri till. sem hv. fjvn. leggur fram hér. Eftir standa óleyst önnur efnisatriði þeirrar till., upphaflegu till. sem hæstv. félmrh. flutti hér. Ég geri ekki athugasemd við það á þessu stigi málsins, enda held ég að það sé mest um vert nú að fá úrskurð um yfirstjórn þessarar starfsemi, að hún sé á vegum félmrn., þó að nógu erfið reyndist sú togstreita, sem var um þessi mál milli rn. á sínum tíma, hver ætti að hafa yfirstjórn. Því ber að fagna þessum áfanga. Hitt bíður svo úrlausnar svo að fullnægt sé ákvæðinu til bráðabirgða að fullu og ég vænti þess að í því efni fáist úrlausn sem fyrst. Það þarf að finna frambúðarlausn á þessari starfsemi, áfangalausn í bili til að þessari mikilvægu starfsemi verði fundinn ákveðinn farvegur, sem skynsamlegastur um leið. Ég hef ekki verið einn af þeim sem hafa viljað byggja loftkastala og leggja áherslu á nógu dýra og kostnaðarsama byggingu í þessum efnum. En ég ætla ekki að fara að rekja þær deilur allar og þá gífurlegu viðkvæmni sem gætt hefur í þessum málum, vegna þess að í raun og veru er nú um aðeins einn þátt þessa máls að ræða, þ. e. að félmrn. hafi yfirstjórn á Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins, og það er vissulega spor í rétta átt. En þar sem hinir efnisliðirnir falla brott munum við að sjálfsögðu, hv. 2. landsk. þm. og ég, taka einnig aftur 2. brtt. okkar sem var um fjármögnunina á þessu mikla verkefni. Hún var þannig, með leyfi virðulegs forseta:

„Skal fé veitt til þessa verkefnis sérstaklega á fjárlögum næstu fimm ár, í fyrsta sinn árið 1986.“

Það var nauðsynlegt að festa það betur til þess að það væri öruggt að ef í þetta yrði ráðist á annað borð með þeim hætti sem till. gerði ráð fyrir, þá væri fjármögnunin tryggð um leið. Brtt. nr. 2 á þskj. 397 er því einnig tekin til baka af okkar hálfu.