07.05.1985
Sameinað þing: 80. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4878 í B-deild Alþingistíðinda. (4163)
359. mál, lækkun vaxta og stöðvun nauðungaruppboða
Flm. (Svavar Gestsson):
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir till. til þál., sem þingflokkur Alþb. flytur á þskj. 572, um tafarlausa lækkun vaxta og stöðvun nauðungaruppboða. Það er mjög brýnt að þessi till. fái þegar þinglega meðferð vegna þess að húsnæðismálin eru nú mjög á dagskrá. Ég vil nota tækifærið í upphafi máls míns til að beina þeirri fsp. til hæstv. félmrh. hvenær þess megi vænta að ríkisstj. komi frá sér þeim frumvörpum um húsnæðismál sem hún hefur lofað bæði Alþýðusambandinu og reyndar húsbyggjendum í landinu núna að undanförnu.
Í þessari till. er tekið á þeim atriðum sem vafalaust skipta húsbyggjendur í landinu um þessar mundir langmestu máli. Ég les hér helstu efnisþætti tillögunnar. Hún er svona:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að fyrirskipa tafarlausa lækkun vaxta og endurmat á hækkun einstakra húsnæðislána vegna verðtryggingarákvæða eftir að bannað var að greiða vísitölubætur á laun frá 1. júní 1983. Ríkisstj. skal beita sér fyrir eftirfarandi ráðstöfunum:
1. Að fram fari rannsókn á efnahagslegum áhrifum lánskjaravísitölunnar, sérstaklega áhrifum hennar á fjárhagsafkomu húsnæðiskaupenda og húsbyggjenda eftir að vísitölubætur á laun voru bannaðar með lögum frá 1. júní 1983.
2. Að gerð verði áætlun um endurgreiðslu á þeim upphæðum af húsnæðislánum, sem eru umfram hækkanir á kaupgjaldsvísitölu og hafa verið inntar af hendi á árinu 1983 og síðar. Mismunurinn bætist við höfuðstól lánanna og komi fyrst til greiðslu þegar lánin eru greidd upp að öðru leyti. Höfuðstóll lánanna verði lækkaður sem nemur minni hækkun byggingarvísitölu en lánskjaravísitölu frá 1980“ — en á þessum tveimur vísitölum er verulegur munur á undanförnum árum. — „Kannað verði hve mikinn kostnað þessi aðgerð hefði í för með sér og gerðar tillögur um fjáröflun í þessu skyni.“ — Í þessu sambandi má minna á að fyrir þinginu liggur frv. frá Alþb. um fjáröflun til húsnæðismála upp á liðlega 1 milljarð kr.
„3. Að settar verði reglur um endurgreiðslu fasteignaveðlána til einstaklinga þannig að misgengi vísitalna og raunvaxtabreytingar valdi ekki þyngri greiðslubyrði en upphaflega var til stofnað.
4. Að ákvörðun um hámarksvexti inn- og útlána verði tekin úr höndum seðlabanka og lánastofnana.
5. Að skammtímaveðlánum og lausaskuldum, sem stofnað hefur verið til vegna íbúðakaupa og húsbygginga s. l. 5 ár, verði breytt í lengri lán sem verði ekki til skemmri tíma en átta ára.
Meðan rannsókn sú stendur yfir, sem kveðið er á um í þál. þessari, er óheimilt að láta fram fara nauðungaruppboð á íbúðum, enda sé um einu íbúð viðkomandi að ræða.“
Í sambandi við þetta má geta þess að það sem af er þessu ári hafa farið fram fleiri nauðungaruppboð hér á landi á íbúðum en nokkru sinni fyrr. Það hefur m. a. gerst, sem er einsdæmi, að frá áramótum hafa farið fram nauðungaruppboð á sjö íbúðum í verkamannabústöðum hér á landi.
Á undanförnum árum hefur stundum komið til nauðungaruppboðs á íbúðum í verkamannabústöðum, í mesta lagi eitt eða tvö nauðungaruppboð á ári. Nú er um það að ræða að á þeim tíma sem liðinn er af árinu 1985 hafa farið fram sjö nauðungaruppboð á íbúðum í verkamannabústaðakerfinu. Þetta segir sína sögu.
„Rannsókn og tillögugerð skv. þessari þál. skal lokið fyrir 30. apríl n. k. Þangað til skal viðskiptabönkum og Húsnæðisstofnun gert kleift að fresta afborgunum lána. Seðlabankinn endurkaupi lán í þessum tilgangi uns annað hefur verið ákveðið.“
Þetta var tillagan í heild. Hún er í mjög góðu samræmi við þær kröfur sem fram eru komnar frá hreyfingu áhugamanna um úrbætur í húsnæðismálum, en þeir gera aðallega fjórar kröfur:
1. Að vextir verði lækkaðir og raunvextir af lánum til húsnæðiskaupa verði aldrei hærri en 2%.
2. Að veittur verði skattaafsláttur til þess að leiðrétta umframgreiðslur undanfarinna ára.
3. Að veitt verði viðbótarlán frá Húsnæðisstofnun ríkisins til þeirra sem eiga í greiðsluerfiðleikum vegna lausaskulda sem hafa orðið til vegna húsnæðisöflunar o. fl.
4. Lagt er til að gefinn verði kostur á skuldbreytingu lána til a. m. k. átta ára á hagstæðustu mögulegum lánskjörum og án lántökukostnaðar.
Þessi atriði er, eins og heyra má, einnig að finna í þeirri þáltill. frá Alþb. sem hér liggur fyrir.
Þá vil ég einnig vekja athygli á því, herra forseti, að fram hafa komið 11 viðræðupunktar um húsnæðismál frá Alþýðusambandinu gagnvart ríkisstj. og að undanförnu hefur Alþýðusambandið átt í viðræðum við ríkisstj. um húsnæðismál. Í þeim viðræðum hefur í raun og veru aðeins verið tekið á einum af þessum 11 punktum, þ. e. gert er ráð fyrir breytingum á greiðslum húsnæðislána, að þau verði framvegis miðuð við svokallaða launavísitölu, sem er meðaltalsvísitala kaupmáttar kauptaxta og atvinnutekna, og þannig verði greiðslubyrðin framvegis miðuð við launaþróun en ekki einhliða verðlags- og lánskjaravísitöluþróun, eins og þetta hefur verið.
Það ber að játa að það er til nokkurra bóta að taka þannig á greiðslubyrðinni eins og lagt er til í till. Alþýðusambandsins, till. Alþb. og tillögum þessa áhugamannahóps um úrbætur í húsnæðismálum. En eftir stendur að gífurlegur vandi er eftir í þessum efnum og það blasir við neyðarástand á hundruðum heimila í landinu. Ég geri ráð fyrir því að hver einasti þm. þekki fjölda fólks sem hefur að undanförnu komið að máli við þm. og gert grein fyrir sínum vanda í húsnæðismálum. Það er útilokað að Alþingi fari heim án þess að afgreiddar verði nægilegar lagaheimildir í þessu efni til að koma til móts við þann vanda sem húsbyggjendur og skuldarar eiga í.
Ég vil taka það fram að í þeim efnum dugir ekki sú hugmynd sem ríkisstj. mun þegar hafa afgreitt að því er varðar greiðslubreytingar á greiðslu húsnæðislána. Þar er aðeins um mjög takmarkaðan þátt vandans að ræða. Þar er ekki tekið á þeim vandamálum sem snúa að bönkunum og það er það sem er að fara verst með fólk um þessar mundir, þ. e. skammtímalánin hjá bönkunum. Til þess að flýta fyrir afgreiðslu málsins vil ég stytta mál mitt og ljúka þessari framsöguræðu minni með því að endurtaka þá spurningu, sem ég bar fram fyrir hæstv. félmrh., hvenær þess er að vænta að tillögur frá ríkisstj. komi til meðferðar og afgreiðslu á Alþingi í þessum efnum.