07.05.1985
Sameinað þing: 80. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4881 í B-deild Alþingistíðinda. (4165)

359. mál, lækkun vaxta og stöðvun nauðungaruppboða

Flm. (Svavar Gestsson):

Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. félmrh. fyrir svörin og endurtaka það sem ég sagði áðan, að ég tel að þær hugmyndir, sem nú eru uppi varðandi greiðslubyrðina, séu til bóta en þær séu hvergi nærri fullnægjandi. Það er útilokað fyrir þingið að ljúka störfum á þessu vori öðruvísi en stigin verði stærri skref til að koma til móts við fólk í þessum efnum.

Af hverju stafar vandinn? Hæstv. forsrh. hefur lýst því betur en allir aðrir menn. Hann sagði: Það voru stórfelld mistök að taka kaupgjaldsvísitöluna úr sambandi vorið 1983 án þess að taka lánskjaravísitöluna úr sambandi um leið. Það er kjarni málsins. stjórnarstefnan er sá vandi sem fólk stendur frammi fyrir eins og hæstv. forsrh. hefur viðurkennt með gleggri orðum en flestir aðrir.

Ég held að það sé rétt að láta það koma hér fram af hálfu þingflokks Alþb. að við munum leggja allt kapp á að knýja fram frekari úrbætur í húsnæðismálum nú á þessu vori en þegar liggja fyrir till. um frá ríkisstj. Ég vil láta það koma fram að ég tel að það verði fyrir okkar þingflokk mjög erfitt að ganga til samninga við ríkisstj. um meðferð og frágang þingmála við lok þingsins öðruvísi en að skýlaust verði tekið á húsnæðismálunum, skarpar en gert er ráð fyrir í því frv. sem hæstv. félmrh. ætlar að dreifa hér á eftir. Ef ekkert gerist hér á þinginu frekar en fram kemur í því frv. er fólki vísað á nauðungaruppboð hér í sumar, vísað á okurlánastarfsemina og okurmarkaðina.

Ég ætla að lokum, herra forseti, að segja ykkur sögu af manni sem kom til mín í síðustu viku. Hann sagði mér frá því að hann hefði fengið lánað hjá nafngreindum einstaklingi hér í Reykjavík 100 þús. kr. snemma á þessu ári. Þetta lán var til þriggja mánaða og fyrir þessi 100 þús. skrifaði maðurinn upp á þrjá 42 þús. kr. víxla samtals 126 þús. kr. eða 26% í þrjá mánuði, eða 104% vexti. Það er þetta fólk sem núna verður að koma til móts við. Alþingi getur ekki verið þekkt fyrir að fara heim án þess að taka af alvöru, myndarlega, á vandamálum þessa fólks. Það er útilokað að líða þinglok öðruvísi en að á þessum málum verði tekið.