07.05.1985
Sameinað þing: 80. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4900 í B-deild Alþingistíðinda. (4171)
Varamaður tekur þingsæti
Utanrrh. (Geir Hallgrímsson):
Herra forseti. Ég þakka þeim sem talað hafa í þessum umr. um skýrslu mína um utanríkismál og mun ég nú leitast við að svara þeim fsp. sem til mín var beint.
Ég vil fyrst gera að umræðuefni þá staðhæfingu hv. þm. Hjörleifs Guttormssonar og raunar fulltrúa Alþb. sem og fulltrúa Kvennalistans í þessum umr. að í þessari skýrslu væri brugðið upp mynd kalda stríðsins og þar væri lýst málum annaðhvort með svörtu eða hvítu. Mér fannst merkilegt hve fulltrúar þessara tveggja þingflokka voru sammála að þessu leyti og hve samhljóma málflutningur þeirra var. Hv. þm. Guðrún Agnarsdóttir, býst ég við, getur ekki nefnt eitt einasta dæmi um að þessir fulltrúar, Alþb. annars vegar og Kvennalistans hins vegar, væru á öndverðum meið.
Hv. þm. Guðrún Agnarsdóttir sagði að 39% af kjósendum Kvennalistans væru fylgjandi Atlantshafsbandalaginu samkv. skoðanakönnun. Spurningin er: Hverrar skoðunar eru þm. Kvennalistans, fulltrúar þessara kjósenda, á Alþingi Íslendinga? Eru þeir fylgjandi Atlantshafsbandalaginu eða eru þeir andstæðingar Atlantshafsbandalagsins? Hér hafa talað hv. þm. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir og hv. þm. Guðrún Agnarsdóttir og hvorugur þessara þm. nefndi Atlantshafsbandalagið á nafn eða minntist á þátttöku okkar í Atlantshafsbandalaginu. Þær tóku ekki afstöðu til þessara grundvallarþátta í utanríkisstefnu Íslands þegar utanríkismál eru á dagskrá.
Sannleikurinn er sá að þm. Alþb. eru í raun og veru hættir að tala á móti þátttöku okkar í Atlantshafsbandalaginu og sumir þeirra, eins og friðarhöfðinginn hv. varaþm. Ólafur Ragnar Grímsson, hafa meira að segja látið orð falla sem gera lítið úr því að hafa nokkuð á móti því að við séum þátttakendur í Atlantshafsbandalaginu. Ég hefði haldið að umræður um utanríkismál ættu að snúast um slík meginatriði en því miður hafa þessir fulltrúar ekki veitt athygli því sem máli skiptir.
Ég vil sem mest binda mig við að svara fsp., en kemst ekki hjá því að ræða ýmis atriði sem hér hefur borið á góma. Ég lét þá skoðun í ljós að nú væri ekki meiri hætta á ófriði en áður og jafnvel mættu menn gera sér vonir um friðvænlegri framtíð en ástæða hefur verið til nú um skeið. Ég vona að þetta sé ekki tálvon af minni hálfu. Ég byggi þessa von á því að þau hafi bæði áhuga á að koma á samningum um afvopnun eða í það minnsta stöðvun vígbúnaðarkapphlaupsins. Það er sagt að viðræður um afvopnun hafi sjaldnast orðið til þess að vopnum hafi fækkað í heiminum en þegar best hefur látið aðeins til þess að vígbúnaðarkapphlaupið hafi stöðvast um sinn eða a. m. k. hægt á sér. Ég vona að við náum nú loks þeim áfanga að um raunverulega afvopnun verði að ræða.
Ég hef verið spurður hér ýmissa spurninga um afstöðu mína til deilumála úti í heimi, eins og t. d. hvaða viðhorf ég hefði til stefnu Bandaríkjanna í Mið-Ameríku, og í því sambandi sérstaklega hver afstaða mín væri til viðskiptabanns Bandaríkjanna á Nicaragua. Ég harma það viðskiptabann og ég tel slíkt viðskiptabann ekki þjóna hagsmunum eða tilgangi þeirra þjóða sem þessa álfu byggja hvort sem það er í Norður-Ameríku, Mið-Ameríku eða Suður-Ameríku. Ég hef talið að stefna Bandaríkjanna í málefnum Mið-Ameríku hefði falist í að gjalda jáyrði við tillögum Contadoraríkjanna. Ég tel víðskiptabannið ekki í samræmi við tillögur Contadora-ríkjanna, en á hinn bóginn verð ég líka að undirstrika það að ég tel enn síður atferli Nicaragua í samræmi við tillögur Contadora-ríkjanna.
Sjaldnast veldur einn þá tveir eða fleiri deila og auðvitað geta menn sagt að það sama gildi um deilur stórveldanna, en þar verðum við að hafa hugfastar meginlínur. Það sem þar er um að ræða er annars vegar opið lýðræðislegt þjóðfélag og hins vegar lokað einræðisríki. Tókuð þið ekki eftir því t. d. þegar hv. þm. Guðrún Agnarsdóttir flutti mjög fróðlegt yfirlit um geimvopn að hún byggði alla ræðu sína á gögnum og umræðum í Bandaríkjunum, en þegar kom að Sovétríkjunum gat hún sér aðeins til um hvað Sovétríkin mundu gera. Hún hafði engar heimildir varðandi viðbrögð sovétríkjanna, fyrirætlanir þeirra eða forsögu þeirra í geimrannsóknum. Menn skyldu hafa það hugfast að Sovétríkin hafa stundað geimrannsóknir og rannsóknir geimvopna um árabil og raunar áratugaskeið. Spurningin í þessum efnum eins og svo mörgum öðrum er e. t. v. sú, um leið og menn játa lýðræðinu fylgi sitt eins og hv. þm. Guðrún Agnarsdóttir, sem kvað Kvennalistann og fylgismenn hans vera lýðræðissinna sem ég dreg ekki í efa og trúi statt og stöðugt, en spurningin er þá hvernig við lýðræðissinnar eigum að verja lýðræði okkar og mannréttindi. Hjartnæm lokaorð hv. þm. Guðrúnar Agnarsdóttur voru að við Íslendingar ættum að vinna „í þágu friðar og lífs“. Vissulega tek ég undir þau orð, en þar vantaði að við ættum einnig að vinna í þágu „frelsis“, að það væri einnig það markmið sem við lýðræðissinnar setjum okkur.
En ef við viljum verja lýðræði okkar og frelsi verðum við, eins og sagan sýnir og dæmin sanna, að vera viðbúin. Hv. þm. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir hefur sagt að hún vildi ekki einhliða afvopnun, hún væri ekki fylgismaður einhliða afvopnunar. Og jafnvel hv. þm. Hjörleifur Guttormsson kvað líkt að orði í umræðum sem áttu sér stað hér fyrir nokkru. En þá verðum við að gera okkur grein fyrir því hvar við eigum að setja markið, hvaða viðbúnaður er nauðsynlegur. Ef við viljum ekki sýna sama andvaraleysi og lýðræðisþjóðirnar fyrir aðra heimsstyrjöldina sem ég er sannfærður um að varð raunverulega til þess að önnur heimsstyrjöldin braust út, þá verðum við að gera okkur grein fyrir því að viðbúnaðar er þörf. Og ef við erum ekki viðbúin þá er einmitt fyrst og fremst hætta á að til átaka dragi og stríð brjótist út. Ef ásælnis- og árásaröflum í heiminum er ekki færður heim sanninn um það að þau muni mæta andstöðu er vísast að þau muni leita fanga og fylla þau tómarúm sem til staðar eru.
Þetta er enginn kaldastríðsáróður. Þetta er því miður raunhæft mat á aðstæðum öllum. Við sem teljum okkur öll lýðræðissinna eigum að hafa opin augun fyrir þessu og hafa þor og dug að gera mun á opnum lýðræðislegum þjóðfélögum þar sem m. a. verður að leggja spilin á borðið, hvað vígbúnaður kostar, hvaða vígvélar má framleiða og veita peninga til að framleiða, eða þeim þjóðfélögum þar sem allt slíkt er á huldu og stjórnarherrarnir skipa fólkinu að færa fórnir á altari frekara vígbúnaðarkapphlaups, þar sem stjórnarherrarnir þurfa ekki að standa reikningsskil gerða sinna eða sæta dómi kjósenda í almennum, lýðræðislegum kosningum.
Ég bið nú hv. þm. Kvennalistans og hv. þm. Alþb. að sýna dómgreind kjósenda sinna þá virðingu að gera mun á þessum tveimur þjóðfélögum, að segja þau ekki bæði grá. Þó að þau kunni bæði að vera grá fyrir járnum eru þau ekki bæði grá. Við getum valið um það í hvorri þjóðfélagsgerðinni við viljum búa og lifa af því að við búum hér á Íslandi og af því að Ísland er varið og af því að Ísland er í Atlantshafsbandalaginu. En einmitt vegna þess hvílir á okkur ábyrgð, sú ábyrgð að verja frelsi okkar og eftirkomenda.
Þá var spurt um það af hálfu hv. þm. Hjörleifs Guttormssonar hvað ég hefði átt við með því að það væru eingöngu Íslendingar sem ættu að reka ratsjárstöðina við Stokksnes, en getið er um það í skýrslu ratsjárnefndar að þar muni vinna 30 manns. Það var rétt þegar ég staðfesti orð annars þm. að við ratsjárstöðina á Stokksnesi munu eingöngu Íslendingar vinna eftir að endurnýjun hennar fer fram, 10–12 manns. En 18–19 manns munu vinna þar að öðrum verkefnum og áhersla mun einnig verða lögð á að það verði Íslendingar.
Þá sagði hv. þm. Hjörleifur Guttormsson að Bandaríkin hefðu svarað því, þegar sagt var frá áætlunum um að flytja kjarnorkusprengjur hingað til Íslands á stríðstímum í desember s. l., að „um svona hluti spyr maður ekki.“ Ég vil minna hv. þm. á það að þó að það sé stefna Bandaríkjanna, eins og annarra kjarnorkuvelda Atlantshafsbandalagsins, að staðfesta hvorki né neita tilvist kjarnorkuvopna, þá svöruðu Bandaríkin þessari fsp. okkar þannig að þau vitnuðu til samþykktar leiðtogafundar Atlantshafsbandalagsins í París 1957 sem setti Atlantshafsbandalagsríkjunum þá reglu að kjarnorkuvopn yrðu ekki flutt til neins bandalagsríkis nema með samþykki viðkomandi ríkis. Vitnað var til þess að Íslendingar hefðu vald skv. varnarsamningnum um hvaða vopnabúnaður væri hér geymdur og Bandaríkin sögðu að þau hefðu í einu og öllu fylgt fram ákvæðum varnarsamningsins og þeim reglum sem Atlantshafsbandalagið hefur um flutning þessara vopna. Þetta kalla ég ekki að segja: „Um svona hluti spyr maður ekki.“
Þá spurði hv. þm. Hjörleifur Guttormsson hvort rætt hefði verið í ríkisstjórninni um það að starfsmenn Landhelgisgæslunnar hefðu farið til annarra Atlantshafsbandalagsríkja til að kynna sér tundurduflaslæðingu. Ég get svarað því til að ég man ekki hvort á þetta var minnst á fundi ríkisstj., en við dómsmrh. höfum talað um það okkar á milli. Í raun hefur þetta verið ráðið af Landhelgisgæslunni annars vegar og varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins hins vegar, enda er það kunnugt að það er hlutverk Landhelgisgæslunnar að eyða tundurduflum sem við og við þarf nú enn að gera eftir aðra heimsstyrjöldina. Það kemur í hennar hlut að svo miklu leyti sem varnarliðið hefur ekki mannafla til að sinna þessu hlutverki að gera það sömuleiðis ef til átaka kemur. Eða vilja hv. þm. að við Íslendingar séum lokaðir inni frá því að sækja lífsbjörg okkar í fiskveiðum hér við land ef til spennuástands eða átaka kemur og tundurdufl skyldu hér vera sett til að loka fjörðum og flóum?
Þá fannst hv. þm. Hjörleifi Guttormssyni ótækt að ekki væri minnst á frumkvæði Parliamentarians for World Order sem sætir ágætri forustu hv. varaþm. Ólafs Ragnars Grímssonar og frumkvæðis leiðtoga í fimm heimsálfum varðandi kjarnorkuvopnabúnað. Í því sambandi skal þess getið að þetta frumkvæði hefur vakið minni athygli en hefði e. t. v. mátt vænta, í og með vegna þess að í áskorun þeirra skortir ábendingu um hvernig ábendingu þeirra skuli framfylgt og eftirliti með því hagað.
En það er líka athyglisvert að forseti Argentínu er einn af frumkvæðismönnum og sömuleiðis forsrh. Indlands. Norðurlöndin höfðu frumkvæði að því nú um og upp úr áramótunum að ganga fyrir dyr hvers þess ríkis í heiminum sem ekki er búið að staðfesta samninginn um bann við dreifingu kjarnavopna, en meðal þessara ríkja eru bæði Argentína og Indland. Sendiherrar Norðurlanda í þessum löndum og hjá Sameinuðu þjóðunum höfðu þetta starf með höndum. Í Argentínu fengu þessir boðberar Norðurlanda það svar að Argentína hygðist alls ekki staðfesta þennan samning. Hvaða hugur fylgir þá máli? Í Indlandi var svarað að það væru engar fyrirætlanir varðandi staðfestingu þessa samnings. Er ástæða til að taka mikið mark á áskorun forvígismanna þessara landa sem þannig sýna í verki, þegar þau sjálf eiga í hlut, hvaða áhuga þeir hafa á takmörkun kjarnorkuvígbúnaðar eða banni við dreifingu kjarnavopna?
Þá spurði hv. þm. Hjörleifur Guttormsson hvernig mér litist á hugmyndir iðnrh. varðandi skipun sendiherra til að vinna að útflutningi hugverkefna. Mér líst út af fyrir sig vel á þær hugmyndir að við höfum sendiherra til að vinna að útflutningi hvort heldur er vöru, þjónustu eða hugbúnaðar. Ég vil þó taka fram að ég tel að þeir sendiherrar eigi að vera undir stjórn utanrrn. og samræma skuli störf þeirra öðrum störfum sem unnin eru á vegum utanríkisþjónustunnar. Ég held að okkur iðnrh. verði ekki skotaskuld úr því að samræma sjónarmið okkar að þessu leyti.
Hv. þm. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir sagði að því mér skildist að ég væri þeirrar skoðunar að vopnin tryggi friðinn. Það er útúrsnúningur, en ég er þeirrar skoðunar að vopnleysi tryggi ekki friðinn. Í því felst að ég tel að vígbúnaður eða herbúnaður sé má segja ill nauðsyn lýðræðisríkja, en án hans væri hætta á að friðurinn væri úti eða ef friður ríkti væri fjötrum smeygt um háls okkar sem viljum búa í frelsi.
Ég verð að játa það alveg hreinskilnislega, og hef raunar sagt skoðun mína um þau efni hér áður, að ég hef vissar efasemdir um kjarnorkuvopnalaus svæði.
Sérstaklega hef ég litla, ef nokkra, trú á þeim ef þau eru ekki liður í afvopnun sem byggð er á samningi milli kjarnorkuvelda og tryggu eftirliti.
Ég held að við séum öll sammála um það að hafa enga trú á að unnt sé að heyja takmarkað kjarnorkuvopnastríð án þess að það verði algert. En ég dreg samasemmerki á milli kjarnorkuvopnalausra svæða annars vegar og takmarkaðs kjarnorkuvopnastríðs hins vegar. Ef menn hafa ekki trú á takmörkuðu kjarnavopnastríði, hvaða gagn gera þá kjarnorkuvopnalaus svæði nema sem liður í afvopnun til þess að koma í veg fyrir að til átaka komi? En ef átök hafa brotist út, þá er ég býsna smeykur um að lítið gagn sé að kjarnavopnalausum svæðum. Þess vegna er úrslitaorðið um það hvort kjarnavopnalaus svæði komi að gagni að þau séu liður í allsherjarafvopnun skv. samningi og skuldbindingu kjarnorkuveldanna og tryggt og öruggt eftirlit sé með því að slíkir samningar séu haldnir.
Þá beindi hv. þm. Sigríður Dúna nokkrum fsp. til mín, m. a. hvert frumkvæði mitt á vettvangi Sameinuðu þjóðanna væri. Ég skal aðeins nefna í því sambandi að í upphafi allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna núna hef ég gert grein fyrir viðhorfi Íslands til veigameiri alþjóðamála þau tvö ár sem ég hef gegnt þessu starfi, eins og fyrirrennarar mínir áður. Við höfum tekið þátt í tillöguflutningi um könnun á vígbúnaði í hafinu. Einnig höfum við tekið þátt í flutningi annarra tillagna og er skrá um þær á bls. 52 í skýrslu sendinefndar okkar hjá Sameinuðu þjóðunum. Við höfum ásamt Norðurlöndunum beint tilmælum til fjölda ríkja um að gerast aðilar að alþjóðasamningi um að dreifa ekki kjarnavopnum, eins og ég gat um áðan. Við höfum með aðild okkar að framkvæmdastjórn UNESCO haft ákveðna forustu um endurbætur hjá stofnuninni í þeirri kreppu sem sú stofnun nú er í, en fulltrúi okkar í framkvæmdastjórninni hefur þar verið málsvari Norðurlanda og raunar fleiri ríkja. Norðurlöndin höfðu forustu um að fá samþykktan alþjóðasamning gegn pyntingum sem náðist fram á síðasta allsherjarþingi, eins og nefnt hefur verið í umr. nú og talið merkasta mál þingsins. Ísland og önnur Norðurlönd hafa einnig lagt fram tillögur hjá Sameinuðu þjóðunum um eflingu starfs samtakanna og starfsfyrirkomulags til þess að þau væru áhrifameiri til verndunar friðar.
Hv. þm. spurði hvernig Ísland mundi standa að þátttöku sinni í ECOSOC. Við lögðum áherslu á að fá sæti í félagsmála- og efnahagsnefndinni einmitt til þess að geta haft þar áhrif og öðlast þar reynslu. Aðild okkar að ECOSOC er nýtilkomin og kjörtímabilið er þrjú ár. Auðvitað þarf að móta aðild okkar eftir því sem við öðlumst þessa reynslu. Fyrsti fundur eftir að við tókum þar sæti, burtséð frá skipulagsfundi í febrúar, var að hefjast í New York í dag, 7. maí, og stendur til mánaðamóta. Við munum nota þennan vettvang til að stuðla að framgangi margvíslegra velferðar- og réttindamála, einkum þeirra þjóða sem lakar eru settar í heiminum. Íslenskir fulltrúar eru kunnugir meðferð þessara mála frá störfum í 2. og 3. nefnd allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna en sparnaður í rekstri utanríkisþjónustunnar setur virkari þátttöku okkar nokkrar skorður. En við munum gera okkar besta.
Það er talið að undir starfssvið ECOSOC falli 70–80% af umsvifum Sameinuðu þjóðanna og sérstofnana þeirra. Þar er fjallað um skýrslur frá hinum ýmsu stofnunum Sameinuðu þjóðanna og samræmdar aðgerðir og í raun og veru er það svið, sem ECOSOC nær yfir, það svið þar sem Sameinuðu þjóðirnar hafa náð einhverjum árangri í raun. Því miður hefur árangur af starfi Sameinuðu þjóðanna á ýmsum sviðum verið mun lakari.
Þá spurði hv. þm. Sigríður Dúna hvers vegna upplýsingar Arkins væru ekki í skýrslu utanrrh. og sama kom fram hjá hv. þm. Steingrími Sigfússyni. Ég taldi að þær umræður hefðu verið tæmdar hér á Alþingi og upplýsingar Arkins hefðu ekki verið eins áreiðanlegar og út hafði verið gefið í upphafi frekar en um árið.
Hv. þm. Kjartan Jóhannsson spurði hvenær væri að vænta skýrslu um styrki, höft og hömlur í viðskiptum sem hann hefði óskað eftir í utanrmn. að gerð væri. Í þeim efnum hafa mjög miklar upplýsingar komið fram og enn er verið að afla slíkra upplýsinga. Þær upplýsingar ganga svo til Þjóðhagsstofnunar. Þjóðhagsstofnun hefur þegar gert yfirlit um styrkjastarfsemi sem torveldað geta samkeppni okkar Íslendinga á erlendum mörkuðum hvað Noreg snertir og sömuleiðis nokkurn samanburð á hve víðtæk slík styrkjastarfsemi er á öðrum Norðurlöndum.
Hv. þm. Steingrímur Sigfússon nefndi fyrst að þróunaraðstoð væri af of skornum skammti og ég get verið sammála honum um það. Ég vonast til að við getum gert einhverja bragarbót að þessu leyfi m. a. með frumkvæði utanrmn. og samþykki og aðild ríkisstj.
Þá varpaði hv. þm. nokkrum fsp. til mín. Í fyrsta lagi hvaða fyrirætlanir væru um risaratsjár hér á Íslandi. Raunar fullyrti hv. þm. að slíkar fyrirætlanir væru til og taldi að við vissum ekki hvað hér væri á ferðinni. Ég hef nú ekki enn þá heyrt neinar sannanir fyrir því eða tilvitnanir í þann ágæta flotaforingja Wesley McDonald sem segja að slíka risaratsjá eigi að reisa hér á Íslandi enda eru engar fyrirætlanir þar að lútandi til staðar. En með alls konar sögusögnum og með því að tína eitt hér og annað þar er reynt að leiða grun að því að svo kynni að vera. En það eru engar slíkar fyrirætlanir á ferðinni og við höfum ekki verið beðnir um aðstöðu til þess að slík stöð yrði reist hér.
Þá spurði hv. þm. um það hvort beiðni Hollendinga um að reka héðan kafbátaleitarflugvél væri í rauninni frá Bandaríkjamönnum. Ég tel að þarna sé um samráð Atlantshafsbandalagsríkjanna að ræða. Hvort fyrsta frumkvæði kemur frá Hollendingum eða Bandaríkjamönnum skal ég láta liggja á milli hluta. Það skiptir ekki máli í þessu sambandi. Erindið kom frá Hollendingum til okkar og er liður í auknu samstarfi og samþjálfun Atlantshafsbandalagsþjóðanna.
Þá gat hv. þm. þess að í hollensku fréttabréfi væri talað um að hollenskar kafbátaleitarvélar yrðu tvær til viðbótar öðrum flugvélakosti sem nú er rekinn frá Keflavíkurflugvelli. Það er skýrt tekið fram að um leið og kafbátaleitarflugvél Hollendinga verður starfrækt héðan mun kafbátaleitarflugvél Bandaríkjamanna hverfa aftur vestur um haf. Hér er að vissu leyti ekki um mjög mikla breytingu að ræða. Í stað þess að slíkar flugvélar hafa komið við og við til Íslands um leið og þær hafa verið að störfum á þessum slóðum munu þær nú staðnæmast í tvær vikur til mánuð í einu og um 30 manna hópur fylgja þeim.
Í þriðja lagi var spurt hvaða þjálfun Íslendinga hafi átt sér stað hjá breska hernum 1984. Ég geng út frá því að hér sé um það að ræða að Bretar hafi tekið þátt í þjálfun Landhelgisgæslumanna í sambandi við tundurduflaslæðingar, eins og getið er um á bls. 31 í skýrslu minni.
Í fjórða lagi er spurt um beiðni Defence Mapping Agency um þyngdarmælingar hér á landi. Þetta mál hefur fyrst og fremst verið í höndum Orkustofnunar og verið umræðuefni Orkustofnunar annars vegar og Defence Mapping Agency hins vegar í framhaldi af samstarfi þessara aðila á sjöunda áratug og fyrst á áttunda áratug. Ég veit ekki til að þessar þyngdarmælingar, sem nú er óskað að fari fram, séu annars eðlis en voru þá. Auðvitað er að þessar þyngdarmælingar koma umferð í lofti að gagni en ég held að við megum ekki lifa lífinu í friði þannig að við eigum að neita okkur um þær rannsóknir sem hafa þýðingu og eru mikilvægar í daglegu lífi okkar í friði vegna þess að þær geta komið að gagni ef til ófriðar dregur og umferð í lofti verður e. t. v. aðallega af vígvéla hálfu.
Mér skilst að slíkar þyngdarmælingar séu stundaðar af Defence Mapping Agency á svæðum eins og Amazon-svæðinu í Suður-Ameríku eða í Mauritaniu sem ekki koma mikið við sögu í baráttu austurs og vesturs eða þeirri spennu sem ríkir á milli stórveldanna.
Hv. þm. undirstrikaði líka að þessar mælingar hefðu vísindalegan tilgang og ég skal hins vegar alls ekki neita því að þær kunni einnig að hafa herfræðilega þýðingu.
Í 5. lagi spurði hv. þm. frekar um afstöðu mína til heimsókna herskipa með kjarnavopn. Ég hef svarað honum skýrt og skilmerkilega varðandi það. Ég vil í þeim efnum segja: Við fylgjum alveg nákvæmlega sömu stefnu í þessum efnum og Danmörk og Noregur. En bæði þessi lönd hafa lýst því yfir að þau vilji ekki hafa kjarnavopn staðsett á sínu landsvæði eins og við. Bæði þessi lönd, eins og við, eru í Atlantshafsbandalaginu. Við vitum hvaða reglur gilda um meðferð og flutning kjarnavopna í Atlantshafsbandalaginu og við treystum bandalagsmönnum okkar í Atlantshafsbandalaginu og göngum út frá því og höfum ekki ástæðu til að ætla annað en að þær reglur séu haldnar.
Auðvitað eru til herskip og flugvélar sem geta flutt kjarnavopn en gera það ekki. Það er ekki hægt að draga ályktanir um að kjarnavopn séu í flugvél eða herskipi vegna þess að þau geti flutt slík vopn. En með slíkum getsökum er verið að reyna að skapa tortryggni.
Ég veit ekki hvort ég hef svarað þeim fsp. sem hér hefur verið beint til mín. Ef svo er ekki vonast ég til að ég verði minntur á það sem á skortir.
Ég vil ítreka þakkir mínar til ræðumanna fyrir þátttöku í þessum umr. vegna þess að ræður þeirra hafa gefið mér tækifæri til þess að skýra ýmsa þætti nánar og læt ég því máli mínu lokið.