07.05.1985
Sameinað þing: 80. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4907 í B-deild Alþingistíðinda. (4172)

Varamaður tekur þingsæti

Hjörleifur Guttormsson:

Herra forseti. Ég þakka hæstv. utanrrh. fyrir þau svör sem hann hefur veitt við fsp. sem ég bar fram fyrr við umr. Hann hefur vikið að þeim atriðum sem beint var spurt um þar. Ég ætla ekki að fara að túlka þau svör sérstaklega að öðru leyti en því að ég vil að fram komi í sambandi við það sem hann ræddi um Atlantshafsbandalagið og afstöðu Alþb. að því leyti, og ítreka það, að Alþb. er andvígt þátttöku okkar í hernaðarbandalögum, hvort sem um væri að ræða Atlantshafsbandalagið eða önnur, en við lífum vissulega á allar breytingar, sem losað geta okkur úr þeim viðjum sem við nú erum hnepptir í í þessu bandalagi og með setu Bandaríkjahers hérlendis, sem jákvæð skref. Meginatriði að okkar mati er að það verði breytt hér um stefnu og menn taki að vinda ofan af því sem hér hefur verið upp sett í þessum efnum, vaxandi hernaðaraðstöðu Bandaríkjanna hérlendis, og að menn stefni að því — ljóst er að það mun taka einhvern tíma — að breyta hér um þannig að Íslendingar taki upp hlutleysisstefnu en sem jafnframt tryggi á þann hátt sem samstaða getur orðið um öryggi okkar eftir því sem unnt er í vígvæddum heimi.

Hæstv. ráðh. vék að Mið-Ameríku og stöðu Bandaríkjanna þar og mér þótti ánægjulegt að heyra að hann gagnrýndi framferði Bandaríkjanna gagnvart Nicaragua þó að hann hins vegar léti það fylgja að hann teldi að aðferðir Nicaragua væru ekki í samræmi við Contadoraríkin, stefnu þeirra og tillögur. Ég ætla ekki að ræða þetta frekar að öðru leyti en því að ég tel alveg augljóst hver er gerandi í þessum efnum, hver er hinn sterki í þessum leik, ég held að. það dyljist engum, og að smáríkið Nicaragua er hér að bregðast við hatrömmum aðgerðum stórveldis sem er að reyna að knýja upp á það sína stefnu.

Það mætti margt segja í sambandi við það sem hæstv. ráðh. vék hér að í sambandi við samlíkingu milli stórveldanna. Ég sé ástæðu til að ítreka það, sem kom fram í máli mínu um daginn fyrr við umr., að ég var þar ekki að leg ja mat á þau gildi sem tengd eru við austur og vestur. Ég ítrekaði að menn ættu vissulega að leggja mikið á sig til þess að verja þau gildi sem við metum mikils, lýðræði og frelsi, þ. á m. félagslegt frelsi og annað það sem við höfum tryggt okkur, og ég var á engan hátt í mínu máli að réttlæta það helsi sem ríkir t. d. í Austur-Evrópu og það sem Sovétríkin standa fyrir í löndum þriðja heimsins. Ég benti hins vegar á það í mínu máli hversu mikil líkindi eru með framferði þessara risavelda, Bandaríkjanna og Sovétríkjanna, í samskiptum við þriðja heiminn og þar höfum við ærin dæmi.

Hæstv. ráðh. vék hér að ratsjárstöðvum og uppbyggingu eða endurnýjun ratsjárstöðva t. d. á Suðausturlandi og hann virtist telja að það lið sem gert væri ráð fyrir að þar yrði ætti að verða íslenskt, íslenskir starfsmenn. En annað mátti skilja af þeirri skýrslu sem utanrmn. fékk og ég hygg að dreift hafi verið til alþm. um þessi efni. Nú geri ég að vísu ekki mikinn mun á því hvort Íslendingar í þessum ratsjárstöðvum eru þjónar Atlantshafsbandalagsins eða Bandaríkjanna, en nauðsynlegt er að þetta liggi skýrt fyrir. Utanrrh. hefur hér staðhæft að gert sé ráð fyrir því að þarna verði um íslenska starfsmenn að ræða, allt að 30 talsins eða þar um bil.

Ég er sammála hæstv. utanrrh. um erindrekstur á okkar vegum í sambandi við viðskipti. Ég innti hann eftir því hvert væri álit hans á þeim yfirlýsingum sem komið hafa frá hæstv. iðnrh. um þessi efni og ég tel viðhorf utanrrh. mjög eðlilegt, að það verði utanrrn. sem samhæfi og hafi með slíka starfsemi að gera. Mér sýnist að orð hans að þessu leyti staðfesti að iðnrh. hefur farið nokkuð glannalega fram í yfirlýsingum sínum að þessu leyti, a. m. k. virðist ekki vera um samhæfingu á milli rn. að ræða að þessu leyfi eins og þau mál hafa verið sett fram.

Ég lofaði hæstv. forseta að hafa ekki uppi langt mál. Ég hef ekki aðstöðu til þess að vera hér við framhald umræðnanna strax á eftir og ég þakka hæstv. forseta fyrir að gefa mér kost á að segja hér nokkur orð við framhald þessarar umræðu. Ég geri ekki ráð fyrir að við í hæstv. utanrmn. getum samræmt okkar sjónarmið frekar en fram hefur komið. Þau eru andstæð að mörgu leyti og liggja fyrir í þeim ræðum sem haldnar hafa verið við þessa umræðu og raunar oft áður á yfirstandandi þingi og fyrr.