07.05.1985
Sameinað þing: 80. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4921 í B-deild Alþingistíðinda. (4181)

394. mál, atvinnumál á Norðurlandi eystra

Björn Dagbjartsson:

Herra forseti. Sú till. sem hér liggur fyrir er í sjálfu sér allra góðra gjalda verð og meiningin örugglega góð. Ég vil þó vekja athygli á því að atvinnuleysistölur sem teknar eru á ákveðnum degi eða tíma eru ekki alveg óyggjandi og þar er vissulega ekki allt sem sýnist.

Því var mótmælt nýlega af bæjarstjóra á Akureyri og bæjarfulltrúum að nýlegar atvinnuleysistölur væru raunhæfar. Það er vitað að Útgerðarfélag Akureyringa hefur margauglýst eftir fólki og fær ekki. Yfirverkstjóri þar sagði nýlega í blaðaviðtali að hann gæti nú bætt við 50 manns. Slippstöðina vantar 20–30 járniðnaðarmenn. Sömuleiðis er mér kunnugt um að Vélsmiðjuna Odda vantar járniðnaðarmenn.

Það er, að mér finnst, óþarfi að gera meira úr atvinnuleysi en efni standa til. Atvinnuleysisgrýlan vekur ugg og hún getur dregið dilk á eftir sér. Hins vegar dettur mér ekki í hug að draga úr því að atvinna hefur dregist saman á þessu landsvæði, á Norðurlandi eystra, einkum í byggingariðnaði og bifvélavirkjun, að mér er tjáð. Það eru þær atvinnugreinar sem fangmests samdráttar gætir í.

Sú mikla fólksfjölgun og jafnvel þensla á Akureyrarsvæðinu og víðar á Norðurlandi eystra sem fylgdi aflaárunum fyrir 1982 hlaut náttúrlega að finna sitt jafnvægi fyrr eða síðar. En hitt er svo rétt að það er bágt að standa í stað og mönnunum munar annaðhvort aftur á bak ellegar nokkuð á leið einnig í þessum efnum, eins og þar stendur, og sjálfsagt á atvinnulíf á Akureyri og víðar á Norðurlandi eystra nokkuð í vök að verjast um þessar mundir.

Ég hef líka áhyggjur af því, eins og hv. 1. flm. kom inn á, að laun eru tiltölulega lág á þessu svæði. Stærstu atvinnuveitendur, iðnaðardeild SÍS og Kaupfélag Eyfirðinga, greiða ekki tiltakanlega há laun og svo hefur reyndar verið lengi. En mér segir svo hugur um að hálaunasvæði með vaxandi atvinnu í nýbyggingariðnaði, hækkandi verði fasteigna og velmegun á annan hátt verði ekki endilega til þó stofnaður sé einhver þróunarsjóður. Ég held að þetta gerist nefnilega ekki nema með uppbyggingu stóriðju og það væri það besta sem gert væri fyrir atvinnulífið á þessu svæði að vinda þar bráðan bug að strax.