07.05.1985
Sameinað þing: 80. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4923 í B-deild Alþingistíðinda. (4184)

394. mál, atvinnumál á Norðurlandi eystra

Björn Dagbjartsson:

Herra forseti. Þessari spurningu get ég ekki svarað. Þetta þróunarfélag, sem hv. þm. var að tala um, er hlutafélag sem er eftir að stofna og síðan tekur stjórn þess hlutafélags væntanlega ákvörðun um hvar það eigi að eiga heima. Svo einfalt er það mál. Ég reikna ekki með að alþm. ráði neinu þar um sérstaklega nema þeir sitji þar í stjórn.

Hins vegar er í gangi annað frv., um Byggðastofnun. Mér fyndist vel koma til greina að Byggðastofnun gæti setið á Akureyri. En eftir því sem ég hef skilið þetta Þróunarfélag hf., hlutafélag, þá er ekki á valdi þingheims að ákveða hvar það eigi að sitja heldur stjórnar þess félags þegar það hefur verið stofnað.