07.05.1985
Sameinað þing: 80. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4936 í B-deild Alþingistíðinda. (4193)

427. mál, fiskeldismál

Flm. (Stefán Valgeirsson):

Herra forseti. Það eru ekki nema örfá orð. Ég vil þakka hv. þm. Eyjólfi Konráði fyrir stuðning hans við þessa þáltill. okkar félaganna. En ég gleymdi áðan að geta þess í sambandi við hafbeitina, til þess að sýna hvað Norðmenn leggja mikla áherslu á þetta atriði, að í ár ætla þeir að leggja 70 millj. norskra kr. í rannsóknir á þessu eina verkefni, þ. e. rúmlega 300 millj. ísl. króna. Við sjáum bara á þessum tölum hvaða trú norsk stjórnvöld hafa á þessari atvinnugrein.

Það væri náttúrlega hægt að ræða þetta endalaust en ég ætla ekki að gera það. Mér finnst að þetta atriði sé svo mikilvægt að ég vildi að það kæmi hér fram. Ég ætla ekki að ræða meira um stóriðjuna á þessu stigi, ég á eftir að ræða um hana hér á hv. Alþingi en ég sleppi því að þessu sinni. En ég gleymdi því áðan, herra forseti, að óska eftir því við forseta að hann beiti,sér fyrir því að þetta mikilvæga mál fái afgreiðslu á þessu þingi því að ég veit að ef hann leggst á þá sveif er ekki hætta á því að málið sofni í nefnd.