07.05.1985
Sameinað þing: 80. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4937 í B-deild Alþingistíðinda. (4196)

460. mál, grænfóðurverksmiðjur

Fyrirspurnin hljóðar svo:

1. Hver var afkoma eftirtalinna grænfóðurverksmiðja ríkisins s. l. þrjú ár:

að Gunnarsholti í Rangárvallasýslu,

að Stórólfsvöllum í Rangárvallasýslu,

á Flatey á Mýrum,

Fóðuriðjunnar í Ólafsdal,

að Vallhólmi í Skagafirði?

2. Hve mikið er til af óseldri framleiðslu ríkisverksmiðjanna frá 1984, miðað við 1. apríl 1985?

3. Hvaða áform eru uppi um starfrækslu verksmiðjanna á þessu ári?

4. Eru uppi áform um að gefa bændum eða samtökum þeirra kost á að annast rekstur verksmiðjanna t. d. með leigu eða kaupum?

Svar við 1. lið:

Skv. ársreikningum Fóður- og fræframleiðslunnar í

Gunnarsholti 1982–1984 var niðurstaða rekstrar-

reiknings:

1982

kr.

1 254 071

—

hagnaður.

1983

—

7 777 796

—

tap.

1984

—

421 521

—

hagnaður.

Stórólfsvallabúið, Hvolhreppi, Rangárvallasýslu:

1982

kr.

1 113 239

—

hagnaður.

1983

—

1 290 473

—

tap.

1984

—

444 536

—

hagnaður.

Graskögglaverksmiðjan Flatey, Mýrahreppi, A.-Skaftafellssýslu:

1982

kr.

1 908 405

—

hagnaður.

1983

—

681 275

—

hagnaður.

1984

—

967 767

—

hagnaður.

Fóðuriðjan, Ólafsdal, Saurbæjarhreppi, Dalasýslu:

1982

kr.

1 383 198

—

tap.

1983

—

2 759 545

—

tap.

1984

—

3 385 776

—

tap.

Vallhólmur hf., Skagafirði:

Verksmiðjan hóf framleiðslu 1983, þá um 1200 tonn, en árið 1984 um 2250 tonn. Full afköst miðast við 3000 tonn. Endurskoðaður ársreikningur fyrir 1984 liggur ekki fyrir.

Svar við 2. lið:

Fóður- og fræframleiðslan

Gunnarsholti

2610

tonn.

Stórólfsvallabúið

1838

tonn.

Graskögglaverksmiðjan Flatey

2800

tonn.

Fóðuriðjan Ólafsdal

832

tonn.

Vallhólmur

1800

tonn.

Svar við 3. lið:

Fóður- og fræframleiðslan, Gunnarsholti:

Rekstur svipaður og á árinu 1984. Framleiðsla u. þ. b. 3000 tonn.

Stórólfsvallabúið:

Gert er ráð fyrir að minnka graskögglaframleiðsluna um 1500 tonn frá árinu 1984 (2800 tonn), en auka byggrækt úr 100 ha í um 150 ha.

Graskögglaverksmiðjan Flatey:

Ekki gert ráð fyrir graskögglaframleiðslu árið 1985 vegna mikilla birgða, en ráðgert að auka byggrækt úr 100 ha í 150–200 ha.

Fóðuriðjan Ólafsdal:

Gert ráð fyrir svipaðri starfrækslu og á s. l. ári, framleiðsla verði um 1200 tonn.

Vallhólmur:

Framleiðsla áætluð svipuð og á s. l. sumri, 2200–2300 tonn.

Svar við 4. lið:

Ráðuneytinu hefur borist fyrirspurn um leigu á Stórólfsvallabúinu og eru hafnar viðræður um það. Þá mun ráðuneytið leita eftir því hvort vilji er hjá heimamönnum að kaupa verksmiðjurnar eða taka þær á leigu til rekstrar.